Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 28

Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 28
Fígúrur í landslagi er verk eftir Ragnar Kjartansson sem sýnt er í i8. Lista-maðurinn gerði verkið upphaflega fyrir Heil-brigðisvísindasvið Kaup- mannahafnarháskóla og var verkið vígt þar 29. janúar og sýningin í i8 var opnuð 31. janúar. „Þetta er eitt verk og sjö verk, svona eins og Harry Potter bæk- urnar. Á sýningunni eru sjö vídeó án hljóðs, hvert um sig sólarhrings langt, af fólki í læknasloppum sem gengur fram og til baka í epísku landslagi,“ segir Ragnar. „Hug- myndin var að gera verk sem væri eins konar tilvitnun í veggmyndir, eins og myndir Diego Rivera í Banda- ríkjunum og í sósíalískar áróðurs- lágmyndir í Sovétríkjunum. Þetta er leikur að málverkinu og kvik- myndinni og hugmyndinni um fólk í vísindasloppum sem tákn framfara og hreinleika. Þetta fólk er í epísku landslagi en það er ekki að gera neitt annað en að ganga fram og til baka. Þetta er því fremur melankólískt.“ Landslagið í vídeóinu er málað af Ragnari og hópi leiktjaldamálara sem hann vinnur mikið með, en þeir eru frá Lettlandi, Þýskalandi og Austurríki. Leikararnir í vídeóinu eru af fjölmörgum þjóðernum og lang- flestir búsettir hér á landi. Alls koma um 60 manns fyrir í verkinu. Upp- tökur tóku um tvær vikur og fóru fram í kvikmyndaverinu í Gufunesi. „Verkið lítur út fyrir að vera einfalt en tæknilega var það skrímsli,“ segir Ragnar. Þar sem vídeóið er af fólki í nátt- úrunni er listamaðurinn spurður um hugmyndir sínar um manninn í náttúrunni. „Ég hef rómantískar hug- myndir um manninn í náttúrunni. Svolítið fastur í einhverri 19. aldar hugmynd. Þegar ég sé stórkostlega íslenska náttúru tengi ég hana við sagnir og menningu, frekar en að náttúran standi fyrir sjálfri sér,“ segir Ragnar. Hefurðu áhyggjur af því að maður- inn sé að eyða náttúrunni? „Að sjálfsögðu.“ List frá djöflinum Er pólitískur boðskapur í list þinni? „Sem borgari er ég mjög pólitískur maður en ég passa mig á því að listin mín sé hál sem áll. Mér finnst mikil- vægt að listin komi frá djöflinum, að fólk viti ekki alveg hvað hún tákni. Ég lifi mjög eftir því sem Oscar Wilde skrifaði í myrkviðum fangelsisins í Reading, að í listinni skipti góður ásetningur ekki nokkru máli. Hann sagði þetta ekki af hnyttni inni í hlýrri stofu heldur í fangaklefa þar sem hann var í tvö ár.“ Þú ert örugglega oft beðinn um að túlka list þína. Leiðist þér það? „Nei, mér leiðist það ekki. En sjálfur skil ég ekki list mína, sem er mikilvægt því ef ég skildi verk mín til hlítar þá þætti mér þau ekki spenn- andi. Eins og Bjarni vinur minn segir: Ef konseptið er gott er þá ekki alveg óþarfi að framkvæma það?“ Í list þinni ertu mikið fyrir svið- setningar, eru það áhrif frá leikhúsi? „Ég hef mjög mikinn áhuga á svið- setningum. Ég er alinn upp í leikhúsi, lifi mikið í leikhúsi og hef unnið fyrir leikhús, en samt aldrei á forsendum leikhússins sjálfs. Ég er alltaf að átta mig betur á því að ég er enginn leik- húsmaður. Ég er myndlistarmaður út í gegn. Ég held að ég hafi sem barn óvart misskilið leikhúsið, skilið það frá upphafi út frá myndlistarlegum forsendum. Leikhúsfólk talar mikið um að það sé að spegla samfélagið. Ég hef engan áhuga á að spegla sam- félagið, ég er bara eitthvað að djóka.“ Ertu fagurkeri? „Já, já. Ég er algjör fagurkeri. Allir listamenn fást við fegurðina. Ég get ekki nefnt einn einasta sem gerir það ekki.“ Endurtekningin er griðastaður Það er óhætt að segja að Ragnari hafi vegnað vel í list sinni en verk hans hafa verið sýnd á virtustu söfnum og myndlistarhátíðum heims. Hann er spurður hverju hann þakki þessa velgengni. „Örugglega öllu því gagn- rýna fólki sem er í kringum mig,“ segir hann og bætir við: „Skýringin á velgengninni er sennilega sambland af leikgleði, vanmætti og sjálfshatri.“ Hefurðu mikla ástríðu fyrir því sem þú ert að gera? „Ég veit það ekki vegna þess að vinna er svo samofin sjálfsmynd minni. Ég geri bara það sem ég geri en þótt ég sé að gera eitthvað gríðar- lega skemmtilegt þá hlakka ég alltaf til kaffipásunnar. Ég er ekki týpan sem sleppir henni.“ Starfs síns vegna er hann mikið á ferðalögum, en býr í miðbæ Reykja- víkur. „Ég er nánast eins og flug- þjónn, á stöðugum ferðalögum og vinn mikið erlendis. Reykjavík er vel staðsett, mitt á milli Moskvu og Washington, eins og segir í laginu. Ég hef alltaf unnið út frá íslensku lista- senunni. Hvert sem maður kemur þá er allt voða mikið eins, það er hvergi mjög gaman og hvergi mjög leiðin- legt.“ Eru einhver viðfangsefni sem eru þér hugleiknari en önnur? „Ég veð mikið úr einu í annað. Það má örugglega sjá rauðan þráð í gegn- um verk mín en ég held samt að allir listamenn séu að gera sama verkið aftur og aftur. Það á örugglega við um mig eins og aðra. Nýjasta verkið er alltaf einhvers konar snerting við verkið sem var á undan. Ég vinn mjög mikið með endur- tekningu og tíma en það er miklu meira í forminu heldur en að um sé að ræða heimspekilegar pælingar um endurtekninguna. Mér finnst endurtekningin svo ofur sjálfsagt fyrirbæri í lífi okkar.“ Finnst þér hún hvorki þreytandi né leiðinleg? „Jú, algjörlega. En þegar ég bý til verk þar sem ég er að endurtaka eitthvað þá er ég um leið að skapa öryggi. Endurtekningin er einhvers konar griðastaður. Við lifum öll í endurtekningunni.“ Næst á dagskrá hjá Ragnari er nýtt vídeóverk sem verður frumsýnt erlendis í vor, hvar segist hann ekki mega segja að þessu sinni. Yfirlits- sýning á verkum hans verður síðan í Stuttgart í júlí. Sjálfur skil ég ekki list mína Ragnar Kjartansson sýnir í i8 verk sem hann segir vera bæði eitt verk og sjö verk, eins og Harry Potter bækurnar. Hann segir mikil- vægt að listin komi frá djöflinum og vill ekki spegla samfélagið. Ég er algjör fagurkeri, segir Ragnar Kjartansson sem sést hér fyrir framan verk sitt Fígúrur í landslagi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Fígúrur í landslagi. Birt með leyfi listamannsins, Luhring Augustine og i8. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is SEM BORGARI ER ÉG MJÖG PÓLITÍSKUR MAÐUR EN ÉG PASSA MIG Á ÞVÍ AÐ LISTIN MÍN SÉ HÁL SEM ÁLL. MÉR FINNST MIKILVÆGT AÐ LISTIN KOMI FRÁ DJÖFL- INUM, AÐ FÓLK VITI EKKI ALVEG HVAÐ HÚN TÁKNI. 2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 8 -C 1 3 8 2 2 3 8 -B F F C 2 2 3 8 -B E C 0 2 2 3 8 -B D 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 1 2 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.