Fréttablaðið - 07.02.2019, Qupperneq 50
BÍLAR
Hlaut yfirburðasigur
í valinu og aksturs-
ánægja var helsta
ástæðan, sem og
rými og sá öryggis-
búnaður sem er stað-
albúnaður í bílnum.
Ford Focus fékk 187 stig í vali á bíl ársins í Danmörku og vann því öruggan sigur. Hann var með 55 fleiri stig en bíllinn sem varð í öðru
sæti. Ford Focus er sérstaklega lof-
samaður fyrir aksturseiginleika,
hann er bíll fyrir þá sem hafa gaman
af því að keyra en það er nokkuð
sem Focus hefur verið þekktur fyrir
í gegnum tíðina. Ford Focus skoraði
einnig hátt varðandi öryggi enda vel
búinn er það varðar, vélatækni fékk
einnig mikið lof enda eru vélarnar
sérlega spar neytnar en skemmti-
lega öflugar. Verðið er einnig mjög
hagstætt, sérstaklega þegar tekið
er tillit til ríkulegs búnaðar. Þetta
er í áttunda sinn sem Ford vinnur
þessi verðlaun í Danmörku. Til
gamans má geta að það var Ford
Capri sem vann þau þegar þau voru
veitt í fyrsta sinn árið 1969 og fyrir
nákvæmlega 20 árum, árið 1999,
vann Ford Focus bíllinn þegar hann
var fyrst kynntur á markað verð-
launin Bíll ársins í Danmörku.
Akstursánægjan umfram allt
Ford Focus hefur alla tíð frá 1998
verið þekktur fyrir að gefa við-
skiptavinum sínum hagkvæman
fjölskyldubíl þar sem þægindi og
akstursánægja ná hærra stigi en
aðrir bílar í sama flokki. Spurt út í
ástæðu þess að Focus hefði unnið
var svarið þetta: „Það er enginn
vafi að það er akstursánægjan. Og
að fólk fær bíl sem gefur því bros
á vör þegar það sest undir stýri.
Hann er á sama tíma orðinn pláss-
betri og fullt af nýjum eiginleikum í
bílnum, og síðast en ekki síst mikil-
vægir öryggisþættir sem eru staðal-
búnaður eins og til dæmis sjálfvirk
neyðarhemlun, veglínuskynjari og
umferðarskiltalesari. Þetta gefur
Ford Focus margar stjörnur. Þar að
auki er pláss fyrir alla fjölskylduna
og gott hleðslupláss. Í Focus er allt
það besta sem er á markaðnum
núna.“ Alveg nýr Ford Focus er allra
glæsilegasti Ford Focus bíllinn til
þessa og hefur fengið frábæra dóma
úti um allan heim.
Hönnun með tilgang
Alveg nýr Ford Focus hefur sportlegt
ytra útlit, er sérlega rúmgóður að
innan og vel búinn. Sérhver þáttur
er hannaður til að gera akstursupp-
lifunina enn ánægjulegri. Flottur stíll
og fyrsta flokks gæði haldast í hend-
ur við gott skipulag því öll stjórntæki
eru í seilingarfjarlægð. Hönnuðir
Ford hafa séð til þess að hvert smá-
atriði er úthugsað. Vélatækni gegnir
lykilhlutverki í Focus. Hún hjálpar
við að draga úr rekstrarkostnaði og
losun en skilar á sama tíma krafti
og góðum afköstum. Allar vélarnar
búa yfir Auto-Start-Stop búnaði og
standast einnig kröfur Euro 6 los-
unarstaðlanna. Ford Focus fæst hjá
Brimborg og kostar frá 3.190.000 kr.
Ford Focus valinn bíll ársins
í Danmörku fyrir árið 2019
Ford Focus fékk algjöra toppeinkunn hjá bílablaðamönnum í Danmörku og hann hafði afgerandi sigur í valinu á bíl ársins þar í landi.
Þau tímamót urðu í
janúar að afhentir voru
93 hreinir rafbílar frá
BL og hafa aldrei áður
verið afhentir jafn
margir í einum mánuði.
Alls voru 976 fólks- og sendi-bílar nýskráðir hér á landi í janúar, 45,9% færri en í sama
mánuði 2018 sem jafnframt var
metmánuður í sögulegu samhengi,
með alls 1.805 nýskráningar. Af
merkjum BL voru skráðir 345 bílar
í nýliðnum janúar og var markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins í heild
35,3%. Þar af námu viðskipti ein-
staklinga, einyrkja og fyrirtækja án
bílaleiga við BL 33,3% sem er veru-
leg hlutfallsstyrking. Þau tímamót
urðu í janúar að afhentir voru 93
hreinir rafbílar frá BL og hafa aldrei
áður verið afhentir jafn margir slíkir
bílar í einum mánuði.
Langsöluhæsta merki BL í
janúar var Nissan sem alls 102 við-
skiptavinir fengu afhenta. Í rúm-
lega helmingi tilfella var um að
ræða hreina rafbíla, 49 Leaf og 8
sendi- og farþegabíla af gerðinni
Nissan e-NV200. Næstsöluhæsta
merki BL í janúar var Dacia með
73 nýskráningar og síðan Hyundai
með 68 bíla. Alls voru 40 lúxusbílar
nýskráðir frá BMW, Jaguar, Land
Rover og Mini.
Aldrei hafa verið afhentir eins
margir hreinir rafbílar hér á landi
í einum mánuði og í janúar síðast-
liðnum þegar 93 bílar frá BL voru
afhentir auk 12 tengiltvinnbíla.
Rafbílarnir voru eins og áður segir
57 frá Nissan, en einnig voru 25
Hyundai Kona og Ioniq afhentir,
auk bíla frá Renault og BMW.
Tengil tvinnbílarnir voru alls tólf
frá Jaguar Land Rover, Hyundai,
BMW og Mini. Síðar í þessum mán-
uði bætist rafknúni vetnisbíllinn
Hyundai Nexo í flóruna, en hann
verður kynntur formlega laugar-
daginn 16. febrúar milli kl. 12 og
16 ásamt öðrum rafvæddum bílum
Hyundai á Íslandi.
Bílaleigurnar nýskráðu 271 bíl í
janúar, 203 færri en í sama mánuði
í fyrra þegar þeir voru 474. Hlut-
fall nýrra bílaleigubíla í heildar-
skráningum fólks- og sendibíla í
nýliðnum mánuði var 38,4%.
Stærsti sölumánuður
hreinna rafbíla
Í janúar fóru 93 hreinir rafbílar frá BL.
Þetta er í fyrsta sinn sem afhentir eru
svo margir slíkir í einum mánuði.Í vikunni var kunngert hvaða 10 bílar munu keppa um titilinn bíll ársins í heiminum, en það eru 86
bílablaðamenn um heim allan sem
velja bíl ársins. Tilkynnt verður um
sigurvegarann á New York Auto
Show í apríl. Skipuleggjendur World
Car of the Year velja líka sigurvegara
í 5 öðrum mismunandi flokkum,
það er, lúxusbíll ársins, akstursbíll
ársins, grænasti bíll ársins, borgar-
bíll ársins og best hannaði bíll árs-
ins. Valnefndin á enn eftir að skera
niður og tilkynna um þá þrjá bíla
af þessum 10 sem endanlegt val
stendur um og verður það tilkynnt á
bílasýningunni í Genf í byrjun mars.
Bílarnir 10 sem valið stendur um
nú eru þessir:
Audi E-Tron
BMW 3 Series
Ford Focus
Genesis G70
Hyundai Nexo
Jaguar I-Pace
Mercedes-Benz A-Class
Suzuki Jimny
Volvo S60/V60
Volvo XC40
Tíu bílar í úrslitum bíls ársins
Audi E-Tron er einn af þeim 10 bílum sem komnir eru í úrslit.
Finnur
Thorlacius
finnurth@frettabladid.is
7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
2
-6
8
7
0
2
2
4
2
-6
7
3
4
2
2
4
2
-6
5
F
8
2
2
4
2
-6
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K