Fréttablaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 100
DIVERTIMENTÓIN
HANS MOZARTS ERU
SVO OFT SPILUÐ Í MÓTTÖKUM
ÞANNIG AÐ MAÐUR HEFUR
SJALDAN HEYRT KVARTETT
SPILA ÞAU NEMA AÐ ÞAÐ SÉ
KAMPAVÍNSGLAMUR UNDIR.Við förum um víðan völ l , by r ju m og endu m á Vína rklassík erunum Mozart og Beethoven og inn á milli spilum
við 20. aldar brautryðjendurna Stra
vinsky og Webern. Þetta er því fjöl
breytileg og skemmtileg efnisskrá,“
segir Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari um tónleika Strok
kvartettsins Sigga í Norðurljósasal
Hörpu á morgun, sunnudag, klukk
an 16. Þeir eru á vegum Kammer
músíkklúbbsins, hinir síðustu á
vetrinum.
Upphafsverk tónleikanna er
Divertimento í Fdúr, K 138, eftir W.
Amadeus Mozart. „Það er verk sem
mig langaði að hafa þarna með, per
sónulega,“ segir Þórunn Ósk glað
lega og útskýrir það nánar. „Diverti
mentóin hans Mozarts eru svo oft
spiluð í móttökum þannig að maður
hefur sjaldan heyrt kvartett spila
þau nema að það sé kampavíns
glamur undir. En þetta er yndisleg
músík og þess vegna er gaman að
flytja hana svona á tónlistarpalli.“
Næst kemur Langsamer Satz sem
Þórunn Ósk segir vera eitt af æsku
verkum Antons Webern. „Það er
hásíðrómantískt verk, mjög fal
legt. Samkvæmt dagbókarfærslu
tónskáldsins er það lýsing á skógar
göngu með unnustunni.“
Þriðja atriðið er þrjú stutt stykki
eftir Igor Stravinsky. „Það er svo
lítið gaman að benda á að í þessum
stuttu kvartettverkum eru sömu
elementin og koma fyrir í Vorblót
inu hans Stravinskys sem Sinfó var
einmitt að spila á fimmtudaginn.
Glöggir hlustendur heyra ákveðinn
samhljóm. Þetta eru örstuttir kaflar,
taka bara sex mínútur í allt og þar er
sem sagt vitnað í Vorblótið, svolítið
gaman að þeirri tengingu.“
Svo er það „sveskjan í pylsuend
anum“, eins og Þórunn Ósk kallar
Strengjakvartett op. 130 eftir Lud
wig Van Beethoven. „Algert risa
verk, einn af þessum stóru, síðustu
kvartettum tónskáldsins. Það er
eins og að setja sér að klífa hæstu
tinda heims að spila þá,“ segir hún.
„Þarna setur Beethoven tóninn
fyrir framtíðartónskáldin. Þetta er
merkileg músík og ótrúlega gaman
að fást við hana en mikil áskorun
og vonandi náum við að skila henni
þokkalega.“
Eins og að klífa
hæstu tinda heims
Strokkvartettinn Siggi slær lokatóna á
vegum Kammermúsíkklúbbsins á þessu
starfsári. Hann leikur verk fjögurra
meistara í Norðurljósasalnum á morgun.
Sigurður Bjarki Gunnarsson, Una Sveinbjarnardóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir mynda Strokkvartettinn Sigga sem stofnaður var árið 2012.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um
listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar
fyrir grunnskólabörn
List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningar-
málaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um
land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og
vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barna-
menningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 22. mars 2019.
MAT Á UMSÓKNUM
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla
að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í
öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd
heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 10. maí 2019.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu
List fyrir alla, www.listfyriralla.is
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
3
-6
2
5
4
2
2
6
3
-6
1
1
8
2
2
6
3
-5
F
D
C
2
2
6
3
-5
E
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K