Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 38
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Berglind er mikill snillingur í kökubakstri og henni finnst ótrúlega skemmtilegt að halda veislu. Hún hlakkar til næstu fermingar. MYND/EYÞÓR Harpa Karin gullfalleg á fermingardaginn sinn. Kjólinn pantaði hún frá asos. Móðir hennar bakaði afar glæsilegar tertur af öllum stærðum. Til dæmis tvenns konar kransakökur. Fermingartertan með gullinu er glæsileg og gæti sómt sér vel í hvaða prinsessuveislu sem væri. Takið eftir skreytingunum og pinnakökunum. Allir litir eru útpældir á borðinu. Þarna setti Berglind upp nammibar eins og vinsælt er í fermingum. Berglind er vinsæll bloggari en síðan hennar nefnist gotteri.is. Þar geta lesendur kynnst alls kyns girnilegum kökum en Berglind hefur haldið námskeið í kökugerð. „Næsta ferming hjá mér verður eftir fjögur ár og ég er strax farin að hlakka til. Mér finnst þetta svo skemmtilegt,“ segir hún. „Bakstur hefur alltaf verið stórt áhugamál hjá mér. Margir leita til mín fyrir fermingar og brúðkaup. Ég var sjálf mjög skipulögð og sam­ viskusöm þegar ég fermdi 2017. Fólk getur séð á síðunni minni hvernig ég setti upp smárétti fyrir veisluna miðað við ákveðinn fjölda. Dóttir mín, Harpa Karin Her­ mannsdóttir, hafði líka ákveðnar skoðanir og við plönuðum þetta í jólafríinu hennar. Við vorum sem sagt mjög skipulagðar,“ segir Berglind. „Við pöntuðum til dæmis allar skreytingarnar á netinu og það er gott að vera tímanlega í því. Hún valdi síðan kjól í stíl sem við pöntuðum á asos. Harpa er núna að klára tíunda bekk í Varmár­ skóla og svo tekur alvaran við næsta vetur í framhaldsskóla,“ segir Berglind sem segist trúa því að næst þegar hún þarf að ferma verði tískan líklega orðin svolítið breytt. Fermingarterta með gulláferð (uppskriftin dugar fyrir 3 form, 6, 8 og 12́ ́) Hér þarf að notast við smelluform og kökuplast (fæst í Allt í köku en einnig oft hægt að fá að kaupa í bakaríum). Eftir að kökubotnar hafa verið bakaðir þarf að klæða smelluformið að innan með köku­ plasti og raða lögunum saman inni í því. Mikilvægt er að vera einnig með pappaspjöld fyrir tvo minni botnana og „burðarsúlur“. Brownie botnar 450 g smjör 285 g sykur 210 g púðursykur 6 egg 600 g suðusúkkulaði 1 tsk. salt 5 msk. bökunarkakó 225 g hveiti 7 msk. volgt vatn 4 tsk. vanilludropar Þeytið saman sykur (báðar tegundir) og smjör þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum saman við einu í einu og skafið á milli. Bræðið súkkulaðið og hrærið í blönduna. Setjið þurrefnin út í og loks vatnið og vanilludropana. Klæðið smelluform með bökunar­ pappír í botninn og spreyið PAM á hliðarnar. Skiptið deiginu á milli formanna svo allir botnarnir verði svipaðir á þykkt. Bakið í 175° heitum ofni í um 30­35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum (ekki blautu deigi). Kælið og geymið þar til allt annað er tilbúið. Svampbotnar 6 egg 570 g sykur 375 g hveiti 3 tsk. lyftiduft 300 ml vatn 150 g smjör Þeytið saman sykur og egg þar til létt og ljóst. Hitið saman vatn og smjör og leggið til hliðar. Blandið hveiti og lyftidufti saman við eggjablönduna og loks vatni og smjöri þegar bráðið. Skiptið niður í formin þrjú. Bakið við 200°C í um 15 mínútur eða þar til botn­ arnir verða gullinbrúnir. Kælið og skiptið síðan hverjum botni í tvennt með kökuskera, geymið þar til síðar. Jarðarberjamús 15 gelatínblöð 230 g sykur 1 kg jarðarber (maukuð í bland- ara) 5 msk. sítrónusafi 1 l rjómi (þeyttur) Leggið gelatínblöðin í bleyti í um 1 lítra af köldu vatni. Hitið saman maukuð berin, sítrónu­ safann og sykurinn þar til heitt (alls ekki sjóða). Bætið gelatíni saman við berjablönduna, hafið hana á vægum hita og hrærið vel á milli hvers blaðs. Hitið þar til vel blandað (um 5 mín.) og færið þá yfir í skál og leyfið að ná stofuhita. Því næst má kæla blönduna í um klukkustund en hræra vel í henni á milli. Um leið og blandan fer að verða hlaupkennd má blanda henni saman við þeytta rjómann með sleif og smyrja ofan á brownie botnana. Kælið og leyfið músinni að taka sig áður en haldið er áfram (a.m.k. 1 klst.). Þeyttur rjómi og samsetning 1 l þeyttur rjómi á milli svamp- botnanna Stífþeytið rjómann og haldið því næst áfram með samsetninguna. Fyrri svampbotinn settur ofan á jarðarberjamúsina, því næst þeyttur rjóminn og loks seinni svampbotninn. Nú þarf að plasta kökurnar og kæla í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt. Smelluforminu er þá smeygt af og plastið fjarlægt. Kakan ætti að vera stíf og fín. Hér þarf að hjúpa hverja köku með þunnu lagi af hvítu smjörkremi, stafla henni með stoðum og skreyta að vild. Að þessu sinni notaði ég orkídeur, rósir, brúðarslör og litlar makka­ rónur (litaði ljósar makkarónur með gulldufti). Fermingarterta skreytt með gulli Berglind Hreiðarsdóttir hefur haldið úti glæsilegri bloggsíðu þar sem sjá má gullfallegar tertur. Berglind bauð upp á gulltertu í fermingu dóttur sinnar og gefur hér uppskriftina að henni. 22 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -9 3 C 0 2 2 6 8 -9 2 8 4 2 2 6 8 -9 1 4 8 2 2 6 8 -9 0 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.