Fréttablaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 9
Víst hef ég áður horfst í augu við hatur í mínu lífi. Mann-eskja sem deilir lífi og örlög-
um með ástríðustjórnmálamanni
– hugsjónamanni sem stendur í
stórræðum – kemst ekki hjá því:
Skattkerfisbylting, samningurinn
um EES við Evrópusambandið,
frumkvæði að stuðningi við sjálf-
stæðisbaráttu smáþjóða. Allt gríðar-
lega umdeild mál. – Og m.a.s. ég fór
ekki varhluta af því.
Ég man enn eftir hatursfullum
andlitum, sem störðu á mig inn um
eldhúsgluggann á Vesturgötunni.
Sumir steyttu hnefann, köstuðu
eggjum eða öðru lauslegu í glugg-
ann. Tilefnið var „matarskatturinn“
svokallaði.
Ég hef sjálf setið á stjórnmála-
fundum þar sem innblásnir „föður-
landsvinir“ steyttu hnefann í áttina
að manni, sem þeir kölluðu ýmist
landráðamann eða kvisling. Tilefnið
var EES. – Og eitt í viðbót, sem ég var
næstum búin að gleyma. Virtur lög-
maður stóð fyrir því að þjófkenna
mig. Ég var sökuð um að hafa látið
fjármálaráðuneytið borga 50 ára
afmæli mitt – í skjóli skjalafölsunar.
Málið velktist í kerfinu meira en
áratug og fékk mikla athygli í fjöl-
miðlum. Málið vakti mikla reiði og
hneykslun.
Loksins, meira en heilum áratug
seinna, fékkst niðurstaða frá Hæsta-
rétti. Tilhæfulaust. Þetta var bara
venjulegur pólitískur skítabissness.
Ásakanirnar tóku sinn toll í skertu
trausti og týndri æru.
Niðurstaða Hæstaréttar þótti ekki
fréttnæm, þegar hún kom öllum
þessum árum seinna. Smáfrétt
innan um auglýsingar á blaðsíðu 7.
En það er ekki bara, að sletturnar
af skítkastinu hafi líka náð til mín.
Stundum hef ég líka deilt heiðr-
inum. Ég hef staðið við hlið manns-
ins, uppi á sviði, þar sem hann hefur
verið sæmdur heiðursnafnbót og
ausinn lofi. Lófatak þúsunda hefur
glumið í eyrum mér. Þar hefur hann
verið hylltur. Hann var maðurinn
sem þorði að bera sannleikanum
vitni, þegar aðrir þögðu.
En þetta var í útlöndum. Það er
enginn spámaður í sínu föðurlandi.
(Og sjálfur segir maðurinn að það
séu engir góðir pólitíkusar til –
nema dauðir pólitíkusar).
Ég leyfði mér þann munað að
trúa því, að allt þetta væri að baki.
Stríðinu lokið og friðsælt ævikvöld
fram undan. Allt þar til yfirstand-
andi gerningaveður brast á. Og enn
einu sinni horfist ég í augu við ásýnd
hatursins. Í þetta sinn er þetta ekki
bara pólitík. Ekki bara sviðsetning
pólitískra mótherja, sem í hita leiks-
ins vilja koma höggi á hættulegan
andstæðing. Að þessu sinni er and-
lit hatursins afskræmt af heift og
hefnigirni út yfir gröf og dauða. Það
er helsjúkt og hamslaust. Það birtist
mér í andliti dóttur minnar, systur
minnar og systurdætra minna.
Dóttir mín skrifar mér níðbréf
og segir: „Helvíti – það eruð þið“.
Systurdóttir mín, þáttastjórnandi
á RÚV, segir mig „siðblinda í með-
virkni“ og að ég sé „hætt að vera
sjálfstæð persóna“.
Á vef mbl.is les ég það, að kona,
sem ég sannanlega þekki ekki per-
sónulega, segi, að hennar „verst
geymda leyndarmál“ sé „hatur (sitt)
á þeim hjónum“. Hún segir, að hún
hafi á unglingsárum verið svívirt
og auðmýkt heima í stofu foreldra
sinna. Og hún segir að þar hafi ég
komið við sögu. Að ég hafi verið við-
stödd, og aumkast yfir skíthælinn,
sem þar er lýst, væntanlega af með-
fæddri aumingjagæsku; og beðið
stúlkuna að fyrirgefa honum. Trú-
legt – eða hitt þó heldur!
Á ég að þurfa að segja þér og
öðrum lesendum þessa blaðs, að
þessi saga er, sem betur fer, hugar-
burður og heilaspuni. Ég hef aldrei
– og mun aldrei – biðja griða manni,
sem hegðar sér eins og þarna er lýst.
– Nú er „verst geymda leyndarmál“
söguberans – „hatur (hennar) á
þeim hjónum“, eins og hún orðar
það sjálf, ekki lengur leyndarmál.
Hún hefur veitt hatri sínu útrás.
Og hún áréttar það: „Mikið hataði
ég þetta „fína“ líf okkar og fólksins
í því.“ Hverjir lifðu þessu „fína lífi“,
sem virðist hafa eitrað líf þessarar
konu þegar á unglingsárum? Þrjátíu
ár í heljargreipum haturs?
Upphaflega var þessi kona bara
ein af ótal mörgum, sem veittu hatri
sínu útrás – undir nafnleynd. Ein-
hverjum hjá mbl.is tókst að draga
hana fram í sviðsljósið. Þess vegna
er hægt að svara henni. En hvað með
allar hinar, sem fela sig á bak við
nafnleynd? Svo lengi sem þær þora
ekki að standa við orð sín, hljóta
þau að teljast „dauð og ómerk“.
En um leið og ég virði fyrir mér
hina afskræmdu ásýnd hatursins,
spyr ég sjálfa mig: Hvers vegna þessi
iðandi ormagarður af hatri? Lifi ég í
þjóðfélagi sem er sjúkt? Þarf þetta
þjóðfélag áfallahjálp? Og hvar er
hennar að leita?
Sjúkt þjóðfélag?
Bryndís Schram
Hvers vegna þessi iðandi
ormagarður af hatri? Lifi ég í
þjóðfélagi sem er sjúkt? Þarf
þetta þjóðfélag áfallahjálp?
Og hvar er hennar að leita?
Sparneytnir sportjeppar
Renault Kadjar
Verð frá: 4.290.000 kr.
Renault Koleos
Verð frá: 6.250.000 kr.
Renault Captur
Verð frá: 3.650.000 kr.
KADJAR, KOLEOS & CAPTUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
1
4
4
R
e
n
a
u
lt
S
U
V
C
ro
s
s
o
v
e
r
5
x
2
0
f
e
b
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
F
-A
F
0
4
2
2
3
F
-A
D
C
8
2
2
3
F
-A
C
8
C
2
2
3
F
-A
B
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K