Fréttablaðið - 28.01.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 3 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 2 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Guðmundur Stein-
grímsson skrifar um áfengi. 11
SPORT Danir heimsmeistarar
karla í handbolta í fyrsta sinn. 16
MENNING Þegar Challenger-slys-
ið breytti ásýnd geimferða. 20
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Allt fyrir
afmælið!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
7
1
1
0
3
0
Betolvex
B-12
Fæst án
lyfseðils
HEILBRIGÐISMÁL Rúmlega 20 þing-
menn munu leggja fram frumvarp
á Alþingi um að almenn sálfræði-
þjónusta falli undir greiðsluþátt-
tökukerfi Sjúkratrygginga Íslands.
Breið samstaða er um málið en
aðilar úr nánast öllum stjórnmála-
hreyfingum á þingi eru flutnings-
menn tillögunnar. „Gráupplagt
og eitthvað sem hefði átt að gerast
fyrir löngu síðan,“ segir María Einis-
dóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs
Landspítalans.
Í frumvarpsdrögunum segir að
eitt höfuðmarkmiðið sé að tryggja
aðgengi einstaklinga að sálfræði-
þjónustu. Aðgengi að sálfræði-
þjónustu sé lykilatriði þegar kemur
að því að greina kvilla snemma og
tryggja nauðsynlega meðferð.
Forvarnargildið skiptir miklu
máli. Við þurfum sálfræðinga í
skóla, heilsugæsluna og nær fólki,
ekki bara inni á sjúkrahúsum, það
vantar sálfræðinga í forvarnar-
skyni,“ segir María. „Þegar fólk er
að koma á deildina til mín, sem er
svokölluð þriðju línu þjónusta, þá
hugsar maður oft með sér hvað það
hefði verið betra ef brugðist hefði
verið fyrr við.“
Ólíkt annarri heilbrigðisþjónustu
er sálfræðiþjónusta fyrst og fremst
í boði á starfsstofum sjálfstætt
starfandi sálfræðinga, án opinbers
stuðnings við þá sem þurfa á þjón-
ustunni að halda. Flutningsmenn
tillögunnar telja einmitt ekki hægt
í núverandi ástandi að fólk fari ekki
til sálfræðings vegna þess að það sé
hreinlega of dýrt.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
er ein þeirra sem hefur keyrt málið
áfram og fengið að tillögunni þing-
menn úr nánast öllum flokkum.
Hún segir mikilvægt að um málið
sé breið samstaða til að það náist í
gegn, landsmönnum öllum til heilla.
„Með þessu frumvarpi erum við
að horfa til nútímans. Það á að vera
jafngilt að leita sér lækninga hvort
sem það er fyrir andleg veikindi eða
líkamleg. Þess vegna viljum við fella
sálfræðiþjónustu undir greiðslu-
þátttökukerfið,“ segir Þorgerður
Katrín.
Líklegt þykir að málið komi til
kasta þingsins innan skamms. Verði
frumvarpið að lögum myndi það að
líkindum þýða nokkurn kostnaðar-
auka fyrir þjóðfélagið. Það kemur
fram í greinargerð með frumvarpinu
að ekki sé búið að kostnaðarmeta
frumvarpið. – sa / sjá síðu 4
Vilja að sálfræðiþjónusta verði niðurgreidd
21 þingmaður hefur nú þegar ákveðið að verða flutningsmaður lagabreytingartillögu þess efnis að sjúkratryggingar taki þátt í
greiðslu sálfræðimeðferða. Framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala segir upplagt og sannarlega tímabært að ráðast í verkefnið.
Gráupplagt og
eitthvað sem hefði
átt að gerast fyrir löngu síðan
María Einisdóttir,
framkvæmdastjóri
geðsviðs Land-
spítala
Stærsti rafíþróttaviðburður Íslands frá upphafi fór fram á Reykjavíkurleikunum um helgina. Meistaraviðureign liðanna
Glanni Tæpur, sem er á meðfylgjandi mynd, og Frost í leiknum League of Legends var æsispennandi. Glanni Tæpur bar
sigur úr býtum og mun því taka þátt í meistarakeppni Norðurlandanna í leiknum League of Legends. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fleiri myndir frá Reykjavíkurleikunum er að finna
á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í
Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
LÍFIÐ Erpur
Eyvindar-
son tekur
vegaúnar
föstum
tökum. 26
PLÚS 3 SÉRBLÖÐ l FÓLK
l FASTEIGNIR l HJARTAÐ ÞITT
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
TRÚMÁL Á árunum 2013-17 greiddi
Þjóðkirkjan prestum tæplega 620
milljónir króna í rekstrarkostnað
vegna prestsembætta. Langstærstan
hluta þeirrar upphæðar, 317 milljón-
ir króna rúmar, má rekja til bifreiða-
styrks. Þetta bætist við laun presta og
prófasta sem ákveðin voru af kjara-
ráði. Þau eru á bilinu 768 þúsund til
rúmrar milljónar eftir fjölda sóknar-
barna. – jóe / sjá síðu 6
620 milljónir
í rekstur
prestsembætta
317
milljónir króna má rekja til
bifreiðastyrks
2
8
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
6
-E
2
A
0
2
2
2
6
-E
1
6
4
2
2
2
6
-E
0
2
8
2
2
2
6
-D
E
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K