Stjarnan - 01.08.1928, Qupperneq 7
STJARNAN
119
arstaðar í þessu blaði er sagt frá kristni-
boðsskólum, þar sem margar þúsundir
ungra manna og kvenna búa sig undir
að taka þátt í þessu háleita starfi. Ár-
lega fara margir þeirra út á kristniboðs-
sviðið. Árið 1927 sendi kristniboðs-
stjórnin út 184 nýja kristniboða. Voru
það menn og konur til að fylla allskon-
ar stöður sem læknar, hjúkrunarkonur
og prédikarar og gengur hið sameinaða
starf þeirra út á það að benda áhyggju-
fullum og syndumspiltum sálum á hann,
sem sagði: “Komið til mín allir þér, sem
erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og eg
mun veita yður hvíld.” Meðal þeirra
voru einnig kennarar, sem ekki einungis
hafa það fyrir augum að þroska huga
unglinganna, heldur og að ummynda
hjartað eftir hinni guðdómlegu mynd.
Markmið þeirra allra er hið sama: að
koma mönnum í skilning um að nauð-
synlegt er að veita náð Krists viðtöku,
til þess að hún geti breytt hjartanu og
endurnýjað það og á þann hátt lært að
lifa kristilegu lífi.
Ungt fólk er fúst til að fara.
Það er skemtilegt verk að hafa með
útsendingu ungra manna og kvenna til
þess háleita verks. Alúð þeirra og fús-
leiki er ríkuleg sönun fyrir ósérplægni
og sjálfsfórn þeirra í þessu göfuga starfi.
Hin árlega útsending þessara boðbera
fagnaðarerindisins og viðhald þess verks
skapar hérna heima hjá oss nýjar kröf-
ur. Þetta árlega kristniboðsnúmer
Stjörnunnar verður lesendunum sent
með bæn til Guðs um að Andi hans megi
verka á hjörtu þeirra, er lesa þessar frá-
sagnir, til að virða mikils þau tækifæri,
sem þeim þannig eru gefin á þessu sviði,
og með fúsu geði láta skerf sinn af hendi
rakna, til þess að söfnunin fyrir fram-
hald starfsins i hinum þurfandi heið-
ingjalöndum verði meiri en hún nokk-
urn tíma hefir verið.
C. K. Meyers.
Kristniboðsskólar.
í kristniboðsskólum vorum í Afríku,
á Indlandi, í Suður-Ameríku, á Suður-
hafseyjunum, Filippuseyjunum, í Kína
og Japan veitum vér daglega tuttugu
þúsundum heiðingja kristilega tilsögn og
frá þessum skólum skín ljós fagnaSar-
erindisins inn á mörg þúsund heimili,
þar sem menn hafa áður setið í andlegu
myrkri. Kristniboðsskólarnir eru fyrir-
taks stofnanir til að kunngjöra þeim
miljónum manna fagnaðarerindi Krists,
sem enn sitja i dimmu heiðindómsins.
í sumum löndum eru þessir skólar hinar
emu stofanir, sem vinna sálir fyrir Guð.
Hin venjulega aðferð vor er þessi að
stofnsetja skóla hjá þeim kristniboðs-
stöðvum, þar sem hvítir menn eru for-
stöðumenn ,til þess að menta innborna
kennara, sem þar næst verða sendir út til
að mynda útibússkóla í nærliggjandi
héruðum. Á þann hátt fær hinn inn-
borni kristilega mentun, sem gjörir hann
færan um að fræða landa sína á þeirra
eigin máli um hinn sanna Guð. Á þann
hátt fáum vér ekki einuhgís fljótlega
stóran hóp af innfæddum kristniboðum,
heldur sýnir reynslan oss að þetta er ó-
dýrasti vegurinn til að kunngjöra fagn-
aðarerindið á í hinum fjarlægustu lönd-
um. W. B- Howell.
Barnaskóli, sem vér höfum stofnsett meBal hinna
vanræktu fátœklinga, sern búa í fjöllunum i Norður-
Carolina.