Fréttablaðið - 02.02.2019, Síða 27

Fréttablaðið - 02.02.2019, Síða 27
Móðursystirin og alnafna, Ragna Fossberg Craven, með ungri dóttur sinni Freyju, en þær létust í fellibyl á Jamaíka árið 1951 ásamt eiginmanni Rögnu. einhvern tímann hitt blóðforeldra sína segir Ragna svo ekki hafa verið. „Foreldrar hans skildu og móðir hans giftist aftur. Þegar hann var orðinn stálpaður komst hann í sam- band við móður sína, þá var pabbi hans nýdáinn, en hún guggnaði á því að hitta hann.“ Fjölskulduharmleikur Árið 1951, þegar Ragna var rúm- lega tveggja ára, varð mikill harm- leikur í fjölskyldunni. Eftir að hafa nýlega misst mann sinn létust dóttir Jóhönnu, Ragna Fossberg Craven, Geoffrey Craven, enskur eiginmaður hennar, sem var listmálari, og ung dóttir þeirra í fellibyl á Jamaíka. „Það hafði staðið til að Ragna ætt- leiddi mig og ég færi út til fjölskyld- unnar. Á Jamaíka bjuggu þau í litlu hlöðnu steinhúsi, þeim var boðið að flytja sig yfir í aðra byggingu en töldu húsið sitt vera sterkt og urðu þar kyrr. Húsið hrundi í fellibylnum og þau dóu öll,“ segir Ragna. Árið 2000 fór Ragna með blóð- móður sinni og vinkonu, Guðrúnu Ólafsdóttur, til Jamaíka. „Þetta var eins konar pílagrímsferð. Ég pant- aði herbergi fyrir okkur á hóteli og við komumst svo að því að hótelið var reist á grunni þar sem Ragna og maður hennar höfðu rekið fyrir- tæki með bátaleigu og sporthúsi. Við hittum barþjón sem var sonur garðyrkjumannsins þeirra. Þarna komumst við í kynni við fólk sem gat leitt okkur áfram, en við vitum ekki enn hvar gröf fjölskyldunnar er. Það veit enginn.“ Engin gifting Blaðamaður forvitnast um einkalíf Rögnu en hún á einn son, Ívar Örn Helgason, með fyrri manni sínum, Helga Sveinbjörnssyni. Hún hefur í rúm 30 ár verið í sambúð með Birni Emilssyni dagskrárgerðarmanni. Þau eru ekki gift og Ragna segir að það standi ekki til. „Ég er búin að vera gift einu sinni. Það hefur ekkert upp á sig að gifta sig.“ Hefur Björn beðið þín? „Nei, hann þorir það ekki, enda veit hann hversu ákveðin ég er í þessu máli.“ Þú ert greinilega mjög ákveðin kona. „Sennilega er ég bara mjög lík henni ömmu minni.“ Þótt Ragna hætti störfum hjá Ríkisútvarpinu eru næg verkefni fram undan. Hún er að hefja vinnu við átta þátta seríu sem tekur þrjá mánuði í upptökum. Þetta er Ráð- herrann sem Sagafilm framleiðir fyrir RÚV og leikstjórar eru Arnór Pálmi Arnarson og Nanna Kristín Magnúsdóttir. „Þetta verður skemmtilegt verkefni. Ég ætla samt að gæta þess vel að fylla líf mitt ekki af vinnu,“ segir Ragna. „Það er gott að geta dundað við eitt og annað á morgnana og þurfa ekki að rífa sig upp til að mæta einhvers staðar.“ ÞARNA KOMUMST VIÐ Í KYNNI VIÐ FÓLK SEM GAT LEITT OKKUR ÁFRAM, EN VIÐ VITUM EKKI ENN HVAR GRÖF FJÖLSKYLDUNNAR ER. ÞAÐ VEIT ENGINN. Á þessari fal- legu mynd er Ragna Fossberg Craven með dóttur sína Freyju. Til stóð að Ragna Foss- berg yngri færi í fóstur til þess- arar móður- systur sinnar og alnöfnu. Harm- leikur kom í veg fyrir það en árið 2000 fór Ragna til Jamaíka, í píla- grímsferð eins og hún kallar það sjálf. Haltu uppi fjörinu Ótakmarkað Internet Netbeinir og WiFi framlenging Ótakmarkaður heimasími Myndlykill + Skemmtipakkinn Allt í einum pakka á lægra verði + Skemmtipakkinn fyrir 16.990 kr. á mánuði.* Kláraðu málið á vodafone.is, í síma 1414 eða komdu við í næstu verslun. *Aðgangsgjald og dreifigjald er ekki innifalið í verði. H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 0 2 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 8 -C 6 2 8 2 2 3 8 -C 4 E C 2 2 3 8 -C 3 B 0 2 2 3 8 -C 2 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.