Fréttablaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson,
starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Lífshlaupið – landskeppni í hreyfingu, verður ræst í tólfta sinn í dag. Lífshlaupið
er heilsu- og hvatningarverkefni
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands sem höfðar til allra aldurs-
hópa og geta allir landsmenn tekið
þátt, hver á sínum forsendum.
„Við hvetjum vinnustaði, skóla
og einstaklinga til að taka þátt og
nota þannig tækifærið til að efla
líkama og sál með því að hreyfa
sig daglega,“ segir Hrönn Guð-
mundsdóttir, sviðsstjóri almenn-
ingsíþróttasviðs hjá Íþrótta- og
Ólympíusambandi Íslands.
Hugmynd verður að veru-
leika
Forsaga Lífshlaupsins er að árið
2005 skipaði þáverandi mennta-
málaráðherra, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, starfshóp til þess
að fara yfir íþróttamál í landinu
með það að markmiði að móta
íþróttastefnu. Starfshópurinn
setti fram hugmyndir um mótun
íþróttastefnu Íslands í skýrslunni;
Íþróttavæðum Ísland, aukin þátt-
taka, breyttur lífsstíll. Í skýrslunni
er að finna leiðir fyrir alla hópa
þjóðfélagsins, óháð aldri, búsetu,
fjárhag eða öðrum þáttum til
að stunda íþróttir og hreyfingu
með einum eða öðrum hætti sér
til heilsubótar. Á sama tíma setti
vinnuhópurinn af stað vinnu við
vef sem ÍSÍ var afhentur haustið
2006. Síðan þá hefur almennings-
íþróttasvið ÍSÍ, ásamt samstarfs-
aðilum, mótað verkefnið.
Tvö hundruð þúsund
þátttakendur
„Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir
hvattir til þess að huga að daglegri
hreyfingu og auka hana eins og
kostur er, það er í frítíma, í vinnu, í
skóla og við val á ferðamáta,“ segir
Hrönn og bendir á að í ráðlegg-
ingum frá Embætti landlæknis um
hreyfingu er börnum og ungling-
um ráðlagt að hreyfa sig í minnst
60 mínútur á dag og fullorðnum
í minnst 30 mínútur á dag. „Allt
telur og er betra en ekkert.“
Frá upphafi hafa um 200 þúsund
manns tekið þátt í Lífshlaupinu.
Árlega taka í kringum 15 til 20
þúsund starfsmenn vinnustaða og
nemendur í grunn- og framhalds-
skólum þátt.
Auðvelt að taka þátt
Það er afar einfalt að taka þátt í
Lífshlaupinu. „Til þess að skrá sig
og sinn vinnustað eða skóla og svo
lið er farið inn á www.lifshlaupid.
is og þar í Mínar síður. Auðvelt er
að nota sama aðgang ár frá ári. Eins,
ef maður hefur tekið þátt í Hjólað í
vinnuna, má nota sama aðgang og
notaður er þar,“ lýsir Hrönn. Hún
bendir á að þeir sem haldi utan
um skráningu á daglegri hreyfingu
sinni með smáforritunum Strava og
Runkeeper geti nú auðveldlega fært
upplýsingar úr forritunum og yfir á
Lífshlaupssíðuna.
Góður árangur og skemmti-
leg stemning
Fjölmargir hafa notað Lífshlaupið
til að gera breytingu á lífsstíl
sínum. „Við heyrum alltaf reglu-
lega af fólki sem hefur náð að
finna sér hreyfingu við hæfi eða
hefur fundið sinn takt í hreyfingu
með þátttöku í Lífshlaupinu og
með því að skrá og halda utan um
sína hreyfingu á vefnum okkar.
Okkur þykir afar vænt um að heyra
slíkar sögur. Þær gefa okkur byr
undir báða vængi og hvetja okkur
áfram til að halda verkefninu á
lofti og breiða út boðskap þess. En
annars er ávinningur Lífshlaupsins
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ, Lilja D. Alfreðs-
dóttir menntamálaráðherra og Þuríður Óttarsdóttir skólastýra ásamt nem-
endum í Vættaskóla-Borgum sem tóku þátt í að setja Lífshlaupið formlega.
Dagur B. Eggertsson spreytir sig í dekkjahlaupi.Frá upphafi hafa um 200 þúsund manns tekið þátt í Lífshlaupinu.
Cullest pores minim voluptur? Acipisquia volup spel iatque sumquam ut odis es as spel
iatque sumquam ut odis es as tio.
Ut re perro enis am,
que voloribus, quid quam ut
quas ea poribusaepel ius aliquid
quo sedit ipsanis delestisi destibus.
Aquo consequo blabor ma
voles etusant.
Offictam que verit a di asinul-
lauda qui aut aut pedis voluptia dit
eritiani omnis debit, ute conse-
quam unt poresendam, sum sunt.
Allar nánari upplýsingar má finna á
www.xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx.is.
Framhald af forsíðu ➛
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
klárlega sá að starfsfólk keppist
við að hreyfa sig við hvert tæki-
færi.“ Hrönn segir líka dæmi um
að skemmtilegur keppnisandi
myndist á vinnustöðum og oft séu
til dæmis hádegin nýtt til að brjóta
upp daginn til að keppa í hinum og
þessum greinum eins og tröppu-
hlaupi, reiptogi, armbeygjum eða
öðru skemmtilegu.
Myndaleikur og verðlaun
Í Lífshlaupinu getur fólk tekið þátt
í myndaleik. „Það gerir fólk með
því að senda okkur skemmtilegar
myndir í gegnum heimasíðuna,
í gegnum Instagram með því að
merkja þær #lifshlaupid, í gegnum
Í Lífshlaupinu eru
landsmenn allir
hvattir til þess að huga að
daglegri hreyfingu og
auka hana eins og kostur
er, það er í frítíma, í
vinnu, í skóla og við val á
ferðamáta.
Facebook-síðuna okkar eða bara
með því að senda tölvupóst á lifs-
hlaupid@isi.is. Við drögum úr inn-
sendum myndum tvisvar sinnum
og verðlaunum svo bestu myndina
í lok átakstímabilsins.“
Einnig er í gangi skráningar-
leikur á meðan á keppninni
stendur en þeir sem skráðir eru til
leiks og eru með skráða hreyfingu
eiga möguleika á því að vinna
glæsilega vinninga frá Skautahöll-
inni, Klifurhúsinu, Rush Iceland,
Lemon, World Class og MS.
Nánari upplýsingar á www.lifs-
hlaupid.is
Í Lífshlaupinu
getur fólk tekið
þátt í mynda-
leik. Það gerir
fólk með því að
senda skemmti-
legar myndir
í gegnum
heimasíðuna,
í gegnum
Instagram með
því að merkja
þær #lifshlau-
pid, í gegnum
Facebook-síðu
Lífshlaupsins
eða bara með
því að senda
tölvupóst á lifs-
hlaupid@isi.is.
Í ráðleggingum frá Embætti land-
læknis um hreyfingu er börnum og
unglingum ráðlagt að hreyfa sig í
minnst 60 mínútur á dag
Við heyrum alltaf
reglulega af fólki
sem hefur náð að finna
sér hreyfingu við hæfi eða
hefur fundið sinn takt í
hreyfingu með þátttöku í
Lífshlaupinu.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
0
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
F
-B
3
F
4
2
2
3
F
-B
2
B
8
2
2
3
F
-B
1
7
C
2
2
3
F
-B
0
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K