Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 102
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
SANDBLÁSTURSFILMUR
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Ráðgjöf
Tilboð
Hönnun
Uppsetning
BÆKUR
Kvika
Höfundur: Þóra Hjörleifsdóttir
Útgefandi: Mál og menning
blaðsíður: 134
Andlegt ofbeldi og afleiðingar þess, áhrif klámvæðingar og tvöföld skilaboð í sambandi
við ást og ástarsambönd eru megin-
inntak þessarar frumraunar Þóru
Hjörleifsdóttur. Við hittum sögu-
konuna Lilju fyrst þegar hún er í
afar varnarlausri stöðu í upphafi
ástarsambands sem hún veit þó
aldrei hvenær hún má kalla ástar-
samband því skilgreiningarvaldið
á því er alfarið á hendi þess sem
hún er hrifin af. Þá fáum við jafn-
framt innsýn í fyrra líf hennar, sem
verður æ sterkari andstæða við hver
hún verður þegar líða
tekur á söguna og hún
verður smám saman
ekki nema skugginn
af sjálfri sér. Maðurinn
sem hún elskar svona
heitt brýtur niður allar
varnir hennar og hún
endar, eins og hún segir
sjálf, eins og laukur
sem er búið að taka öll
lögin utan af. (bls. 81)
Að lokum finnur hún
útleið en sagan kennir
að ofbeldisferlinu er ekki
lokið.
Sagan er sögð í stuttum
köflum og svipmyndum af
atvikum sem sögukona lýsir þannig
að lesanda verður illt í hjartanu en
hún sjálf upplifir að séu það gjald
sem þarf að greiða fyrir ástina.
Lýsingarnar á því hvernig hún fer
ítrekað yfir sín eigin þolmörk til
að geðjast manninum sem lengi er
ekki tilbúinn til að skilgreina sig sem
kærastann hennar eru sársaukafull-
ar aflestrar og vekja upp hugleiðing-
ar um hversu mikil áhrif klámáhorf
frá unga aldri hefur á upplifanir ungs
fólks af kynlífi.
Gerandinn í þessu
tilfelli birtist okkur
ekki sem góð mann-
eskja en hann er
ekki samúðarlaus
í sögunni heldur,
skýringar á hegðun
hans má rekja til erfiðrar barnæsku
og eitraðra karlmennskuímynda.
Stöðu Lilju er einnig hægt að skýra
með því hversu sjálfsagt henni
finnst að ganga yfir eigin mörk og
ekki síst til hinna lífseigu goðsagna
um ástina sem þolir allt og umber
allt, ævintýri sem stúlkur drekka í
sig, nánast í frumbernsku. Í sögunni
er dregin upp sú nöturlega staða sem
getur komið upp þegar stelpur sem
horfa á rómantískar ástarsögur frá
unga aldri og strákar sem horfa á
klám, nánast frá sama aldri, hittast
og reyna að eiga í samskiptum.
Þetta er áhrifamikil og sterk
bók, tungutakið þjált og eðlilegt í
fyrstu persónu frásögn sem gerir
að verkum að við komumst nær
sögupersónunni og sjáum hvernig
hún minnkar stöðugt undir þrýst-
ingnum sem „ástin“ leggur á hana.
Og það sker í hjartað hvernig hún,
og allt of margir, skilgreina það sem
hún upplifir sem ást.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Áhrifamikil bók um
mörk, bæði mörkin milli andlegs
ofbeldis, kláms og ástar og einnig þau
mörk sem við berum innra með okkur
og eigum lífið undir að virða.
Kvika er hryllingssaga um ástina
Þóra Hjörleifsdóttir rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Í TILEFNI 60 á
ra afmælis
Í ELDBORG HÖRPU 10. MAÍ
„TÓNLEIKAR SEM ENGINN SANNUR
SIMON AND GARFUNKEL AÐDÁANDI
MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA“
- NORTH WEST END (ENGLAND)
„SIMON & GARFUNKEL REVIVAL BAND
FLYTJA ALLAR BESTU PERLUR
DÚETTSINS“
- YSTADS ALLEHANDA (SVÍÞJÓÐ)
SCARBOROUGH FAIR · BRIGHT EYES · MRS. ROBINSON · BRIDGE OVER TROUBLED WATER · THE BOXER
EL CONDOR PASA · CECILIA · THE SOUND OF SILENCE OG FLEIRI OG FLEIRI
8 MANNA HLJÓMSVEIT MEÐ STRENGJUM FLYTJA BESTU LÖG SIMON & GARFUNKEL
MIÐASALA Á HARPA.IS
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
3
-4
E
9
4
2
2
6
3
-4
D
5
8
2
2
6
3
-4
C
1
C
2
2
6
3
-4
A
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K