Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 59

Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 59
Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 21. mars 2018. Þær skal senda á sp@msr.is, ásamt ferilskrá og einkunnayfirliti. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Pétursdóttir, skrifstofustjóri. Umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Málflutningsstofa Reykjavíkur sérhæfir sig í lögfræðilegri ráðgjöf og málflutningi. Stofan þjónustar valin fyrirtæki og einstaklinga við úrlausn margvíslegra lögfræðilegra verkefna. Stofan er ört vaxandi og vinnur mörg áhugaverð og krefjandi verkefni m.a. fyrir nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins. Við leitum að vel menntuðum og metnaðarfullum einstaklingi til að vinna með okkur. Málflutningsstofa Reykjavíkur leitar að öflugum lögfræðingi MÁLFLUTNINGSSTOFA REYKJAVÍKUR REYKJAVÍK LEGAL MÁLFLUTNINGSSTOFA REYKJAVÍKUR REYKJAVÍK LEGAL571 5400 | msr.is Hæfniskröfur: • Fullnaðarpróf í lögfræði með fyrstu einkunn • Starfsreynsla á sviði lögfræði og lögmanns- réttindi eru kostur • Sjálfstæð vinnubrögð, nákvæmni og frumkvæði • Brennandi áhugi á lögfræði og viðskiptum • Lipurð í samskiptum, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna með öðrum • Vilji til að skara fram úr, bæta sig og áhugi á að starfa með öflugum hóp • Mjög gott vald á íslensku og ensku og góð almenn tölvukunnátta Forsætisráðuneytið auglýsir embætti seðlabankastjóra laust til umsóknar Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra til fimm ára í senn, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra tvisvar sinnum. Seðlabankastjóri skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Gerð er krafa um stjórnunarhæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Við skipun í embættið mun forsætisráðherra, skv. 2. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands, skipa þriggja manna nefnd er hefur það hlutverk að leggja mat á hæfni umsækjenda um embættið. Verður einn nefndarmaður skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og er hann formaður nefndarinnar. Í umsókn um embættið skal greina frá nafni, kennitölu og heimilisfangi umsækjanda auk þess sem veita skal ítarlegar upplýsingar um menntun viðkomandi, starfsferil og reynslu. Um laun og önnur starfskjör fer eftir ákvæðum laga um launa- og starfskjör seðlabankastjóra, sbr. b-lið 28. gr. laga um Seðlabanka Íslands. Skipað verður í embættið frá og með 20. ágúst 2019. Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019. Vinsamlega sendið umsóknir og starfsferilskrár til forsætisráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, eða á netfang ráðuneytisins postur@for.is. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins. Í forsætisráðuneytinu, 20. febrúar 2019. SKÁLAVARSLA Fitjamenn ehf., leita að skálaverði til starfa á Hungurfit að Syðra- Fjallabaki í sumar. Leitað er eftir einstaklingi eldri en 25 ára frá 1. júlí til 30. ágúst 2019. Skálinn er nýlegur, fallegur, einstaklega vel útbúinn og tekur í heildina 50 manns í gistingu. Ört vaxandi ferðamannastaður fyrir göngu hópa og hesta menn með Tindfjöll og dalastíg í næsta nágrenni. Starfið er launað og felst í móttöku gesta, þrifum og sam- skiptum við ferðaþjónustuaðila svo dæmi séu tekin. Kostur ef viðkomandi hefur þekkingu á Syðra-Fjallabaki, gönguleiðum og náttúru. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir ríkri þjónustu- lund og hafi góða tungumálakunnáttu, sé handlaginn og greiðvikinn. Ef þú hefur áhuga, þá vinsamlegast sendu póst með feril- skránni þinni á skalavordur@gmail.com. fyrir 20. apríl. Magnús veitir nánari upplýsingar í síma 697-5273. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um starfsemi Fitjamanna hér www.facebook.com/Hungurfit/ Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. capacent.is Við finnum rétta einstaklinginn í starfið 2 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 1 2 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 3 -A 2 8 4 2 2 6 3 -A 1 4 8 2 2 6 3 -A 0 0 C 2 2 6 3 -9 E D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.