Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 10
Ég stefndi alveg á að
vinna hástökkið og
grindahlaupið en sigurinn í
kúluvarpi kom á óvart. Það
er ekki beint mín sterkasta
grein.
María Rún Gunnlaugsdóttir
Valur - Selfoss 25-26
Valur: Magnús Óli Magnússon 8, Stiven Tob-
ar Valencia 4, Anton Rúnarsson 4, Sveinn
Aron Sveinsson 3, Ýmir Örn Gíslason 2.
Selfoss: Elvar Örn Jónsson 7, Alexander
Már Egan 5, Atli Ævar Ingólfsson 5, Haukur
Þrastarson 3, Hergeir Grímsson 2, Nökkvi
Dan Elliðason 2, Einar Sverrisson 2.
Efri
Haukar 25
Selfoss 24
FH 24
Valur 24
Afturelding 17
ÍBV 15
Neðri
Stjarnan 13
KA 13
ÍR 12
Fram 9
Akureyri 8
Grótta 8
Nýjast
Olís-deild karla
Meistararnir
mæta Stjörnunni
HANDBOLTI Dregið var í undanúrslit
Coca-Cola-bikarsins í handbolta í
gær. Fram, sem er ríkjandi bikar-
meistari í kvennaf lokki, mætir
Stjörnunni. Fram hefur oftast
orðið bikarmeistari kvenna, eða 15
sinnum. Liðið vann Hauka, 30-16,
í bikarúrslitum í fyrra. Stjarnan á
átta bikarmeistaratitla í sínu safni.
Í hinum undanúrslitaleiknum í
kvennaf lokki eigast ÍBV og Valur
við. Valskonur eru á toppi Olís-
deildarinnar en Eyjakonum hefur
ekki gengið vel eftir áramót. Valur
varð síðast bikarmeistari 2014 en
15 ár eru síðan ÍBV vann bikarinn.
Í karlaflokki mætast annars vegar
Fjölnir og Valur og hins vegar FH og
ÍR. Fjölnismenn, sem eru á toppi
Grill 66 deildarinnar, hafa aldrei
komist svona langt í bikarkeppn-
inni. Valsmenn eru hins vegar sigur-
sælastir í bikarkeppni karla með tíu
titla.
ÍR hefur tvisvar sinnum orðið
bikarmeistari, síðast árið 2013. Það
er hins vegar aldarfjórðungur síðan
FH-ingar urðu síðast bikarmeist-
arar. – iþs
Fram varð bikarmeistari kvenna í
15. sinn í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Pochettino þarf
að svara fyrir
hegðun sína
FÓTBOLTI Mauricio Pochettino,
knattspyrnustjóri Tottenham, þarf
að svara fyrir hegðun sína eftir leik
liðsins gegn Burnley um helgina
eftir að enska knattspyrnusam-
bandið ákvað að kæra hann í gær.
Pochettino veittist að dómara-
þríeykinu eftir leikinn ósáttur með
dómgæsluna eftir að Mike Dean
dæmdi ranglega horn á Tottenham
í upphafi seinni hálf leiks. Upp úr
hornspyrnunni kom fyrra mark
Burnley í leiknum.
Pochettino sást rífast við fjórða
dómarann á meðan á leik stóð og
við Dean að leikslokum. Hann virt-
ist gera sér grein fyrir því að hann
hafi gengið yfir strikið því hann
viðurkenndi að hann hefði gengið
of langt í viðtölum eftir leik. – kpt
María Rún Gunnlaugsdóttir sem skipti yfir í FH árið 2016 fór heim klyfjuð verðlaunapeningum frá Meistaramóti Íslands um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR FH-ingurinn
María Rún Gunnlaugsdóttir var
fimm verðlaunapeningum ríkari
eftir Meistaramót Íslands um helg-
ina. Hún vann til gullverðlauna í
hástökki, kúluvarpi og 60 metra
grindahlaupi og silfurverðlauna í
langstökki og 4x400 boðhlaupi með
sveit FH.
„Ég stefndi alveg á að vinna
hástökkið og grindahlaupið en
sigurinn í kúluvarpi kom á óvart.
Það er ekki beint mín sterkasta
grein,“ sagði María þegar blaða-
maður Fréttablaðsins sló á þráðinn
til hennar í gær.
„Í langstökkinu vorum við nokkr-
ar sem börðumst um 2. sætið þannig
að ég var sátt með að ná því,“ bætti
María við en Hafdís Sigurðardóttir
varð hlutskörpust í langstökki.
María nældi sér ekki bara í gull í
kúluvarpi og grindahlaupi heldur
bætti hún sinn persónulega árang-
ur í báðum greinum. Hún kastaði
kúlunni lengst 12,75 metra og kom
í mark á 8,71 sekúndu í grinda-
hlaupinu. Þá náði hún sínum besta
árangri á tímabilinu í langstökki
(5,79 metrar).
„Þetta kom svolítið á óvart því
langstökkið, kúluvarpið og grinda-
hlaupið var eiginlega allt á sama
tíma þannig að maður var á hlaup-
um á milli. Maður hafði ekki mik-
inn tíma til að einbeita sér að einni
grein,“ sagði María. Lið hennar, FH,
varð Íslandsmeistari í liðakeppni.
FH-ingar fengu 50 stig, tveimur
stigum meira en ÍR.
María hefur byrjað árið 2019 af
miklum krafti en um þarsíðustu
helgi varð hún meistari í fimmtar-
þraut á Íslandsmótinu innanhúss
í fjölþraut. Þar fékk hún 3.927 stig
sem er ekki langt frá hennar besta
árangri (3.940 stig).
„Ég klúðraði hástökkinu þar og
tapaði dýrmætum stigum. En ég
stefni á að taka aðra fimmtarþraut
eftir tvær helgar. Bikarinn er um
næstu helgi og síðan ætla ég að taka
eina aðra þraut,“ sagði María. Hún
segir að grindahlaupið og hástökkið
séu hennar sterkustu greinar eins og
staðan er núna. Það sé þó mismun-
andi eftir tímabilum hvaða greinar
hún leggi mesta áherslu á.
„Núna hef ég lagt áherslu á að
ná langstökkinu aftur upp. Maður
reynir að dreifa þessu og ná öllum
greinunum,“ sagði María.
Hún hóf ferilinn hjá Ármanni
en skipti yfir í FH 2016. „Ég er mjög
sátt við þá ákvörðun. Ég þurfti á
smá breytingu að halda. Stundum
þarf maður að breyta um umhverfi,“
sagði María.
Guðmundur Hólmar Jónsson er
hennar aðalþjálfari en Óðinn Björn
Þorsteinsson og Ragnheiður Ólafs-
dóttir hafa einnig verið henni innan
handar; Óðinn með kúluvarpið og
styrktarþjálfun og Ragnheiður með
grindahlaupið.
María segir ýmislegt á dagskrá
hjá sér í sumar. „Smáþjóðaleikar og
Evrópubikar í þraut og með lands-
liðinu. Ég stefni á góða bætingu
í þrautinni. Ég á það alveg inni,“
sagði hún. María segir að árangur
helgarinnar gefi henni byr undir
báða vængi.
„Algjörlega, þetta er mjög jákvætt
fyrir næstu mót og sumarið. Þetta
kemur manni í gang,“ sagði María
að lokum. ingvithor@frettabladid.is
Sigur í kúluvarpi kom á óvart
María Rún Gunnlaugsdóttir vann til fimm verðlauna á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum um
helgina. Hún varð einnig Íslandsmeistari í fimmtarþraut á dögunum. María segir árangurinn hvetjandi.
María Rán er hér í miðri atrennu í langstökkinu . FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-C
5
2
0
2
2
6
8
-C
3
E
4
2
2
6
8
-C
2
A
8
2
2
6
8
-C
1
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K