Stjarnan - 01.03.1932, Síða 16

Stjarnan - 01.03.1932, Síða 16
Hvers vegna réðuát Japanar á Kína? Meðan menningarþjóðirnar sendu fulltrúa sína til Svisslands til aö ljósta upp friÖarópi, og ef mögulegt væri, syngja herminkunar sálminn einu sinni enn, fóru Japanar, eftir a'Ö hafa barist um tíma í Manchuria, a'Ö rá'Öast á hina miklu sjávar- og verzlunarborg, Shanghai, í Kína. Þeir skutu fyrst á víggirðingar hennar, því næst á kínverska hverfi borgarinnar, þar sem þeir myrtu fleiri en þúsund konur og börn svo aS segja á einum degi, siÖan hafa þeir gjört miklar skemdir á eignum útlendinga, sér í lagi Ameríkumanna, sem þeir hata rneir en hinar þjóÖirnar. Bretar, Ameríkumenn, Frakkar og ítalir, hafa þegar sent þangað mörg herskip og hafa þegar þetta er ritaÖ komið á land tíu þúsundum hermanna, til þess að vernda líf og eignir landa sinna. Margir eru þeir, sem nú vilja vita hvers vegna Japanar alt í einu og svo að segja fyrirvaralaust fóru að ráðast á þessa stórborg. Kínverjar hættu árið 1930 að verzla viö Japana og nú ætla Japanar með herafli að þvinga Kínverja til að fara að verzla við þá aftur. En hver var nú ástæðan til þess að Kínverjar hættu allri verzlun við Japan. Þannig er mál með vexti: Rússar hafa nú í heilan áratug reynt að ná töglum og högldum í Kína. Þeir hafa þýtt flest Bolsa-ritin sín á kínverska tungu og þau gjörð svo einföld og skiljanleg, að bændur og hermenn geta haft full not af þeim. Margir Rússar gengu einnig í þjónustu kínversku stjórnarinnar, sér í lagi þeirrar, sem mynduð var af stríðshöfðingjunum norðan úr Manchuria. Á þann hátt héldu Bolsarnir á Rússlandi að þeir gætu náð tökum á hinu mikla Kínaveldi. Þeir sendu flugvélar á undan hinum sigursælu herflokkum í hinu mikla innbyrðis stríði Kínverja og létu rigna úr loftinu mörgum tonnum af Bolshevika bókum og ritum yfir stórborgirnar, sem herflokkarnir mundu fara inn í. Þannig snerust kínverskir hermenn svo þúsundum skifti til bolshevism- ans og urðu hlyntir Rússum, en á sama tíma fóru þeir að hata Japana og vildu helzt engin mök eiga við þá. Nú hafa Japanar í mörg ár reynt að finna lönd, sem vildu veita viðtöku þeim mönnum þeirra, er eigi geta fengið bújarðir í ættlandi sínu, þar sem þegar fyrir löngu er orðið alt of þröngt um þann mikla mannfjölda, er heima á í japönsku eyjunum. En fáar eru þær þjóðir, sem vilja opna dyr sínar fyrir þeim mönnum. En land verða þeir að útvega sér einhversstaðar, þess vegna vilja þeir nú sölsa undir sið Manchuria og Mongolia. Þar að auki hafa japánskir stjórnmálamenn og ritstjórar látið í veðri vaka að þeir ætli aö taka Kínaveldið og nota hinar fimm hundruð miljónir manna þess sem stríðsfák, til að sölsa undir sig Norður-Ame- ríku. En þeim leizt nú ekki lengur á blikuna, því að þeir voru farnir að verða hræddir um að Rússar myndu verða fyrri til að klófesta Kína með brögðum sínum. Þess vegna var það að þeir fóru alt í einu að ráðast á Shanghai, til þess að vera vissir um herfang sitt; en svo kornu undir eins hinar ruddalegu hvítu þjóðir og skárust í leikinn og nú verður hið mikla spursmál þetta: Hvaða þjóð mun ná hinu mikla Kínaveldi undir sig, Rússar eða Japanar? Þegar hið síðasta stríð—Harma- gedón stríðið— milli gula og hvíta kynflokksins skellur á, lítur út eins og Rússar muni fara með gula kynflokknum á móti þeim hvíta, því að vér lesum: “Manns- son, snú þér gegn Góg í Magóg landi, höfðingja yfir Rós, Mesek og Túbal, spá gegn honum og seg: Svo segir Herrann Drottinn : Eg skal finna þig.og leiða þig út, ásamt öllu herliði þínu...... Persar, Blálendingar og Pútmenn eru í för með þeim......Margar þjóðir eru í för með þér. .. .og ver þú yfirmaður þeirra.” Esk. 38:1-7. D.G.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.