Fréttablaðið - 28.01.2019, Blaðsíða 4
Bæjarráðið
jákvætt í garð
alþjóðaflugvölls
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
EIGUM ALLAR ÚTFÆRSLUR TIL AFHENDINGAR, SLT, LARAMIE, LARAMIE SPORT, LIMITED OG LIMITED TUNGSTEEN.
BJÓÐUM UPP Á 37” TIL 42” BREYTINGARPAKKA.
40” BREYTTUR
UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
HEILBRIGÐISMÁL Frumtök, félag
frumlyfjaframleiðenda á Íslandi,
telja skort á lyfjum hér á landi
mega oft á tíðum rekja til gengis-
breytinga íslensku krónunnar og
þeirrar reglugerðar að verðskrá
lyfjagreiðslunefndar sé gefin út
aðeins á mánaðar fresti. Telja sam-
tökin kaupendur hamstra lyf eða
fresta innkaupum á þeim vegna
óhagstæðrar gengisþróunar.
Frumtök hafa vegna þessa sent
lyfjagreiðslunefnd bréf þar sem
þeir hvetja nefndina til að breyta
framkvæmd við útgáfu verðskrár
með því að fjölga útgáfunum. Í
núverandi ástandi segja Frumtök
hvata lyfsala vera að haga lyfjainn-
kaupum eftir gengi frekar en raun-
verulegri þörf.
„Þetta er einföld leið til að draga
úr óheppilegum hvötum,“ segir
Jakob Falur Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Frumtaka, samtaka
frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. „Í
haust þegar krónan veiktist hratt
sáum við til dæmis að innkaup voru
óvenjuleg. Slíkt getur leitt til vand-
kvæða við afgreiðslu lyfja. Hamstri
eitt apótek lyf þá gæti annað apótek
gripið í tómt. Tæknin gerir breyt-
inguna einfalda og hún hefur ekki í
för með sér kostnaðarauka fyrir hið
opinbera.“
Á vef Lyfjastofnunar er hægt að
fylgjast með hvaða lyf eru ófáanleg
hverju sinni vegna lyfjaskorts og
hægt er að tilkynna skort á lyfjum
þangað inn. Á hverjum tíma hér
á landi eru að meðaltali á þriðja
hundrað lyfja á biðlista af einhverj-
um orsökum.
Oft hefur komið upp sú staða að
lífsnauðsynleg lyf handa langveik-
um börnum eru ekki til á landinu
og dæmi um að foreldrar haldi úti
skiptimarkaði fyrir lyf til að tryggja
velferð barna sinna. – sa
Telja lyfsala ekki kaupa lyf eftir raunverulegri þörf hér á landi
Þetta er einföld leið
til að draga úr
óheppilegum hvötum
Jakob Falur Garðars-
son, framkvæmda-
stjóri Frumtaka
ÁRBORG Bæjarráð sveitarfélagsins
Árborgar hefur lýst yfir jákvæðri
afstöðu til þess að fram fari rann-
sóknir á „náttúrulegum, viðskipta-
legum og lagalegum forsendum þess
að alþjóðaflugvelli verði fundinn
staður í Árborg,“ að því er fram kemur
í fundargerð ráðsins.
Tilefni bókunarinnar er bréf frá
lögfræðingi óstofnaðs félags um
verkefnið þar sem óskað er eftir því
að sveitarfélagið upplýsi um afstöðu
sína um framhald verkefnisins.
„Áður en haldið er áfram með verk-
efnið og ráðist er í kostnaðarsamar
rannsóknir á jarðvegi, veðri, umhverfi
og öðrum þáttum sem kynntir voru á
íbúafundinum [8. janúar sl.], er nauð-
synlegt að formleg afstaða sveitar-
félagsins liggi fyrir,“ segir í bréfinu.
Í bókun bæjarráðs er minnt á að
endurskoðun á aðalskipulagi Árborg-
ar liggi fyrir dyrum og í þeirri vinnu sé
mikilvægt að horfa til allra framtíðar-
möguleika sveitarfélagsins.
„Endanleg afstaða sveitarfélagsins
til þess hvort byggður verði slíkur
alþjóðaflugvöllur ræðst svo af niður-
stöðum aðalskipulagsvinnu, vilja íbú-
anna og hagsmunum samfélagsins,“
segir í bókun bæjarráðs. – khn
Hugmyndir um alþjóða-
flugvöll í Árborg voru
kynntar á íbúafundi fyrr í
þessum mánuði
HEILBRIGÐISMÁL Alls mun 21 þing-
maður leggja fram frumvarp á Alþingi
um að almenn sálfræðiþjónusta
falli undir greiðsluþátttökukerfi
Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Í frum-
varpsdrögunum segir að eitt höfuð-
markmiðið sé að tryggja aðgengi
einstaklinga að sálfræðiþjónustu.
Heilbrigðisráðherra segir gott að
frumvarpið komi til kasta þingsins
og mikilvægt að ræða skipulag kaupa
ríkisins á sérfræðiþjónustu í heil-
brigðiskerfinu.
Samkvæmt klínískum leiðbeining-
um landlæknis á gagnreynd sálfræði-
meðferð að vera fyrsti meðferðar-
kostur við kvíða, þunglyndi og öðrum
sálrænum kvillum. Þrátt fyrir þessar
leiðbeiningar landlæknis hefur ekki
verið að fullu unnið eftir því vegna
þess hve dýrt er að fara til sálfræðings.
„Eins og ég skil málið þá er tillagan
sú að Sjúkratryggingum verið heimilt
að semja við sálfræðinga um kaup á
tiltekinni þjónustu. Það er í sjálfu
sér jákvætt að þingið fái að glíma við
þessa tillögu,“ segir Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra. „Það þarf
hins vegar að vera vel skilgreint hvers
konar þjónusta er keypt, hvert skipu-
lag hennar á að vera og hvaða gæði
þjónustan á að uppfylla. Ríkið sem
kaupandi heilbrigðisþjónustu þarf
að hafa skýra stefnu um hvað skuli
kaupa og ráða ferðinni í þeim efnum.
Það sjónarmið verður skoðað gaum-
gæfilega í umræðum um heilbrigðis-
stefnu til framtíðar á næstu vikum.“
Ekki hefur farið fram kostnaðar-
greining en flutningsmenn tillög-
unnar telja þjóðhagslegan ávinning
augljósan af því að fjárfesta í fyrir-
byggjandi aðgerðum í geðheilbrigð-
ismálum. Alma Dagbjört Möller,
landlæknir, hafði ekki séð umrædd
frumvarpsdrög þegar Fréttablaðið
náði tali af henni. Hún hins vegar
fagnaði því ef slíkt frumvarp næði
fram að ganga og taldi það til bóta.
Greiðsluþátttaka mun einnig hafa
í för með sér bætt aðgengi allra tekju-
hópa að sálfræðingum hér á landi.
„Í meginatriðum er afar ánægjulegt
að sjá svo breiðan stuðning á þingi
við að þjónusta sálfræðinga falli
undir greiðsluþátttökukerfi SÍ. Það
má segja að með greiðsluþátttöku
viðurkenni heilbrigðisyfirvöld loksins
gildi og mikilvægi gagnreyndrar sál-
fræðimeðferðar,“ segir Pétur Maack
Þorsteinsson, yfirsálfræðingur hjá
Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
„Þetta mun vonandi bæta aðgengi
að sálfræðingum sem eru sjálfstætt
starfandi utan heilbrigðiskerfisins. Í
prinsippinu er mjög mikilvægt að allir
sjúklingar hafi möguleika á að sækja
sér sálfræðiþjónustu, ekki aðeins
hinir efnameiri í okkar samfélagi.“
María Einisdóttir, framkvæmda-
stjóri geðsviðs Landspítalans, fagnar
því að frumvarp sem þetta komi til
kasta þingsins og segir það átt að hafa
litið dagsins ljós fyrir löngu síðan. „Við
þurfum sálfræðinga í skóla, heilsu-
gæsluna og nær fólki, ekki bara inni á
sjúkrahúsum, það vantar sálfræðinga
í forvarnarskyni,“ segir María.
sveinn@frettabladid.is
Þriðjungur þingmanna vill
að ríkið greiði sálfræðikostnað
Þingmenn munu þurfa að glíma við geðheilbrigðismál á komandi vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Barist fyrir þessu í mörg ár
„Mér líst afar vel á þessi frumvarpsdrög en við höfum barist fyrir þessu
í mjög mörg ár,“ segir Hrund Þrándardóttir, formaður Sálfræðingafélags
Íslands. „Ef frumvarpið nær fram að ganga er komið samræmi milli heil-
brigðisstarfsfólks. Það er í raun ótrúlegt að þjónusta sálfræðinga sé enn
undanskilin greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.“
„Það hefur orðið heilmikil þróun síðustu árin hvað varðar opna um-
ræðu um geðheilsu og geðvanda,“ segir Hrund. „Þjónustan er til staðar
en fólk hefur ekki aðgang að henni því kostnaðurinn er of mikill. En í
raun er sálfræðiþjónusta ekki dýrari en önnur úrræði. Sjúklingar bera
hins vegar allan kostnað hjá okkur sálfræðingum.“
Frumvarp í pípunum
um að SÍ taki þátt í
kostnaði við sálfræði-
meðferðir. Heilbrigðis-
ráðherra segir mikilvægt
að frumvarpið komi til
kasta þingsins.
2 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
6
-F
B
5
0
2
2
2
6
-F
A
1
4
2
2
2
6
-F
8
D
8
2
2
2
6
-F
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K