Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 30

Fréttablaðið - 02.02.2019, Page 30
Ekkert kínverskt fyrirtæki hefur vakið jafnmikla athygli á Vesturlöndum undanfarin misseri og tæknirisinn Huawei. Þetta einkarekna fyrir- tæki er undir smásjá Bandaríkjanna vegna meintra njósna og brota gegn viðskiptaþvingunum, metnaðarfull áform þess að verða leiðandi á sviði 5G-fjarskiptatækni eru í hættu og fjármálastjórinn og fyrirtækið sjálft sæta ákæru vestan hafs. Það var engin lognmolla í kring- um Huawei undanfarna viku. Auk fyrrnefndrar ákæru ræða ríki Evr- ópusambandsins nú um að banna notkun á fjarskiptabúnaði fyrir- tækisins. Huawei heldur hins vegar sínu striki. Tæknimiðlar greindu frá því í gær að nýr, samanbrjótanlegur og hreint út sagt gullfallegur sími frá fyrirtækinu fari á markað síðar í þessum mánuði. Uppruninn Ren Zhengfei, fyrrverandi verk- fræðingur fyrir kínverska herinn, stofnaði Huawei árið 1987. Tíma- setningin var hárrétt hjá Ren enda leituðust yfirvöld á þessum tíma við að betrumbæta vanþróað og hreint út sagt lélegt fjarskiptakerfi ríkisins. Á þessum tíma reiddi Kína sig á erlend stórfyrirtæki. Í stað þess að gera samninga við erlendu fyrirtæk- in réði Ren til sín rannsakendur sem aðstoðuðu hann við hermismíði (e. reverse engineering). Huawei lagði fyrst um sinn áherslu á framleiðslu skiptiborða og varð fljótt leiðandi á því sviði í Kína. Árið 1994 komst Ren svo að samkomulagi við kínverska herinn um að byggja upp nýtt fjarskiptanet fyrir Kína. Þannig hófst hið nána samband Huawei við ríkið. Fram liðu stundir og Huawei færði út kvíarnar og hóf viðskipti við fjölmörg ríki heims. Fyrirtækið varð fljótt eitt það stærsta á sviði tækni í heimalandinu. Angar Huawei teygja sig nú um allan heim. Það starfrækir rannsókn- arstöðvar í nærri tuttugu ríkjum og er í samstarfi við allflest stærstu fjarskiptafyrirtæki heims. Að því er Kenneth Frederiksen, forstjóri Huawei í Skandinavíu, sagði við Viðskiptablaðið í desember 2016 lék Huawei til dæmis lykilhlutverk í 3G- og 4G-væðingu Íslands. Starfsemi fyrirtækisins má skipta í þrennt. Í fyrsta lagi framleiðir það búnað fyrir fjarskiptanet, í öðru lagi ýmsan skrifstofubúnað fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir og í þriðja lagi framleiðir Huawei neytendatækni. Símar fyrirtækisins njóta þó nokkurra vinsælda. Má til að mynda kaupa þá í Elko, hjá Sím- anum og Vodafone. Þjófnaður Fyrsta stóra hneykslismálið í sögu Huawei kom í febrúar 2003 þegar Cisco Systems höfðaði einkamál gegn Kínverjunum fyrir að brjóta gegn höfundaréttarlögum. Huawei var sakað um að afrita kóða í eigu Cisco við gerð tækja sinna. Ári síðar varð Huawei við kröfu Cisco, fjar- lægði kóðann og Cisco lét málið niður falla í kjölfarið. En samkvæmt skjölum sem Wiki- Leaks hefur birt um kínversk tækni- fyrirtæki í gegnum tíðina var Cisco ekki sátt. Huawei hélt í raun áfram að nota stolna kóðann að minnsta kosti til 2005. Ástæðan fyrir því að Cisco hélt málsókn sinni áfram var ekki jákvæð viðbrögð Huawei held- ur þau að kínverskir fjölmiðlar réð- ust í ófrægingarherferð gegn Cisco. Orðsporshnekkirinn var metinn verri en stuldur Huawei. Þetta er langt frá því að vera eina brotið af þessu tagi sem Huawei hefur orðið uppvíst um. Starfs- maður fyrirtækisins var gómaður við að taka ljósmyndir og teikna upp eftirlíkingar af tækni sem sam- keppnisaðili var með baksviðs á tæknisýningu árið 2004, Motorola sakaði Huawei um hugverkastuld árið 2010, reyndar án árangurs, og hið kínverska ZTE gerði slíkt hið sama árið 2011. Nær okkur í tíma hefur T-Mobile höfðað mál gegn Huawei fyrir að stela tækninni á bak við vélmennið Tappy. Það er notað til þess að kanna þol snjallsíma og hermir eftir mannlegri snertingu. Kviðdómur komst að þeirri niður- stöðu í maí 2017 að Huawei hefði gerst sekt um hugverkaþjófnað og var fyrirtækinu skipað að greiða tæpar fimm milljónir dala í skaða- bætur. Njósnir Öllu alvarlegra mál eru meintar njósnir Huawei. Allt aftur til árs- ins 2005 hafa Vesturlönd lýst yfir áhyggjum af starfsemi Huawei. Samningur við yfirvöld í Íran um uppbyggingu fjarskiptanets og sams konar samstarf við talibana í Afganistan vöktu athygli í upphafi þessa áratugar. Það eru hins vegar aðgerðir Bandaríkjastjórnar sem valda forsprökkum Huawei mestu hugarangri. Frá árinu 2011, jafnvel fyrr, hafa Bandaríkin rannsakað Huawei vegna meintra njósna fyrir hönd kínverska ríkisins. Þetta mál vatt hressilega upp á sig á síðasta ári þegar Bandaríkjamenn bönnuðu ríkisstofnunum alfarið að nota vörur frá Huawei. Yfirmenn sex bandarískra öryggis- stofnana, meðal annars FBI, CIA og NSA, komu fyrir upplýsingamála- nefnd öldungadeildar Bandaríkja- þings í febrúar í fyrra til þess að ræða um meintar njósnir kínverskra tæknifyrirtækja um almenna borg- ara í Bandaríkjunum. „Við höfum alvarlegar áhyggjur af því að leyfa nokkru fyrirtæki sem er svo nátengt erlendri ríkisstjórn og deilir ekki okkar gildum að hafa aðkomu að fjarskiptakerfi landsins,“ sagði Christopher Wray alríkislög- reglustjóri um Huawei. Bandarískar verslanir hættu í kjölfarið að selja vörur frá Huawei. Bandaríkjamenn hafa verið í for- svari fyrir þessari hreyfingu gegn Huawei. Þeir hafa til að mynda farið fram á það við bandamenn sína, sér í lagi þau ríki sem hýsa banda- rískar herstöðvar, að fjarlægja tæki Huawei alfarið úr stofnunum hins opinbera og meina því aðkomu að uppbyggingu fjarskiptakerfis. Allnokkur ríki hafa tekið undir með Bandaríkjamönnum. Ástralía hefur bannað Huawei í stofnunum hins opinbera og Gavin William- son, varnarmálaráðherra Breta, sagðist í desember hafa alvarlegar áhyggjur af starfsemi Huawei og nú Kínverskur risi í klandri Bandaríkin standa fyrir samstilltu átaki gegn kínverska tæknirisanum Huawei. Kínverjarnir eru sakaðir um njósnir fyrir hið opinbera, brot á viðskiptaþvingunum og hugverkaþjófnað. Þeir neita þó alfarið sök og stjórnvöld í Kína segja málið einfaldlega pólitískt. Það kemur á versta tíma fyrir Huawei sem tekur nú þátt í 5G-bylgjunni. Styr hefur staðið um kínverska fyrirtækið Huawei undanfarin misseri. NORDICPHOTOS/GETTY Matthew Whitaker, dómsmálaráð- herra Banda- ríkjanna, er hann tilkynnti um ákæru. NOR- DICPHOTOS/AFP Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is ÞESSAR ÁKÆRUR SNÚAST UM MEINT ALGJÖRT VIRÐ- INGARLEYSI HUAWEI FYRIR LANDSLÖGUM OKKAR OG ALMENNU VIÐSKIPTA - SIÐFERÐI ræða Evrópusambandsríki um blátt bann. Bretar og Kanadamenn íhuga sams konar bann og Bandaríkin og Ástralía hafa nú þegar sett. Ákæran Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna ákærði Huawei og fjármálastjórann Meng Wanzhou í vikunni. Fyrirtæk- ið sjálft er sakað um bankasvindl, tækniþjófnað og að hindra fram- gang réttvísinnar. Ákæran tengist sum sé ekki meintum njósnum um starfsemi hins opinbera né almenna borgara. Meng, sem var handtekin í Kanada að beiðni Bandaríkjanna undir lok síðasta árs, er sökuð um brot á viðskiptaþvingunum gegn Íran. Fyrirtækið og fjármálastjórinn neita sök. „Kínversk fyrirtæki hafa til fjölda ára brotið gegn útflutningslögum okkar og grafið undan þvingunum. 2 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 8 -A D 7 8 2 2 3 8 -A C 3 C 2 2 3 8 -A B 0 0 2 2 3 8 -A 9 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.