Fréttablaðið - 07.02.2019, Side 2
Veður
Norðaustan 8-15 og él, en léttskýjað
S-lands. Bætir í vind SA-til í kvöld og
líkur á éljum allra syðst. Frost 0 til 9
stig, mildast syðst. SJÁ SÍÐU 30
Gullið fægt fyrir Safnanótt
TRÚFÉLÖG Kostnaður við bygg-
ingu ásatrúarhofsins í Öskjuhlíð
er kominn langt fram úr áætlun og
skoðar félagið nú nýstárlegar leiðir
til fjáröflunar fyrir lokasprett fram-
kvæmdanna. Allsherjargoði segir
hópfjármögnunarherferð í undir-
búningi til að komast hjá skuld-
setningu. Vonast er til að safna að
minnsta kosti 18 milljónum króna
með þessu móti.
„Það er svo mikið af fólki búið að
hafa samband og vill fá að vita hvort
það geti styrkt þetta á einhvern
hátt,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði spurður út í málið.
„Við höfum verið að reyna að
finna þessu farveg þannig að við
séum ekki með betlistafinn heldur
frekar að þetta sé eitthvað þar sem
fólk er að fá eitthvað á móti,“ segir
Hilmar Örn og segir að verið sé að
hanna einhverja pakka sem bæði
henta þeim sem gefa lítið og þeim
sem hafa viljað gefa meira. Hópfjár-
mögnunarsíður á borð við Karolina
Fund bjóða velunnurum oft fríð-
indi eða eitthvað annað í staðinn
fyrir styrkveitinguna. Ekki er búið
að ákveða hvort Karolina Fund eða
annar sambærilegur vettvangur
verður fyrir valinu.
„Við höfum verið að skoða alla
möguleika. Maður vill geta gert
þetta með ákveðinni reisn.“
Hingað til hefur verkefnið verið
fjármagnað alfarið af félagsmönn-
um og því fé sem félagið hefur
safnað. En Ásatrúarfélagið er ekki
ónæmt fyrir hættunni á framúr-
keyrslu í framkvæmdum, frekar en
aðrir.
„Við höfum lent í, eins og virðist
vera með hverja einustu byggingu
á Íslandi, að fara langt fram yfir
áætlun. Upprunaleg áætlun upp á
127 milljónir er löngu sprungin,“
segir Hilmar Örn. Í dag áætlar hann
að þurfi 270 milljónir til að klára
verkið.
Á lögréttufundi þann 12. desemb-
er kom fram að fjárhagsstaða félags-
ins væri betri nú en undanfarna
mánuði og hægt hafi verið að standa
við allar skuldbindingar félagsins
og hofkostnað án þess að það bitni
á félagsstarfseminni. Nokkuð sem
Hilmar segir að sé góðu fólki að
þakka.
„Við höfum ekki enn þurft að taka
bankalán og við viljum sjá hvað við
getum lagt til sjálf og með þessu
átaki. Upprunalega hugmyndin
var að gera þetta skuldlaust og við
þrjóskumst við enn þá.“
Hilmar segir bjartsýnustu spár
gera ráð fyrir verklokum í desember,
vonir standi þó til að koma félags-
starfinu inn í bygginguna í haust en
smíði hvelfingar hofsins sé óvissu-
þáttur. mikael@frettabladid.is
Hyggjast hópfjármagna
hof eftir framúrkeyrslu
Bygging hofs Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíð er komin fram úr áætlun og mun
kosta ríflega 140 milljónum meira en til stóð. Hópfjármögnun skoðuð til að
ljúka verkinu en allsherjargoði hefur ávallt vonað að hofið rísi skuldlaust.
Ásatrúarfélaginu var úthlutuð lóð í Öskjuhlíð árið 2006 en tíu árum síðar
hófust framkvæmdir. Svona var staðan í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Við höfum lent í,
eins og virðist vera
með hverja einustu byggingu
á Íslandi, að fara langt fram
yfir áætlun.
Hilmar Örn
Hilmarsson
allsherjargoði
Gul Gata
Sagarblöð
í miklu
úrvali
skerpingehf.is þjónusta við tré- og málmiðnað í 36 ár
Safnanótt verður opnuð klukkan 18 á morgun í Seðlabankanum. Sýningin verður helguð sparnaði fyrr og nú auk sýninga á völdum málverkum bankans.
Meðal sýningargripa verður gull í ýmsu formi og gefst gestum kostur á að lyfta gullstöng sem verður til sýnis í fyrsta sinn. Aðeins lítið hlutfall gjaldeyrisvara
forða Seðlabankans er í formi gulls en gulleign bankans var um 64 þúsund únsur í árslok 2018 og er metin á 10 milljarða króna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
STJÓRNMÁL Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra útilokar ekki
breytingar á fjölmiðlafrumvarpi sem
hún kynnti fyrir viku og felur í sér
ríkisstyrki til sjálfstæðra fjölmiðla.
Nú er skoðað að fella einnig niður
tryggingagjald á launakostnað rit-
stjórna sjálfstæðra miðla, líkt og Óli
Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, lagði til í Morgunblaðinu í
gær.
Tryggingagjald er gjald sem launa-
greiðendum ber að greiða af heildar-
launum launamanna. Hlutfallið er
6,6 prósent. „Ég útiloka ekki frekari
stuðning við einkarekna fjölmiðla.
Frumvarpið er heillaskref. Það
tekur mið af því besta sem gerist á
Norðurlöndum og er viðurkenning
á vandanum sem einkareknir fjöl-
miðlar glíma við, en það er eins og
með önnur frumvörp að þau taka
oft breytingum í samráðsferli,“ segir
Lilja. Áfram verði unnið að því að
rétta stöðu sjálfstæðra fjölmiðla. „Ég
hef sagt að þetta sé ágætis byrjun.
Ég er opin fyrir öllum góðum hug-
myndum.“
Þingmenn innan Sjálfstæðis-
flokks hafa gert athugasemdir við
frumvarpið og gagnrýnt að ekkert
sé tekið á umfangi RÚV á auglýs-
ingamarkaði. Óli Björn sagðist enn
fremur andvígur því að komið yrði
á fót „millifærslu- og styrktarsjóði til
að styðja við sjálfstæða fjölmiðla,“ í
grein sinni og segir ríkisstyrkina
sem lagðir eru til í frumvarpinu,
sem liggur í samráðsgáttinni og er
opið til umsagnar, verstu leiðina til
að styrkja einkarekna miðla. Fleiri
þingmenn flokksins hafa efasemdir
um fyrirkomulagið. Aðgerð af þessu
tagi gæti skapað meiri sátt um málið
meðal stjórnarliða. – ósk
Stjórnin skoðar
frekari aðgerðir
fyrir fjölmiðla
Lilja Alfreðsdóttir
menntamála
ráðherra.
STJÓRNMÁL Fundur hefst í umhverf-
is- og samgöngunefnd klukkan
9 í dag án þess að lausn hafi verið
fundin á formannskrísu nefndar-
innar. Samkvæmt dagskrá á að ræða
starfið fram undan og önnur mál en
búist er við að kosið verði um nýjan
formann strax og fundur hefst.
Ekki liggur fyrir hvernig línurnar
liggja í nefndinni og því ekki ljóst
hvort hefur stuðning; Jón Gunnars-
son eða Hanna Katrín Friðriksson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir mun
að sögn fylgja minnihlutanum að
málum en ekki er enn ljóst hvern
Bergþór Ólason, formaður nefndar-
innar, styður í formannssæti og ekki
gefið að hann fylgi meirihlutanum
þrátt fyrir að hafa staðið varafor-
mannsembættið til boða.
Mikið mæðir á nefndarmönnum
í dag því einnig á að ljúka umræðu
um samgönguáætlun í þinginu í dag
og greiða um hana atkvæði. – aá
Samgöngunefnd
boðuð til fundar
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-6
8
7
0
2
2
4
2
-6
7
3
4
2
2
4
2
-6
5
F
8
2
2
4
2
-6
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K