Fréttablaðið - 23.02.2019, Side 102

Fréttablaðið - 23.02.2019, Side 102
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is SANDBLÁSTURSFILMUR Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning BÆKUR Kvika Höfundur: Þóra Hjörleifsdóttir Útgefandi: Mál og menning blaðsíður: 134 Andlegt ofbeldi og afleiðingar þess, áhrif klámvæðingar og tvöföld skilaboð í sambandi við ást og ástarsambönd eru megin- inntak þessarar frumraunar Þóru Hjörleifsdóttur. Við hittum sögu- konuna Lilju fyrst þegar hún er í afar varnarlausri stöðu í upphafi ástarsambands sem hún veit þó aldrei hvenær hún má kalla ástar- samband því skilgreiningarvaldið á því er alfarið á hendi þess sem hún er hrifin af. Þá fáum við jafn- framt innsýn í fyrra líf hennar, sem verður æ sterkari andstæða við hver hún verður þegar líða tekur á söguna og hún verður smám saman ekki nema skugginn af sjálfri sér. Maðurinn sem hún elskar svona heitt brýtur niður allar varnir hennar og hún endar, eins og hún segir sjálf, eins og laukur sem er búið að taka öll lögin utan af. (bls. 81) Að lokum finnur hún útleið en sagan kennir að ofbeldisferlinu er ekki lokið. Sagan er sögð í stuttum köflum og svipmyndum af atvikum sem sögukona lýsir þannig að lesanda verður illt í hjartanu en hún sjálf upplifir að séu það gjald sem þarf að greiða fyrir ástina. Lýsingarnar á því hvernig hún fer ítrekað yfir sín eigin þolmörk til að geðjast manninum sem lengi er ekki tilbúinn til að skilgreina sig sem kærastann hennar eru sársaukafull- ar aflestrar og vekja upp hugleiðing- ar um hversu mikil áhrif klámáhorf frá unga aldri hefur á upplifanir ungs fólks af kynlífi. Gerandinn í þessu tilfelli birtist okkur ekki sem góð mann- eskja en hann er ekki samúðarlaus í sögunni heldur, skýringar á hegðun hans má rekja til erfiðrar barnæsku og eitraðra karlmennskuímynda. Stöðu Lilju er einnig hægt að skýra með því hversu sjálfsagt henni finnst að ganga yfir eigin mörk og ekki síst til hinna lífseigu goðsagna um ástina sem þolir allt og umber allt, ævintýri sem stúlkur drekka í sig, nánast í frumbernsku. Í sögunni er dregin upp sú nöturlega staða sem getur komið upp þegar stelpur sem horfa á rómantískar ástarsögur frá unga aldri og strákar sem horfa á klám, nánast frá sama aldri, hittast og reyna að eiga í samskiptum. Þetta er áhrifamikil og sterk bók, tungutakið þjált og eðlilegt í fyrstu persónu frásögn sem gerir að verkum að við komumst nær sögupersónunni og sjáum hvernig hún minnkar stöðugt undir þrýst- ingnum sem „ástin“ leggur á hana. Og það sker í hjartað hvernig hún, og allt of margir, skilgreina það sem hún upplifir sem ást. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Áhrifamikil bók um mörk, bæði mörkin milli andlegs ofbeldis, kláms og ástar og einnig þau mörk sem við berum innra með okkur og eigum lífið undir að virða. Kvika er hryllingssaga um ástina Þóra Hjörleifsdóttir rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Í TILEFNI 60 á ra afmælis Í ELDBORG HÖRPU 10. MAÍ „TÓNLEIKAR SEM ENGINN SANNUR SIMON AND GARFUNKEL AÐDÁANDI MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA“ - NORTH WEST END (ENGLAND) „SIMON & GARFUNKEL REVIVAL BAND FLYTJA ALLAR BESTU PERLUR DÚETTSINS“ - YSTADS ALLEHANDA (SVÍÞJÓÐ) SCARBOROUGH FAIR · BRIGHT EYES · MRS. ROBINSON · BRIDGE OVER TROUBLED WATER · THE BOXER EL CONDOR PASA · CECILIA · THE SOUND OF SILENCE OG FLEIRI OG FLEIRI 8 MANNA HLJÓMSVEIT MEÐ STRENGJUM FLYTJA BESTU LÖG SIMON & GARFUNKEL MIÐASALA Á HARPA.IS 2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 1 2 0 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 3 -4 E 9 4 2 2 6 3 -4 D 5 8 2 2 6 3 -4 C 1 C 2 2 6 3 -4 A E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.