Fréttablaðið - 07.02.2019, Page 44
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Helgu Guðmundsdóttur
frá Akureyri.
sem lést 18. janúar. Sérstakar
þakkir færum við starfsfólki Eini- og Grenihlíðar á
hjúkrunarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun og hlýju.
Guðmundur Svansson
Hafberg Svansson
Ólafur Svansson
Svanhildur Indíana Svansdóttir
og fjölskyldur.
Bróðir minn,
Ari Friðfinnsson
frá Baugaseli,
Eiðsvallagötu 30, Akureyri,
lést 27. janúar. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju mánudaginn
11. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á öldrunarheimilið Hlíð.
Ingimar Friðfinnsson og aðrir aðstandendur.
Elsku eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Stella Þorbjörg
Steindórsdóttir
Safamýri 71,
lést á heimili sínu 1. febrúar sl. Útför
fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kristinn Sæmundsson
Ingvar Kristinsson Sólveig Guðlaugsdóttir
Sæmundur Kristinsson
Stella Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hafsteinn Sigurjónsson
múrari,
lést miðvikudaginn 30. janúar 2019 á
hjúkrunarheimilinu Grund. Útför hans
fer fram frá Dómkirkju Krists konungs,
Landakoti, miðvikudaginn 13. febrúar
kl. 13.00. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Grundar fyrir góða
umönnun og hlýju.
Ólöf G. Hafsteinsdóttir Ásgrímur L. Ásgrímsson
Sólveig S. Hafsteinsdóttir Rannver H. Hannesson
Jórunn I. Hafsteinsdóttir Ólafur G. Magnússon
Marteinn Már Hafsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Hilmar Gunnlaugsson
prentari,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
30. jan. Útförin fer fram frá Kópavogs-
kirkju mánudaginn 11. febrúar kl. 15.
Innilegar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar fyrir góða
þjónustu og hlýlegt viðmót.
Gunnlaugur Hilmarsson Reyndís Harðardóttir
Þorkell Svarfdal Hilmarsson Hrafnhildur Hartmannsd.
Gunnar Þór Hilmarsson
Hilmar Hilmarsson
Marta Þ. Hilmarsdóttir Vermundur Á. Þórðarson
Hildur María Hilmarsdóttir Þórarinn Þorfinnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásta Sigmarsdóttir
lést að morgni 29. janúar á
hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð,
Akureyri. Útför hennar verður gerð frá
Akureyrarkirkju föstudaginn
8. febrúar kl. 13.30.
Sveinn Bjarnason Alda Benediktsdóttir
Björg Bjarnadóttir
Sigmar Bergvin Bjarnason Þóra Berg Jónsdóttir
Alma Bjarnadóttir Perrone Antonio Perrone
Bjarni Bjarnason Margrét Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Tuttugu ár eru í dag liðin frá því Hussein Jórdaníu-konungur lést úr krabba-meini og Abdúlla krónprins settist á hásætið fræga. Á þessum tuttugu árum hefur
Jórdanía gengið í gegnum góðæri og
hrun, og ófriður geisað allt í kring.
Þótt Abdúlla hafi tekið við sem kon-
ungur þann 7. febrúar 1999 var hann
ekki krýndur fyrr en 9. júní. Um 800
erindrekar ýmissa ríkja sóttu veislu af
því tilefni í Raghadan-höllinni. Og þótt
Abdúlla hafi verið nýkrýndur konungur
má segja að Rania drottning hafi vakið
mesta athygli. Hún var á þeim tíma 29
ára, yngsta drottning heims.
Sem konungur Jórdaníu er Abdúlla
ekki einvaldur heldur fara þingið og
ríkisstjórnin með þó nokkur völd. Kon-
ungurinn er þó þjóðhöfðingi, æðsti yfir-
maður hersins og hefur töluverð áhrif á
gang mála í jórdanska stjórnkerfinu.
Þegar Abdúlla tók við völdum var hag-
kerfi Jórdaníu illa statt vegna Persaflóa-
stríðsins. Efasemdir voru um að hinn nýi
konungur væri í stakk búinn til að takast
á við það erfiða verkefni að endurreisa
hagkerfið, að því er kom fram í grein í
Economist í febrúar 1991.
Abdúlla kom á töluverðum breyting-
um á jórdanska hagkerfinu. Fækkaði
reglugerðum og jók frelsi. Það leiddi til
þess að fjárfestar litu í auknum mæli til
Jórdaníu og var hagvöxtur allt að átta
prósent á milli 2004 og 2008. En þessi
vöxtur gekk til baka við hrunið 2008 og
óstöðugleika sem fylgdi Arabíska vorinu.
Í raun setti Persaflóastríðið mark
sitt að miklu leyti á fyrstu ár Abdúlla í
embætti. Hussein hafði neitað þátttöku
og álitu Vesturlönd þá afstöðu eigin-
legan stuðning við Saddam Hussein,
einræðisherrann í Írak. Þessari afstöðu
sneri Abdúlla við þegar ráðist var inn í
Írak árið 2003. Abdúlla heimilaði Banda-
ríkjamönnum til að mynda að setja upp
eldflaugakerfi í Jórdaníu en tók ekki þátt
að öðru leyti. Jórdanía átti svo eftir að
hýsa um 800.000 írakska flóttamenn.
Líkt og annars staðar í arabaheim-
inum létu mótmælendur í sér heyra
um Arabíska vorið. Eftir röð mótmæla
vegna versnandi efnahagsstöðu og jafn-
vel áköll um að lýðveldi yrði stofnað
ákvað Abdúlla að sparka ríkisstjórninni
og skipa Marouf Bakhit nýjan forsætis-
ráðherra árið 2011. Mótmæli héldu hins
vegar áfram og Abdúlla skipti aftur um
forsætisráðherra vegna þess hversu illa
honum þótti ganga að koma á umbót-
um. Awn Khasawneh varð forsætisráð-
herra. Þó ekki lengi, Fayez Tarawneh tók
við skömmu síðar í starfsstjórn í þriðju
uppstokkuninni á einu og hálfu ári.
Með kosningum í janúar 2013 tókst
svo að lægja mótmælaöldurnar að
mestu. Konungssinnar höfðu betur,
enda sniðgengu andstæðingar kosning-
arnar. Lýðræðisumbótum var komið á,
vægi atkvæða jafnað og dregið úr mið-
stýringu í jórdönsku stjórnkerfi.
Þrátt fyrir áköll um stofnun lýðveldis,
stríð í grannríkjum, mótmæli og efna-
hagshrun situr Abdúlla sem fastast.
Hann er í þriðja sæti á listanum yfir þá
leiðtoga arabaheimsins sem lengst hafa
setið. thorgnyr@frettabladid.is
Abdúlla verið konungur
Jórdaníu í tuttugu ár
Abdúlla hefur verið konungur Jórdaníu í 20 ár. Gengið hefur á ýmsu frá því hann tók við
því embætti. Góðæri, hrun, stríð og Arabíska vorið hafa einkennt valdatíð hans. Þrátt
fyrir kröfur um stofnun lýðveldis situr Abdúlla enn sem fastast og virðist ekki á útleið.
Abdúlla konungur Jórdaníu og hin vinsæla Rania drottning sitja fyrir eftir krýningarathöfnina í júní árið 1999. NORDICPHOTOS/AFP
1301 Játvarður annar verður fyrsti prinsinn af Wales.
1613 Mikael Romanov verður Rússakeisari.
1821 John Davis sagður hafa stigið á Suðurskautslandið
fyrstur manna.
1898 Émile Zola dreginn fyrir dóm fyrir greinina „Ég ákæri“.
1900 Breski Verkamannaflokkurinn stofnaður.
1904 Yfir 1.500 hús brenna í Baltimore.
1942 Húsmæðraskóli Reykjavíkur tekur til starfa.
1964 Bítlarnir koma fyrst til Bandaríkjanna.
1971 Siglingafélag Reykjavíkur stofnað.
1971 Konur fá kosningarétt í Sviss.
1974 Grenada fær sjálfstæði.
1986 Jean-Claude Duvalier flýr Haítí.
1992 Maastricht-samningurinn undirritaður.
Merkisatburðir
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
2
-9
4
E
0
2
2
4
2
-9
3
A
4
2
2
4
2
-9
2
6
8
2
2
4
2
-9
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K