Fréttablaðið - 07.02.2019, Síða 32
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Línan er framleidd undir merkjum Drew House. Broskallar eru í
merki Drew á bolum og
hettupeysum. Litirnir
eru gulir og ljósbrúnir.
Frá því var greint í
nóvember að Justin
hefði hug á að setja
á markað eigið
fatamerki. Nafnið
Drew sækir
hann í sitt eigið
nafn þar sem
það er millinafn
hans. Hönnunin
hefur staðið yfir
í eitt ár en hefur
loksins litið dagsins
ljós. Fötin komu í
takmörkuðu upplagi
og aðeins í Los Angeles í
Bandaríkjunum. Þau henta
fyrir bæði kynin og kosta frá 48
dollurum fyrir bol sem er um
5.800 krónur upp í 148 dollara
fyrir buxur eða 17.800 krónur.
Allar vörurnar sem komu fyrst á
markað eru uppseldar samkvæmt
heimasíðu Drew House.
Justin Bieber og eiginkona hans,
Hailey Bieber fyrirsæta, hafa verið
dugleg að setja innlegg á Instagram
um fatalínuna. Justin klæddist
lengi vel íslenskri hönnun frá
Inklaw Clothing, 66°North og JÖR.
Kannski hann hafi fengið einhvers
konar hugmyndaljómun í íslensku
fötunum. Bieber hefur alltaf verið
hrifinn af frjálslegum fatnaði.
Bieber er langt í frá sá eini frægi
sem hefur hannað tískulínu. Það
virðist reyndar vera í tísku um
þessar mundir að koma með eigin
hönnun á markað. Rihanna hefur
nýlega sent frá sér nýtt fatamerki
sem hefur verið vel tekið, Nicki
Minaj gerði tískulínu fyrir Kmart
árið 2013 og er þá aðeins lítið brot
nefnt af því fræga fólki sem hefur
komið nálægt tískuheiminum. Svo
má ekki gleyma Victoriu Beck-
ham sem einu sinni gerði garðinn
frægan með Spice Girls en er nú
einn af vinsælustu tískuhönnuðum
heimsins.
Bieber verður 25 ára þann
1. mars næstkomandi en var
aðeins 14 ára þegar hann var upp-
götvaður og er fyrsta alþjóðlega
stjarnan sem til verður á YouTube.
Fatalína Biebers
seldist strax upp
Justin Bieber hefur gengið í bros-
kallabol eftir sjálfan sig síðan í haust.
Nýja línan sem Justin Bieber
hannaði seldist upp í hvelli
þótt fötin séu ekki ódýr.
Stuttbuxur Biebers fyrir þá sem þora.
Poppstjarnan deildi þessari
á Instagram-síðu sinni.
Söngvarinn Justin
Bieber hefur
hannað sportleg-
an klæðnað undir
merkinu Drew.
Fötin hafa slegið
í gegn hjá unga
fólkinu þótt verð-
miðinn sé í hærra
lagi. Fötin eru í
anda söngvarans,
víð og frjálsleg.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt, fyrir
flottar konur
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
FRÁBÆR
útsölulok
60–80%
afsláttur
Gerið góð kaup á fallegri vöru á frábæru verði
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-6
D
6
0
2
2
4
2
-6
C
2
4
2
2
4
2
-6
A
E
8
2
2
4
2
-6
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K