Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 18

Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 18
Haukar - Njarðvík 85-72 Stigahæstir: Haukar: Russell Woods Jr. 29, Hilmar Smári Henningsson 20, Ori Garmizo 17, Daði Lár Jónsson 9. Njarðvík: Elvar Már Friðriksson 24, Jeb Ivey 15, Maciek Baginski 12, Logi Gunnarsson 8. Skallagr. - Breiðablik 91-90 Stigahæstir: Skallagrímur: Domogoj Samac 26, Bjarni Guðmann Jónsson 22, Matej Buovac 19, Gabríel Sindri Möller 10. Breiðablik: Erlendur Ágúst Stefánsson 27, Snorri Vignisson 19, Árni E. Hrafnsson 17.. Efri Njarðvík 26 Tindastóll 24 Stjarnan 24 KR 22 Keflavík 20 Þór Þ. 16 Neðri Grindavík 14 ÍR 14 Haukar 14 Valur 10 Skallagrímur 6 Breiðablik 2 Nýjast Domino’s-deild karla Frumraun Geirs með Akureyri HANDBOLTI Keppni í Olís-deild karla hefst aftur um helgina eftir rúmlega mánaðarhlé vegna heimsmeistara- mótsins í handbolta. Geir Sveinsson stýrir Akureyri í fyrsta sinn þegar liðið tekur á móti Haukum klukkan 16.00 í dag. Geir tók við Akureyringum af Sverre Jakobs- syni um áramótin. Akureyri fékk fimm stig í síðustu fjórum leikjum sínum fyrir áramót og er í 10. sæti deildarinnar. Haukar eru aftur á móti í 2. sætinu, einu stigi á eftir toppliði Vals sem mætir Stjörn- unni klukkan 20.00 í kvöld. Valsmenn unnu fjóra síðustu leikina fyrir ára- mót og hafa ekki tapað síðan 20. október. Stjörnumenn eru í 7. sætinu. Klukkan 18.00 á morgun eigast KA og Fram við fyrir norðan. KA-menn eru með tíu stig í 9. sætinu, einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni. Frammarar töpuðu sjö af síðustu átta leikjum sínum á árinu 2018 og eru í fallsæti. Loks tekur botn- lið Gróttu á móti FH klukkan 19.30 annað kvöld. Sel- t i r n i n g a r h a f a tapað sex leikjum í röð og eru í erfiðri stöðu. FH er með 18 stig í fjórða sætinu. – iþs Milkilvægur sigur Hauka gegn toppliðinu Haukar unnu mikilvægan sigur í baráttu sinni um sæti í úrslitakeppni Domino’s-deildar karla í körfubolta þegar liðið skellti toppliðinu í Schenker- höllinni að Ásvöllum í gær. Fram undan er æsileg barátta Hauka við Þór Þorlákshöfn, ÍR og Grindavík um sæti í úrslitakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KÖRFUBOLTI „Maður heyrir margt inni á vellinum sem maður spáir ekkert í og er bara hluti af leiknum. En það er leiðinlegt að heyra svona fordóma. Þá er þetta ekki lengur körfubolti og maður tekur það miklu meira inn á sig. Mér var brugðið,“ sagði Kristófer Acox um atvik sem átti sér stað í leik Tinda- stóls og KR í fyrradag. Lands- liðsmaðurinn varð þá fyrir kynþáttafordómum í fyrsta sinn á körfuboltaferlinum. „Ég hef verið heppinn að þurfa aldrei að takast á við neitt þessu líkt. Það var virki- lega leiðinlegt að heyra þetta,“ bætti Kristófer við. Atvikið átti sér stað í seinni hálf- leik þegar KR-ingar voru að vinna forskot Stólanna upp. Einn stuðn- ingsmanna Tindastóls hrópaði ókvæðisorð að Kristófer. Tindastóll var 15 stigum yfir í hálfleik, 51-36, en KR jafnaði í 77-77 með þriggja stiga körfu Julians Boyd þremur sekúndum fyrir leikslok. KR vann svo framlenginguna 11-14 og leikinn 88-91. Þetta var fyrsta tap Stólanna á heimavelli í vetur. „Þetta var enn þá hörkuleikur og Þakklátur fyrir stuðninginn Ofbeldi sem við líðum ekki „Mig rekur ekki minni til þess að svona háttsemi hafi gerst áður á körfuboltaleik hér á landi. Auð- vitað get ég ekki fullyrt það að þetta hafi ekki gerst, en ég hef allavega ekki fengið svona mál inn á mitt borð í minni formannstíð. Ég varð fyrst og fremst mjög hissa og um leið sorgmæddur þegar ég heyrði af þessu. Ég hélt að svona lagað væri horfið úr okkar sam- félagi og það hryggir mig að svo sé ekki," segir Hannes Jónsson, formaður KKÍ, um kynþáttafor- dómana sem Kristófer Acox varð fyrir í fyrradag. „Við hjá körfuboltasambandinu lítum þetta að sjálfsögðu mjög alvarlegum augum. Við erum ánægðir með það hve föstum tökum körfuknattleiksdeild Tindastóls tók þetta mál og hversu fum- laus og eindregin viðbrögð þeirra voru. Formaður deildarinnar bað Kristófer persónulega afsökunar beint eftir leik og yfirlýsing þeirra sýndi skýrt merki þess að þessi háttsemi yrði ekki liðin," segir hann enn fremur. „Það eru til staðar skýrir verk- ferlar hjá sambandinu þegar svona gerist og við höfum heimild til þess að refsa félögum fyrir kyn- þáttafordóma hjá þeim sem koma að leiknun. Vegna þess hversu snör viðbrögð Tindastóls voru og þeirra aðgerða sem þeir hafa gripið til og hyggjast grípa til; það er að freista þess að finna aðilann sem lét þessi sorglegu ummæli út úr sér þá finnst mér mjög ólíklegt að félaginu verði refsað. Það er einlæg von mín að sá sem við- hafði þessa háttsemi stígi fram og biðjist afsökunar á ummælum sínum." Kristófer fékk mörg skilaboð frá leik- mönnum og þjálfara Tindastóls eftir leik- inn í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Eftir leik Tindastóls og KR í fyrradag greindi Kristófer Acox frá því að hann hefði orðið fyrir kynþáttafordómum í fyrsta sinn á ferlinum. Honum var brugðið en þótti mikilvægt að koma þessu frá sér eftir leik. ég gat ekki slökkt á mér. Ég varð að halda haus og takast á við þetta eftir leikinn. Ingi Þór [Steinþórsson, þjálfari KR] fór og kvartaði beint eftir leik. Formaður Tindastóls kom svo til mín og baðst afsökunar fyrir hönd félagsins. Honum fannst þetta mjög leiðinlegt,“ sagði Kristófer. Eftir leikinn sendi Tindastóll frá sér yfirlýsingu þar sem framkoma stuðningsmannsins er fordæmd og Kristófer beðinn afsökunar á henni. Hann hrósar Tindastóli fyrir hvernig félagið hefur tekið á málinu. „Ég fékk fullt af skilaboðum frá leik- mönnum Tindastóls og Israel [Martin, þjálfara liðsins]. Mér finnst flott hvernig þeir brugðust við. Ég ætla ekki að alhæfa um heilt samfélag út af einum manni,“ sagði Kristófer sem hefur fengið mikinn stuðning, meðal annars á samfélags- miðlum, sem hann er þakklátur fyrir. „Það er frábært. Ég er þakklátur fyrir allan stuðninginn sem ég hef fengið,“ sagði Kristófer. En hvað vill hann að verði gert í málinu? „Ég get ekki farið fram á neitt. Eina sem ég vildi gera var að koma þessu frá mér og segja frá þessu. Þetta á hvergi að líðast. Hvað verð- ur gert er ekki í mínum höndum,“ FÓTBOLTI Katar varð í gær Asíumeist- ari í knattspyrnu karla í fyrsta sinn í sögunni eftir 3-1 sigur gegn Japan í úrslitaleik mótsins sem fram fór í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Katar varð þarna níunda landið sem vinnur Asíukeppnina, en Japan sem var andstæðingur Katars í úrslitaleiknum í gær, er sigursælast með fjóra titla. Almoez Ali kom Katar yfir á 12. mínútu með sínu níunda marki í Asíukeppni, en hann á metið yfir flest mörk skoruð í einni Asíukeppni. Abdulaziz Hatem tvöfaldaði forskot Katara á 27. mínútu og staðan var 2-0 í hálfleik. Takumi Minamino minnk- aði muninn á 69. mínútu og hleypti spennu í leikinn. Katar átti hins vegar síðasta orðið þegar Akram Afif skoraði úr víta- spyrnu sjö mínútum fyrir leikslok. Katar verður á heimavelli  þegar heimsmeistaramótið verður haldið árið 2022. – iþs Katar meistari í fyrsta skipti  2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 0 2 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 8 -9 E A 8 2 2 3 8 -9 D 6 C 2 2 3 8 -9 C 3 0 2 2 3 8 -9 A F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.