Fréttablaðið - 07.02.2019, Side 36
Jeanetta Friis
Madsen og
Thora Valdi-
marsdottir
vöktu athygli
á tískuvikunni
í Kaupmanna-
höfn.
Hefur þú heyrt um tískumerk-ið Rotate Birger Christensen? Ef svarið er nei ættir þú að
gefa því gaum, segir á tískusíðum
norska vefmiðilsins VG. Bent er á
tískuvikuna í Kaupmannahöfn sem
fram fór í lok janúar. Þar var meðal
annars sýnd tískulína undir þessu
nafni en hönnuðir eru Jeanetta Friis
Madsen og Thora Valdimarsdottir.
Það er gaman að geta þess að
Thora er af íslenskum ættum en
hefur verið búsett í Danmörku frá
fjögurra ára aldri. Þóra, eins og hún
heitir á íslensku, hefur gert garðinn
frægan í tískuheiminum í Dan-
mörku og í London. Rotate-merkið
kom fyrst á markað í fyrra og hafa
fötin náð miklum vinsældum. Hægt
er að skoða úrvalið á vefversluninni
rotatebirgerchristensen.com
Þóra stundaði á sínum tíma nám
í tískuviðskiptafræði við University
of the Arts London. Um tíma starf-
aði hún sem aðstoðartískuritstjóri
danska tímaritsins Costume.
Íslenskur fatahönnuður vekur athygli
Við kjólinn var Katrín í svörtum
sokkabuxum og skóm frá L.K.Bennett.
Nokkrir aðdáendur bresku konungsfjölskyldunnar voru eitthvað ósáttir við kjólaval
Katrínar Middleton þegar hún birtist
í heimsókn í barnaskóla í kjól frá
Eponine London sem virtist setja
í brýnnar. Katrín kom í Lavender-
skólann í Enfield-hverfinu í London
til að taka þátt í heilsuviku sem
nú stendur yfir í breskum skólum.
Kjóllinn kostar rúmlega 300 þúsund
krónur og þykir einstaklega glæsi-
legur eins og flest allt sem kemur frá
Eponine London. Við kjólinn var
hún í svörtum sokkabuxum og skóm
frá L.K.Bennett, sem kallast Marissa
Black Suede Ankle Boots og kosta 31
þúsund krónur. Handtaskan var frá
Mulberry.
En þegar Katrín steig út úr bílnum
virtust krumpurnar í kjólnum búa
til svip svo eftir var tekið. Aðdá-
endur konungsfjölskyldunnar tístu,
fóru á Facebook og jafnvel skrifuðu
ummæli á Instagram-síðu Kensing-
ton-hallarinnar um kjólinn og
svipinn sem hann bauð upp á.
Sumir vildu meira að segja meina
að hertogaynjan væri að senda dulin
skilaboð og fýlukjóllinn væri alls
engin tilviljun. Hún væri augljós-
lega að senda skilaboð til Meghan,
svilkonu sinnar, en innanbúðar-
menn innan konungsfjölskyldunnar
segja ansi stirt á milli þeirra. Hvort
sem það er rétt eða ekki var Katrín
hin glæsilegasta og sló í gegn meðal
barnanna.
Kjóllinn setti
í brýnnar
Heilbrigðar varir eru til prýði.
Það er frost í kortunum næstu daga og það þýðir aukið álag á varirnar. Ískalt loft, nístandi
vindar og svo upphitað húsnæði geta
gert varirnar þurrar og skorpnar og
um leið minna kyssilegar en ella.
Þegar við kappklæðum okkur til að
verjast vetrarhörkunum er munnur-
inn oftast ber og óvarinn.
l Ekki sleikja varirnar. Það getur haft
þveröfug áhrif og gert illt verra. +
Notið feitt varasmyrsl á sprungnar
varir. Það heldur rakanum inni og
lagfærir skurði og rifur.
l Forðist varasalva sem innihalda
kamfóru, júkalyptus og mentól.
Þau efni þurrka varirnar og víta-
hringur skapast þegar borið er
meira af salvanum á varirnar.
l Forðist að bursta eða nudda flagn-
aðar varir því slíkt getur valdið
sárum. Notið heldur feitt vara-
smyrsl til að mýkja varirnar og gera
þær heilar á ný.
l Meðhöndlið sprungnar og þurrar
varir strax.
Mjúkur koss á
Vetur konung
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
4 réttir + súpa dagsins
aðeins 1.790 kr.*
NAUTAKJÖT Í OSTRUSÓSU
KJÚKLINGUR Í KARRÝSÓSU
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU
NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI
*tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum.
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
2
-8
6
1
0
2
2
4
2
-8
4
D
4
2
2
4
2
-8
3
9
8
2
2
4
2
-8
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K