Fréttablaðið - 23.02.2019, Side 26
NÚ UM HELGINA ER ÉG SVO
AÐ SETJA AF STAÐ NÝJA OG
SPENNANDI VÖRU, UNDIR
VÖRUMERKINU „LUXE BY
LINDA“ EN ÞAÐ ERU VÖRUR
ÚR SILKI, GJAFAPAKKNING
SEM INNIHELDUR KODDA-
VER, AUGNGRÍMU OG HÁR-
BAND, ALLT ÚR SILKI.
Linda hefur þjáðst af slæmri liðagigt síðast-liðin tuttugu ár og hafa undanfarin ár ver ið sérlega slæm, sem varð til þess að hún hlýddi
lækni sínum sem ávísaði henni
hlýrra loftslagi. „Ég var orðin það
slæm að ég átti í erfiðleikum með
daglegar athafnir svo sem að klæða
mig og borða. Ég var upphaflega í
lyfjameðferð á spítala mánaðar-
lega sem breyttist svo í að ég fór að
sprauta mig vikulega heima. Þau
lyf geta haft mjög alvarlegar auka-
verkanir og auðvitað var þetta ekki
lífsmáti sem ég vildi sætta mig við
og því ráðlagði læknirinn minn mér
að fara út í hita. Það var í raun besta
og virkasta ávísunin – og svo legg ég
mikla áherslu á mataræði. Hitinn
hefur verið sem algjört kraftaverk
fyrir mig og ég hef verið lyfjalaus frá
því ég kom hingað út en bólgur og
verkir koma og fara. Að vera lyfja-
laus eru auðvitað aukin lífsgæði
enda vil ég, eins og ef laust f lestir
sem lifa við sjúkdóma, gera allt til
þess að þurfa ekki að vera vikulega í
lyfjagjöf. Valið stóð því um lyfjagjöf
eða tímabundinn flutning í heitara
loftslag. Ég kaus hið síðara.“
Sjúkdómur Lindu kallast ikt-
sýki, krónískur sjúkdómur sem
ræðst á ónæmiskerfið og því fylgja
miklar bólgur og verkir í liða-
mótum. „Stress og álag fer mjög
illa í þennan sjúkdóm og í kjölfar
þess að ég missti fyrirtækið fékk ég
mjög slæmt gigtarkast.“ Linda segist
smám saman hafa lært á sjúkdóm-
inn, hún lifi heilbrigðu lífi og sé dug-
leg að fikra sig áfram í mataræði og
þetta tvennt hjálpi til við að halda
einkennum í skefjum. „Í byrjun árs
ákvað ég að taka út allt hveiti og
sykur og finn mikinn mun á mér
við það og bólgur hafa minnkað.
Ég stefni einmitt á að útbúa hveiti-
og sykurlaust heilsuprógramm þar
sem ég deili reynslu minni og leið-
beini þeim sem hafa áhuga á að
gera slíkt hið sama í gegnum vef-
síðu mína. Og ekki er verra að missa
nokkur kíló í leiðinni.“
Háskólanám á hraðferð
Þegar Linda missti fyrirtæki sitt,
Baðhúsið, sem hún hafði rekið í
tvo áratugi, fyrir þremur árum
stóð hún á ákveðnum krossgötum.
„Ég menntaði mig í heilsuráðgjöf
(e. health coaching) en langaði í
eitthvað meira og jafnvel að ögra
sjálfri mér og gera eitthvað alveg
nýtt og framandi.“ Það gerði Linda
svo sannarlega þegar hún skráði
sig í nám á félags- og lögfræði-
sviði Háskólans við Bifröst sem
er sambland heimspeki, hagfræði
og stjórnmálafræði (HHS). „Ég hef
tekið það á hraðferð, haldið námi
áfram á sumrin og er því svo til
að komast í mark en ég sit þessa
dagana við að skrifa lokaritgerðina
mína og ef allt gengur samkvæmt
áætlun, sem ég geri fastlega ráð
fyrir, mun ég útskrifast nú í sumar.“
Linda á f jölbreytta menntun
að baki í grafískri hönnun, hug-
leiðslukennslu, heilsuráðgjöf og
nú heimspeki, hagfræði og stjórn-
málafræði. „Svo er aldrei að vita
nema eitthvað meira bætist við.
Mér finnst svo margt heillandi, og
á ólíkum sviðum, eflaust á ég eftir
að mennta mig enn frekar og mér
finnst friðar- og átakafræði, sið-
fræði og trúarbragðafræði allt mjög
spennandi, en allt er óráðið um hve-
nær og þá hvað, verður fyrir valinu.
Ég er stöðugt að bæta við þekkingu
mína og fyrir utan námsefnið þá
hlusta ég á hljóðbækur eða gríp í
bók, í lágmark klukkutíma á dag,
oftast tengist það persónulegri upp-
byggingu (personal development),
viðskiptum og fjármálum og hinum
ýmsu andlegu málefnum. Ætli ég
geti ekki sagt að mitt stærsta og
mikilvægasta nám sé mitt eigið líf?“
„Ég hef alfarið alið hana upp ein“
Linda segir mæðgurnar una vel við
sitt í Kaliforníu en helsti munurinn
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Linda á að baki fjölbreytta menntun, meðal annars í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði og langar í frekara nám. MYND/ÁSTA KRISTJÁNS
Stærsta og
mikilvægasta
námið mitt
eigið líf
Linda Pétursdóttir hefur verið með
annan fótinn í Kaliforníu undanfarin
þrjú ár en flutti alfarið fyrir einu og
hálfu ári. Segja má að flutningurinn
hafi upphaflega ekki komið til af
góðu en fyrirtæki Lindu fór í þrot
árið 2014 og hún ákvað að fara að
ráði læknis síns og flytja í hlýrra
loftslag vegna gigtar. Umskiptin
reyndust þó mikið gæfuspor.
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-7
6
1
4
2
2
6
3
-7
4
D
8
2
2
6
3
-7
3
9
C
2
2
6
3
-7
2
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K