Fréttablaðið - 28.01.2019, Blaðsíða 47
Engin yfirlýsingagleði
Guardiola hefur jafnan gefið lítið
fyrir fernutal og steig venju sam-
kvæmt varlega til jarðar eftir leik-
inn á laugardaginn.
„Við erum komnir í úrslit í einni
keppni, viljum komast langt í bikar-
keppninni, koma á fullum krafti inn
í einvígið gegn Schalke og berjast
um Englandsmeistaratitilinn allt til
loka,“ sagði Spánverjinn. „Við þurf-
um að standa saman svo við getum
náð markmiðum okkar. Við viljum
alltaf spila vel og bæta okkur. Allir
vilja spila og við þurfum að leika vel
því andstæðingarnir eru sterkir.“
Þótt möguleikinn á að vinna fjór-
falt sé enn fyrir hendi er sagan ekki
með City í liði.
Ekkert enskt lið hefur unnið fjór-
falt og aðeins eitt lið hefur unnið
þrefalt; Manchester United tíma-
bilið 1998-99. Níu ár eru síðan lið
vann tvöfalt (deild og bikar); Chel-
sea 2009-10. Tíu ár eru síðan enskt
lið vann deild og Meistaradeild á
sama tímabili; United 2007-08. Og
það hefur aðeins fjórum sinnum
gerst að enskt lið vinni deild og
Meistaradeild á sama tímabili;
Liverpool 1976-77 og 1983-84 og
United 1998-99 og 2007-08.
Sean Dyche, knattspyrnustjóri
Burnley, er ekki í vafa um að City
geti orðið fyrsta enska liðið til að
vinna fjórfalt.
„Þeir eru með úrvals leikmenn og
eru svo beittir. Hver á stöðva þá í að
vinna allt þegar þeir eru í þessum
ham?“ sagði Dyche eftir leikinn á
laugardaginn. „Það er mjög erfitt
að eiga við lið sem spila svona. Þeir
eru með frábært lið og á svona degi
refsa þeir fyrir hver einustu mistök.“
Kapphlaupið við Liverpool
City hafði mikla yfirburði í ensku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili
og sló fjölmörg met á leið sinni að
fimmta Englandsmeistaratitlinum.
Keppnin um titilinn er mun
harðari í ár. City er aðeins með
sex stigum minna en á sama tíma
í fyrra en er samt fjórum stigum
frá toppsætinu. Liverpool hefur
átt frábært tímabil og aðeins tapað
einum leik; gegn City í byrjun árs.
Síðan þá hefur Liverpool unnið
tvo nauma sigra og heldur fjögurra
stiga forskoti. Rauði herinn stefnir
á fyrsta Englandsmeistaratitilinn í
29 ár og þarf að halda vel á spöð-
unum. City-menn eru til alls lík-
legir um þessar mundir og munu
gera allt til þess að verja Englands-
meistaratitilinn. Og vinna hina þrjá
titlana sem í boði eru.
ingvithor@frettabladid.is
Fernudraumur City-manna lifir enn
Manchester City hefur skorað mörk í bílförmum í síðustu leikjum sínum. City setti fimm á Burnley í ensku bikarkeppninni á laugardaginn. Hér fagna City-menn með Kevin De Bruyne eftir að Belginn kom liðinu í 3-0. NORDICPHOTOS/GETTY
Gabriel Jesus hefur
skorað átta mörk í síðustu
fimm leikjum sínum með
Manchester City.
Hver á stöðva þá í að
vinna allt þegar þeir
eru í þessum ham?
Sean Dyche, knatt-
spyrnustjóri
Burnley
Sögulegur sigur
hjá Djokovic
TENNIS Novak Djokovic sigraði
Rafael Nadal, 6-3, 6-2, 6-3, í úrslitum
Opna ástralska meistaramótsins í
tennis. Í kvennaflokki vann Naomi
Osaka Petru Kvitová, 7-6, 5-7, 6-4.
Þetta var sjöundi sigur Djokovic
á Opna ástralska en hann er orðinn
sigursælastur í sögu mótsins. Með
sigrinum um helgina tók Serbinn
fram úr Roy Emerson og Roger
Federer sem unnu Opna ástralska
sex sinnum hvor. Djokovic hefur nú
unnið þrjú risamót í röð og 15 alls.
Aðeins Federer (20) og Nadal (17)
hafa unnið fleiri risamót.
Osaka hefur nú unnið tvö risamót
í röð í kvennaflokki. Hún vann fræg-
an sigur á Serenu Williams í úrslita-
leik Opna bandaríska á síðasta ári
og fylgdi honum eftir með því að
vinna Opna ástralska. Hin 21 árs
gamla Osaka er sú fyrsta sem fylgir
sínum fyrsta sigri á risamóti eftir
með sigri á því næsta síðan Jennifer
Capriati afrekaði það árið 2001. – iþs
Novak Djokovic hefur unnið þrjú
risamót í röð. NORDICPHOTOS/GETTY
Eygló Ósk var
stigahæst á RIG
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir átti
stigahæsta sundið á Reykjavíkurleik-
unum. Sundkeppni leikanna lauk í
gærkvöldi. Kristinn Þórarinsson átti
stigahæsta sundið í karlaflokki. Um
400 sundmenn tóku þátt, þar af 180
erlendir frá sex löndum.
Eygló fékk 776 stig fyrir að vinna
100 metra baksund. Hún synti á
1:03,22 mínútu. Eygló hrósaði líka
sigri í 50 metra baksundi.
Kristinn fékk 773 stig fyrir sigur-
inn í 50 metra baksundi. Hann synti
á 26,19 sekúndum. Kristinn vann
alls til fernra verðlauna á Reykja-
víkurleikunum. – iþs
Tvenn verðlaun
til Íslendinga
BADMINTON Margrét Jóhannsdóttir
og Kristófer Darri Finnsson hrós-
uðu sigri í tvenndarleik í badmin-
ton-keppni Reykjavíkurleikanna. Í
úrslitaleiknum unnu þau Margrét og
Kristófer enskt par, 21-13 og 21-18.
Margrét keppti einnig í úrslitum í
tvíliðaleik með Sigríði Árnadóttur.
Þær lutu í lægra haldi fyrir pari frá
Englandi, 23-21 og 21-18.
Í einliðaleik karla varð Daninn
Mikkel Enghøj hlutskarpastur. Í
kvennaflokki hrósaði hin enska
Abigail Holden sigri. Í tvíliðaleik
karla komu sigurvegararnir frá
Portúgal. – iþs
Eygló Ósk vann tvö gull á Reykja-
víkurleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M Á N U D A G U R 2 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
ÖLL
BRAUÐ Á
25%
AFSLÆTTI
ALLA
MÁNUDAGA
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
PREN
TU
N
.IS
www.bjornsbakari.is
2
8
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
7
-1
D
E
0
2
2
2
7
-1
C
A
4
2
2
2
7
-1
B
6
8
2
2
2
7
-1
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K