Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 114
ALMAR SITUR ÞAR Á
PALLI, KLÆDDUR
SVÖRTUM HEILGALLA SEM
HYLUR BÆÐI ANDLIT OG
LÍKAMA, UTAN LÍTILLAR
OPNUNAR Á BAKI. ÞAR GEFST
GESTUM MEÐ RÍKA TJÁNINGAR-
ÞÖRF KOSTUR Á AÐ HÚÐFLÚRA
VERK Á BAK ALMARS.
VÖRUR ÚR EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM :
GK REYKJAVÍK OPNAR NÝJA
STÆRRI OG GLÆSILEGRI VERSLUN
Á HAFNARTORGI
KYNNT VERÐA TIL LEIKS NÝ OG
SPENNANDI VÖRUMERKI
SJÁUMST Í APRÍL!
HÖFUM OPNAÐ “POP UP”
FATAMARKAÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6
VÖNDUÐ MERKI FYRIR MINNA
AÐEINS TÍMABUNDIÐ
( ÁÐUR GK REYKJAVÍK )
BY MALENE BIRGER
SAMSØE & SAMSØE
HELMUT LANG
NOTES DU NORD
CALVIN KLEIN
J. LINDEBERG
KENZO
DIESEL
WHYRED
SIX ÁMES
JUST FEMALE
SUIT
2ND DAY
BILLI BI
SHOE THE BEAR
BRAKO
TATUAGGI
ROSEMUNDE
5 UNITS
PART TWO
NÜ
INWEAR
PIESZAK
& FLEIRI FLOTT MERKI
... finnur þú gullmola
í þinni stærð?
FATNAÐUR & SKÓR
FYRIR DÖMUR & HERRA
50-60%
AFSLÁTTUR
VIÐ FLYTJUM
OPNUNARTÍMI
MÁN - LAU 10 - 18
SUN 13 - 18
Almar er einn þeirra l i s t a m a n n a s e m Unnur Elísabet Gunn-arsdóttir leitaði til með listahátíð sína Ég býð mig fram, sem nú
fer fram í Tjarnarbíói. Um er að ræða
14 örverk sem saman koma í listahá-
tíð sem frumsýnd var á fimmtudag-
inn. Unnur leitaði á náðir nokkurra
eftirlætis listamanna sinna og bað
hvern og einn að semja örverk fyrir
sýninguna.
Segja má að Tjarnarbíó umturn-
ist þá daga sem sýningin fer fram
en það er ekki aðeins á sviðinu sem
listin er framin, heldur einnig í and-
dyrinu. Þar getur meðal annars að
líta verk Almars, Merking, sem svo
sannarlega vakti athygli frumsýn-
ingargesta sem sjálfum bauðst að
taka þátt, með því að setja varanlegt
mark sitt á Almar. Almar situr þar á
palli, klæddur svörtum heilgalla sem
hylur bæði andlit og líkama, utan
lítillar opnunar á baki. Þar gefst gest-
um með ríka tjáningarþörf kostur á
að húðflúra verk á bak Almars.
Aðspurður hvort það að bjóða lík-
ama sinn undir hvers kyns húðflúr
hafi verið það fyrsta sem honum datt
í hug þegar leitað var til hans svarar
Almar: „Þessi hugmynd fæddist í
rauninni í spjalli okkar Unnar. Ég
varð svo lítill í mér þegar svona frá-
bær listakona bað mig að skrifa eitt-
hvað sem hún gæti sett á svið. Ég fékk
hreinlega samviskubit og við ákváð-
um að nota það í verkið, hvernig ég
ætla sífellt að vekja athygli og skilja
eitthvað eftir mig í þeim sem ég hitti
en svo þegar manni býðst að setja
mark sitt varanlega á einhvern verð
ég allavega sjálfur bara feiminn,
hræddur og líður eins og allt sé mér
að kenna frekar en mér að þakka og
mig langaði til þess að miðla þeirri
tilfinningu beint til sýningargesta.“
Flestu fólki treystandi
„Við skiptum bakinu á mér í fimm
kassa á stærð við A5 og hver þeirra
opnast svo eins og jóladagatal
á sýningu.“ Nú þegar er búið að
skipuleggja fimm sýningar, en hvað
ætlar Almar að gera ef þær verða
fleiri? „Við tökum þetta bara einn
dag í einu,“ svarar hann hugsi.
Á stálplötu á palli Almars er að
finna leiðbeiningar eða 12 spora
kerfi eins og hann kýs að kalla
það, sem húðflúrarar eru beðnir
að virða til að gæta öryggis og
hreinlætis. „Ég er þeirrar skoðunar
að fólki sé ekki treystandi fyrr en
maður treystir því og þá sé flestum
treystandi,“ segir Almar og er sáttur
við þau verk sem komin eru til að
vera á baki hans.
„Það varð meira að segja til eitt
samvinnuverkefni í gær, það var
einn sem teiknaði hjarta og annar
bætti við ör í gegnum það. Ég er
bara hrærður yfir því að fólki vilji
skilja eitthvað eftir á mér og þannig
taka þátt,“ segir Almar sem segir
það henta sér vel að vera þátt-
takandi í sýningunni en sjálfur sjá
ekki neitt en andlit hans er algjör-
lega hulið á meðan á gjörningnum
stendur. „Það er ekki annað hægt
en að vera spenntur yfir að fá að
taka þátt í þessari frábæru sýningu
með þessu skemmtilega listafólki.“
bjork@frettabladid.is
Leyfir gestum
að húðflúra
sig á sýningu
Almar Steinn Atlason sem er líklega hvað
þekktastur sem Almar í kassanum eftir að
hafa dvalið nakinn í kassa árið 2015 sýnir
ekki síður djörfung í nýjasta verki sínu.
Baki Almars er skipt í fimm kassa, einn fyrir hverja sýningu.
MYND: LEIFUR WILBERG ORRASON
Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson á bæði örverk á hátíðinni og nú einnig lítið
húðflúrað listaverk á baki Almars. MYND/LEIFUR WILBERG ORRASON
Á stálplötu á palli Almars er að
finna leiðbeiningar til húðflúrara
um að gæta öryggis og hreinlætis.
MYND/LEIFUR WILBERG ORRASON
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R62 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
3
-6
C
3
4
2
2
6
3
-6
A
F
8
2
2
6
3
-6
9
B
C
2
2
6
3
-6
8
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K