Fréttablaðið - 02.02.2019, Blaðsíða 96
ÞAÐ VAR BÆÐI
SKRÝTIÐ OG SPENN-
ANDI AÐ VINNA.
ÞAÐ ER LEIÐINLEGT
HVERSU ILLA ÍSLEND-
INGAR HAFA FARIÐ MEÐ SÍNA
GÖMLU HÖFUNDA.
E in stærsta hljóðbókasíða landsins er Hlusta.is en þar er að finna hátt í tvö þúsund íslenskar bækur og stöðugt bætist við. Áskrifendur síðunnar fá
ótakmarkaðan aðgang að bókum
síðunnar. Hægt er að gerast áskrif-
andi á forsíðu Hlusta.is og áskriftin
er 1.490 krónur á mánuði. Aðal-
steinn Magnússon og Ingólfur B.
Kristjánsson hafa veg og vanda af
síðunni.
Þessa dagana býður hlusta.is upp
á endurútgefið efni eftir Theódór
Friðriksson. „Við erum að koma
öllum verkum hans, 20-30 bókum,
í hljóðbækur,“ segir Aðalsteinn.
„Frægasta bók hans er Í verum, ævi-
saga í tveimur bindum, en síðan gaf
hann út þriðju ævisöguna, Ofan
jarðar og neðan, sem kemur út hjá
okkur seinni hluta febrúar. Hann
sendi líka frá sér skáldsögur og
mikinn fjölda smásagna.
Það er með ólíkindum að þessi
maður sem var sjómaður og erf-
iðisvinnumaður alla ævi skyldi geta
skrifað allar þessar bækur. Í dag er
hlutur hans í bókmenntasögunni
lítill en um miðja síðustu öld voru
verk hans svo vinsæl að allir þekktu
nafn hans, sérstaklega var mikið
talað um Í verum. Velgjörðarmenn
hans voru margir eins og Sigurður
Nordal og hann var vinur Laxness
og Þórbergs.“
Fulltrúi alþýðunnar
Aðalsteinn segist hafa lesið Í verum
fyrir skömmu. Ég varð stórkostlega
hrifinn. Í lok bókar er hann sex-
tugur, orðinn gigtveikur, búinn að
fá 1.500 króna styrk af fjárlögum
og sér fyrir sér að nú geti hann loks
hætt að vinna erfiðisvinnu. Hann
var merkilegur maður, sjálfstæður
og leit á sig sem fulltrúa hins vinn-
andi manns.“
„Skáldsögur hans og smásögur
standa sannarlega fyrir sínu,“ segir
Ingólfur. Í smásagnasafninu Utan
frá sjó sem geymir níu smásögur
naut hann liðsinnis Jónasar frá
Hrafnagili sem hjálpaði honum við
að stíla sögurnar. Það var eiginlega
eini skólinn sem Theódór fékk og
eftir það var hann óstöðvandi. Ég
lít á hann sem fulltrúa alþýðunnar
í þessum bókmenntageira, eins og
Torfhildur Hólm, sem er annar höf-
undur sem hefur gleymst, þótt jafn-
vel Halldór Laxness hafi tileinkað
henni sitt fyrsta ritverk á unglings-
árum.“
Við erum alltaf að grúska og leita
Aðalsteinn Magnússon og Ingólfur B. Kristjánsson hafa veg og vanda af síðunni
Hlusta.is Þar er að finna hátt í 2.000 íslenskar bækur og í hverri viku bætist við.
„Við erum í okkar litla heimi og erum ánægðir þar,“ segja Aðalsteinn og Ingólfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Leikritin Tölvuvírusinn eftir Iðunni Ólöfu Berndsen, 11 ára, og Friðþjófur á geimflakki
eftir Sunnu Stellu Stefánsdóttur, 7
ára, verða sýnd saman á Litla sviði
Borgarleikhússins nú um helgina,
laugardaginn 2. febrúar og sunnu-
daginn 3. febrúar.
Iðunn og Sunna unnu leikritasam-
keppni sem Borgarleikhúsið stóð að
í samstarfi við RÚV og KrakkaRÚV.
Alls bárust hátt í 50 leikrit frá börn-
um, á aldrinum 6-12 ára, hvaðanæva
af landinu. „Það var bæði skrýtið og
spennandi að vinna,“ segir Iðunn.
Sunna segist hafa orðið mjög undr-
andi: „Ég vissi bara ekki hvað ég ætti
að segja.“
Spurð um efni leikrits síns,
Tölvuvírussins, segir Iðunn: „Það er
um vináttu og fólk sem er í tölvunni.
Boðskapurinn er að allir eigi að vera
vinir.“ Um leikrit sitt Friðþjóf á geim-
flakki segir Sunna: „Það er um hákarl
sem heitir Friðþjófur sem lendir í
ævintýri.“
Báðar segjast þær afskaplega
spenntar fyrir frumsýningunni. „Ég
get bara ekki beðið,“ segir Sunna.
Iðunn segist oft fara í leikhús. „Mér
finnst rosalega gaman í leikhúsi,“
segir hún og Sunna er á sama máli og
segir: „Það er ótrúlega skemmtilegt.“
Spurðar hvort þær ætli að halda
áfram að skrifa segjast hin ungu leik-
skáld vitanlega ætla að gera það.
Leikarar í sýningunum tveimur
eru þau Edda Björg Eyjólfsdóttir,
Davíð Þór Katrínarson, Halldór
Gylfason, Haraldur Ari Stefánsson
og Jóhann Sigurðarson. Halldór
Gylfason er leikstjóri leikritanna.
Sýningin byrjar kl. 13 og aðgangs-
eyrir er aðeins 500 krónur. – kb
Vinátta og hákarl sem heitir Friðþjófur
Sunna og
Iðunn segjast
svo sannar-
lega ætla að
halda áfram
að skrifa.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Leitast eftir breidd
Þeir félagar hafa sannarlega lagt sitt
af mörkum til að minna á látna höf-
unda sem hafa svo til alveg gleymst.
Þeir gáfu nýlega út bækur Guðrúnar
Lárusdóttur og segja viðbrögðin
hafa verið með ólíkindum.
„Við ætlum að halda áfram að
gefa út öndvegishöfunda, sérstak-
lega þá sem detta úr höfundarétti
vegna þess að það er markaður
fyrir þá. Það er leiðinlegt hversu
illa Íslendingar hafa farið með sína
gömlu höfunda. Verk þeirra koma
ekki út og þeir gleymast,“ segir Ing-
ólfur. „Ef maður fer í bókabúð í Bret-
landi sér maður heilu borðin full af
bókum eftir gamla höfunda. Þannig
er það ekki hér. Okkur finnst hlutur
kvenna líka hafa verið minni en
hann ætti að vera og ætlum að láta
lesa inn verk Torfhildar Hólm og
Júlíönnu Jónsdóttur og þær munu
verða margar fleiri.
„Við erum alltaf að grúska og
leita,“ segir Aðalsteinn. „Við leitumst
eftir því að hafa breidd og látum líka
lesa inn þýddar sögur eins og Kapít-
ólu og Sherlock Holmes.“
Hlusta.is hóf starfsemi árið 2008.
„Fyrstu árin vorum við í mínus
en núna búum við að þessu mikla
gagnasafni. Það er fyrst núna sem
við sjáum að rekstrarárið verði í
plús,“ segir Aðalsteinn. „Við skuld-
um engum neitt en höfum heldur
ekki auglýst neitt. Við erum í okkar
litla heimi og erum afskaplega
ánægðir þar.“
2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
2
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
8
-9
9
B
8
2
2
3
8
-9
8
7
C
2
2
3
8
-9
7
4
0
2
2
3
8
-9
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K