Fréttablaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 6
á brauðið, pönnuna og í baksturinn
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á Goðalandi
Fljótshlíð, föstudaginn 22. mars 2019 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera
komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum
fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir
aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 21. febrúar 2019.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Miðstöð íslenskra
bókmennta auglýsir
eftir umsóknum um
útgáfustyrki
Útgáfustyrkir eru veittir til útgáfu og miðlunar
íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er
að styrkja verk sem hafa menningarlegt og
þekkingarfræðilegt gildi.
þýðinga styrki
Þýðingastyrkir eru veittir til að þýða á íslensku
mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar
fagurbókmenntir, fræðirit og myndríkar bækur
fyrir börn og ungmenni.
styrki úr nýjum
barna- og
ungmennabókasjóði
Nú er í fyrsta sinn auglýst eftir umsóknum í nýjan
barna- og ungmennabókasjóð. Markmið hans
er að auðga og efla útgáfu vandaðra bóka, sem
skrifaðar eru á íslensku, fyrir yngri lesendur.
Umsóknarfrestur um
ofangreinda þrjá styrki
er til 18. mars 2019.
Umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar
á www.islit.is
ALÞINGI Miðf lokkurinn er orðinn
stærsti stjórnarandstöðuf lokkur-
inn á þingi og hefur nú níu þing-
menn eftir að Karl Gauti Hjaltason
og Ólafur Ísleifsson gengu til liðs
við flokkinn í gær. Líklegt þykir að
valdastrúktúrinn á þingi breytist.
Sigmundur Davíð segir í bréfi til
f lokksmanna að Miðf lokkurinn
muni fara fram á að kosið verði
aftur í nefndir Alþingis. Til þess
að svo megi verða þurfa 22 þing-
menn að samþykkja þá beiðni. Ekki
verður hlaupið að því fyrir Sigmund
Davíð að finna 13 þingmenn utan
við þingflokk Miðflokksins til þess
að samþykkja beiðni hans.
Þrír mánuðir eru síðan Karl Gauti
og Ólafur sátu ásamt þingmönnum
Miðflokksins á Klaustri Bar og töl-
uðu illa um mann og annan. Úr varð
að Karl Gauti og Ólafur voru reknir
úr Flokki fólksins vegna málsins.
Síðar hafa þingmenn Miðflokksins
skoðað það alvarlega að kæra ein-
stakling sem opinberaði dónaskap
þingmannanna.
Helga Vala Helgadóttir, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
þingsins, er annar formanna fasta-
nefnda þingsins úr hópi stjórnar-
andstöðunnar. Halldóra Mogensen
úr Pírötum er formaður velferðar-
nefndar þingsins. Verði stokkað
upp í nefndum þingsins er augljóst
að þetta riðlast þar sem Miðflokk-
urinn, sem nú hefur 9 þingmenn
og er stærsti stjórnarandstöðu-
f lokkurinn, fengi að ákveða fyrst
hvar þeir setjast í formannsstól. Þá
hefur heyrst að Miðf lokksmenn
vilji steypa Helgu Völu af stóli for-
manns sem hefur tekið á Klausturs-
málinu á vettvangi nefndarinnar.
„Ég verð að segja að ég sef alveg
róleg yfir þessum tíðindum og
þetta kom mér í raun ekki mikið á
óvart, að Karl Gauti og Ólafur færu
þessa leiðina,“ segir Helga Vala. „Ég
á eftir að sjá það hvaða 13 þingmenn
vilji fara í þessa vegferð með Mið-
flokknum, að stokka upp í nefndum
þingsins. Við skulum bara bíða og
sjá hvernig málin þróast.“
Ekki náðist í Sigmund Davíð
Gunnlaugsson við vinnslu fréttar-
innar. sveinn@frettabladid.is
Þurfa auka stuðning ef
breyta á nefndarskipan
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir í bréfi til
flokksmanna að hann ætli að fara fram á að skipað verði upp á nýtt í nefndir
þingsins. Hins vegar þarf 22 þingmenn til þess að samþykkja slíka beiðni.
Helga Vala Helgadóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Lík-
legt þykir að Miðflokkurinn vilji komast yfir formennsku í þeirri nefnd.
Ég verð að segja að
ég sef alveg róleg
yfir þessum tíðindum.
Helga Vala Helgadóttir, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
REYKJAVÍK Það ætti ekki að vera
erfitt að gera leikskólana í Reykja-
vík gjaldfrjálsa öllum í ljósi þess að
leikskólagjöld standa ekki undir
nema rétt rúmlega 9 prósentum af
rekstrarkostnaði þeirra. Þetta segir
Sanna Magdalena Mörtudóttir,
áheyrnarfulltrúi Sósíalistaf lokks
Íslands í borgarráði.
Á fimmtudag var lagt fram svar
skóla- og frístundasviðs við fyrir-
spurn Sönnu um hlutfall leikskóla-
gjalda af rekstrarkostnaði leikskóla.
Í svarinu segir að þetta hlutfall sé 9,3
prósent og hafi farið lækkandi frá
árinu 2014 þegar það var 12,1 pró-
sent af rekstrarkostnaði.
„Sósíalistaf lokkurinn leggur
áherslu á gjaldfrjálsa menntun á
öllum skólastigum og það er von
sósíalista að leikskólagjöldin verði
afnumin svo að hægt sé að vinna að
því að leikskólarnir verði með öllu
gjaldfrjálsir. Slíkt ætti ekki að vera
miklum erfiðleikum háð þar sem
leikskólagjöldin eru ekki hátt hlut-
fall af rekstrarkostnaði leikskól-
anna,“ segir í bókun Sönnu á fundi
borgarráðs.
„Afnám leikskólagjalda getur
breytt miklu fyrir fjölskyldur sem
eiga erfitt fjárhagslega og gjald-
frjálsir leikskólar stuðla að borg þar
sem þjónusta borgarinnar við börn
er gjaldfrjáls. Þá er mikilvægt að þeir
sem starfi á leikskólum borgarinnar
fái einnig greidd mannsæmandi laun
fyrir störf sín.“ – smj
Leikur einn að afnema leikskólagjöldin
Sanna Magdal-
ena Mörtudóttir,
borgarfulltrúi
Sósíalistaflokks-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Í frétt Fréttablaðsins á síðu 6 þann 21. febrúar var því ranglega haldið fram í fyrirsögn og efnistexta fréttar að
Alþingi væri hætt að veita ríkisborgararétt og „að heimild Alþingis til að veita mönnum ríkisborgararétt með
lögum verði afnumin“. Ekki er hægt að svipta löggjafann valdi til lagasetningar. Frumvarp dómsmálaráðherra
miðar að því að umsóknir um ríkisborgararétt verði að meginstefnu afgreiddar af stjórnvöldum.
LEIÐRÉTTING
BANDARÍKIN Robert Mueller, sér-
stakur saksóknari dómsmálaráðu-
neytisins, mun ekki skila skýrslu um
rannsókn sína í næstu viku. Mueller
er því enn að rannsaka meint áhrif
rússneskra stjórnvalda á bandarísku
forsetakosningarnar og meint sam-
ráð við framboð Donalds Trump.
Frá þessu greindi Reuters í gær-
kvöldi og hafði eftir embættismanni
innan dómsmálaráðuneytisins.
CNN hafði sagt frá því á miðviku-
dag að ráðuneytið myndi líklega til-
kynna í næstu viku um að Mueller
hefði afhent William Barr ráðherra
skýrslu sína.
„Það ætti ekki að koma neinum
á óvart að það standi ekki til að
afhenda skýrslu á meðan forsetinn
á í afar viðkvæmum viðræðum í
Víetnam,“ hafði Reuters eftir heim-
ildarmanni en Trump fundar með
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-
Kóreu, í Asíuríkinu eftir helgi.
Rannsókn Muellers hefur leitt af
sér fjölda ákæra, játninga og sakfell-
inga. Nýlega var Roger Stone, náinn
bandamaður forsetans, ákærður
fyrir meðal annars það að hafa sagt
rannsakendum ósatt. Trump hefur
alla tíð neitað því að nokkurt samráð
hafi átt sér stað. Þá hefur forsetinn
ítrekað talað um rannsóknina sem
„nornaveiðar“ á meðan stuðnings-
menn hans hafa hvatt hann til að
láta stöðva hana. – þea
Mueller ekki við það að klára
Robert Mueller, sérstakur
saksóknari. NORDICPHOTOS/AFP
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-5
D
6
4
2
2
6
3
-5
C
2
8
2
2
6
3
-5
A
E
C
2
2
6
3
-5
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K