Fréttablaðið - 28.01.2019, Blaðsíða 2
Veður
Norðaustan 13-18 á Vestfjörðum
og við SA-ströndina, en hægari
vindur og breytileg átt annars
staðar. Víða snjókoma eða él og
frost 0 til 10 stig, kaldast í inn-
sveitum. SJÁ SÍÐU 22
Á hálum ís og kuldaboli bítur
Reykjavíkurtjörn er ísilögð þessa dagana og á bjartviðrisdögum sem þessum má iðulega sjá misvel dúðaða Reykvíkinga spóka sig um á ísnum.
Ísinn er ekkert á förum, svo mikið er víst, enda er spáð fimbulkulda á landinu öllu næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Akstur undir áhrifum vímuefna er
aldrei réttlætanlegur. Ökum allsgáð.
Minningarsjóður Lovísu Hrundar | lovisahrund.is
BLÖNDUÓS Heilbrigðisstofnun
Norðurlands (HSN) hlaut veglega
gjöf frá hollvinasamtökum sínum á
Blönduósi fyrir skömmu. Við hátíð-
lega athöfn afhentu hollvinasam-
tökin stofnuninni fullbúna aðstand-
endaíbúð að gjöf sem ætluð er sem
íverustaður aðstandenda langveikra
sjúklinga sem þurfa mikla viðveru á
Blönduósi.
Íbúðin, sem er fullbúin helstu
þægindum, er afhent í minningu
Sigursteins Guðmundssonar. Sigur-
steinn var læknir Austur-Húnvetn-
inga lengi.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
nær allt frá Húnavatnssýslum í vestri
til Langaness í austri og starfar því á
afar víðfeðmu svæði. Er þessi viðbót
því kærkomin fyrir bæði sjúklinga
og aðstandendur. – sa
Hollvinir gáfu
HSN nýja íbúð
á Blönduósi
STJÓRNSÝSLA Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur frestað réttaráhrifum
ákvörðunar Fiskistofu um að
hneppa Kleifaberg RE-70 í 12
vikna veiðistöðvun vegna meints
brottkasts afla við veiðar. Frestun
réttaráhrifa nær til 15. apríl næst-
komandi.
Það þýðir að Kleifabergið, sem
átti að fara í veiðibann frá 4. febrú-
ar, mun geta haldið áfram veiðum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun ný áhöfn fara um
borð annað kvöld og sigla norður í
Barentshaf en þar munu þeir veiða
á rúmum þrjátíu dögum um 1.200
tonn af þorski ásamt meðafla.
Þann fjórða janúar svipti Fiski-
stofa Kleifabergið veiðileyfi vegna
rannsóknar hennar á brottkasti.
„Þetta er niðurstaða sem liggur fyrir
í framhaldi af rannsókn sem fór af
stað í kjölfar upplýsinga sem komu
meðal annars fram í fréttaskýringa-
þættinum Kveik á RÚV,“ sagði Eyþór
Björnsson, forstjóri Fiskistofu, þegar
svipting veiðileyfisins var gerð opin-
ber í Fréttablaðinu.
Fiskistofa taldi að útgerðin hafi
haft ávinning af þessum brotum
með því að kasta fyrir borð fiski sem
annars tefði vinnslu um borð. „Eins
og atvikum er lýst verður að ganga
út frá því að um ásetningsbrot hafi
verið að ræða,“ segir í ákvörðuninni
og segja þeir miklu magni af fiski
hafa verið hent með vitund og eftir
fyrirmælum skipstjóra.
Þann tíunda janúar síðastliðinn
barst ráðuneytinu kæra Brims á
ákvörðun Fiskistofu. Meðal ann-
ars er í kærunni bent á að and-
mælaréttur fyrirtækisins hafi verið
brotinn gróflega af Fiskistofu og að
rannsókn stofnunarinnar hafi verið
ámælisverð.
Veiðileyfissvipting Fiskistofu er
talin hafa getað rýrt tekjur Brims
um milljarða og 12 vikna veiði-
stöðvun skipsins á þessum tíma
hefði þýtt um sjö milljóna króna
tekjumissi fyrir háseta á skipinu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var óánægja með að svo
stór ákvörðun Fiskistofu hafi verið
tekin án þess að rætt hafi verið
við forsvarsmenn skipsins og þeir
fengið að segja skoðun sína.
„Svipting á veiðileyfi er ekki tekin
út í loftið og er byggð á gögnum
málsins,“ segir Eyþór Björnsson,
forstjóri Fiskistofu. „Ákvörðun um
frestun réttaráhrifa veiðileyfasvipt-
ingarinnar er ákvörðun ráðuneytis-
ins og ég hef enga sérstaka skoðun á
henni.“ sveinn@frettabladid.is
Ráðuneytið hefur leyst
landfestar Kleifabergs
Réttaráhrifum veiðileyfasviptingu Kleifabergs RE-70 hefur verið frestað til
15. apríl næstkomandi á meðan unnið er úr kæru Brims á ákvörðun Fiskistofu.
Andmælaréttur fyrirtækisins ekki virtur. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi.
Fiskistofa taldi útgerðina hafa ávinning af brotunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eyþór Björnsson,
forstjóri Fiski-
stofu.
KJARAMÁL Samninganefndir í
kjaradeilu VR, Eflingar, Verkalýðs-
félags Akraness og Verkalýðsfélags
Grindavíkur við Samtök atvinnu-
lífsins munu funda þrisvar í vikunni
hjá ríkissáttasemjara. Formaður
VR segir að á döfinni séu mál sem
undirnefndir hafi lokið að ræða.
„Við erum að fara að renna yfir
hluti sem snúa ekki að stærstu
kröfum okkar. Þar má nefna veik-
indaréttinn og slysakaflann. Þetta
eru ekki stærstu bitbeinin heldur
mál sem undirhópar hafa vísað til
okkar til afgreiðslu,“ segir Ragnar
Þór Ingólfsson, formaður VR.
Eftir standa enn stærstu kröfur
félaganna fjögurra sem snúa meðal
annars að skattbreytingum, hús-
næðiskerfinu og launaliðnum. Í
liðinni viku voru hugmyndir verka-
lýðshreyfingarinnar um breytingar
á skattkerfinu kynntar.
„Viðbrögðin við þeim voru nokk-
uð fyrirsjáanleg. Við munum ræða
þær og húsnæðistillögurnar á vett-
vangi ASÍ óháð því hvort félög hafa
vísað deilunni til ríkissáttasemjara
eða ekki,“ segir Ragnar Þór.
Fundað verður í húsakynnum
sáttasemjara í dag og síðan aftur á
miðvikudag og föstudag. – jóe
Fundað þrisvar í vikunni
Frá fundi félaganna hjá ríkissátta-
semjara. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
6
-E
7
9
0
2
2
2
6
-E
6
5
4
2
2
2
6
-E
5
1
8
2
2
2
6
-E
3
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K