Fréttablaðið - 23.02.2019, Qupperneq 34
Besti leikari
Christian Bale Vice
Bradley Cooper A Star Is Born
Willem Dafoe At Eternity’s Gate
Rami Male Bohemian Rhapsody
Viggo Mortensen Green Book
Kolbrún: Christian Bale ber af
keppinautum sínum og er hreint
út sagt frábær Dick Cheney. Hann
hlýtur að hreppa Óskarinn. Ef ekki
hann þá Bradley Cooper sem er
gríðarlega sannfærandi fyllibytta í
A Star Is Born.
Þórarinn: Bradley Cooper er
leiðinlegur og á að fara tómhentur
heim. Fyrir utan að það er ekkert
mál að vera sannfærandi fylli
bytta. Tékkið bara á biðlistanum
á Vog. Malek er frábær í hlutverki
Freddie Mercury í Bohemian
Rhaps ody en ég held með Viggo
Mortensen sem er algerlega
frábær í Green Book og lyftir þeirri
mynd upp fyrir meðalmennsku
hjakkið sem hún í raun og veru
er þótt hún sé bráðskemmtileg
og góð hugvekja. Breytir engu
um það að Christian Bale fær
verðlaunin. Kaninn elskar leikara
sem fita sig og níðast á líkama
sínum fyrir hlutverk og þar fyrir
utan verður ekki af Bale tekið að
hann er magnaður í túlkun sinni á
ómenninu Dick Cheney.
Besta leikkona
Yalitza Aparicio Roma
Glenn Close The Wife
Olivia Colman The Favourite
Melissa McCarthy Can You Ever
Forgive Me?
Lady Gaga A Star Is Born
Kolbrún: Olivia Colman, sú stór
kostlega leikkona og geðuga
manneskja, fær mitt atkvæði.
Á ferlinum hefur hún sýnt og
sannað að hún getur allt og er jafn
frábær í dramatík og gamanleik.
Ég hef samt nokkra trú á að Glenn
Close muni sigra. Hún hefur marg
oft verið tilnefnd en aldrei fengið
Óskar og mér finnst líklegt að
Akademían muni velja hana núna.
Hún er góð í The Wife en Colman
er algjörlega mögnuð í The Fav
ourite og á skilið að vinna.
Þórarinn: Hér er enginn skortur
á úrvalsleikkonum en Colman
tekur þetta fyrirhafnarlaust enda
einfaldlega sú besta í keppninni.
Hafið í huga að þetta er kona
sem glansaði í upphafi ferils síns
í því frábæra breska sjónvarps
gríni Peep Show og síðar í alvöru
krimma í Broadchurch. Ótrúlega
fjölhæf og góð leikkona, jafnvíg á
drama og kómedíu. Ef sigurganga
hennar stoppar á Óskarnum þá er
eitthvað mikið að.
Besti leikari í aukahlutverki
Mahershala Ali Green Book
Adam Driver BlacKkKlansman
Sam Elliott A Star Is Born
Richard E. Grant Can You Ever Forgive Me?
Sam Rockwell Vice
Kolbrún: Þarna eru nokkrir ansi góðir samankomnir.
Sam Rockwell er mjög skemmtilegur Bush. Ég hef
alltaf verið skotinn í Richard E. Grant og hann er algjör
senuþjófur í Can You Ever Forgive Me? Ég vildi svo
gjarnan sjá hann hampa Óskarnum. Held samt að
Mahershala Ali, sá fantagóði leikari, vinni fyrir mjög
góða frammistöðu í Green Book.
Þórarinn: Sá ítrekað vanmetni leikari Sam Rockwell
er frábær sem George W. Bush í Vice og ég myndi
slengja styttunni á hann, jafnvel þótt ég elski Richard
E. Grant sem á allt gott skilið. Þótt ekki væri nema
aðeins fyrir framlag sitt til kvikmyndanna og leik
listarinnar í áratugi. En stemningin og straumurinn
er með Mahershala Ali sem stendur sig með sóma í
Green Book þótt hann hafi oft verið betri. Til dæmis
í Netflixþáttunum House of Cards og Luke Cage. En
hann fær uppklappið á sunnudagskvöld.
Besta leikkona í aukahlutverki
Amy Adams Vice
Marina de Tavira Roma
Regina King If Beale Street Could Talk
Emma Stone The Favourite
Rachel Weisz The Favourite
Kolbrún: Þarna hef ég enga sérstaka skoðun, hallast
samt að því að Amy Adams eigi helst skilið að vinna
en held að Regina King fái Óskarinn. Þetta er samt
flokkur þar sem allt getur gerst.
Þórarinn: Þessi flokkur er mögulega sá erfiðasti þetta
árið enda hver leikkonan annarri betri þannig að
ég læt tilfinningarnar ráða og krefst þess að Rachel
Weisz fái verðlaunin fyrir The Favourite. Kannski pínu
vegna þess að ég elska hana og finnst hún alltaf æði,
hvort sem það er í The Mummy, Enemy at the Gates,
About a Boy eða The Favourite. Hún er alltaf ómót
stæðileg og ofboðslega góð. Í The Favourite dansar
hún við tvær aðrar góðar leikkonur, í bitastæðari hlut
verkum, Oliviu Colman og Emmu Stone og hún heldur
samt sínu og er eiginlega bara best. Stórkostleg leik
kona sem á að vinna þessa keppni.
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-8
4
E
4
2
2
6
3
-8
3
A
8
2
2
6
3
-8
2
6
C
2
2
6
3
-8
1
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K