Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 38
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Berglind er mikill snillingur í kökubakstri og henni finnst ótrúlega
skemmtilegt að halda veislu. Hún hlakkar til næstu fermingar. MYND/EYÞÓR
Harpa Karin gullfalleg á fermingardaginn sinn. Kjólinn pantaði hún frá asos. Móðir hennar
bakaði afar glæsilegar tertur af öllum stærðum. Til dæmis tvenns konar kransakökur.
Fermingartertan með gullinu er glæsileg og gæti sómt sér vel í hvaða prinsessuveislu sem
væri. Takið eftir skreytingunum og pinnakökunum. Allir litir eru útpældir á borðinu.
Þarna setti
Berglind upp
nammibar eins
og vinsælt er í
fermingum.
Berglind er vinsæll bloggari en síðan hennar nefnist gotteri.is. Þar geta lesendur kynnst
alls kyns girnilegum kökum en
Berglind hefur haldið námskeið í
kökugerð. „Næsta ferming hjá mér
verður eftir fjögur ár og ég er strax
farin að hlakka til. Mér finnst
þetta svo skemmtilegt,“ segir hún.
„Bakstur hefur alltaf verið stórt
áhugamál hjá mér. Margir leita til
mín fyrir fermingar og brúðkaup.
Ég var sjálf mjög skipulögð og sam
viskusöm þegar ég fermdi 2017.
Fólk getur séð á síðunni minni
hvernig ég setti upp smárétti fyrir
veisluna miðað við ákveðinn
fjölda.
Dóttir mín, Harpa Karin Her
mannsdóttir, hafði líka ákveðnar
skoðanir og við plönuðum þetta
í jólafríinu hennar. Við vorum
sem sagt mjög skipulagðar,“ segir
Berglind. „Við pöntuðum til dæmis
allar skreytingarnar á netinu og
það er gott að vera tímanlega í því.
Hún valdi síðan kjól í stíl sem við
pöntuðum á asos. Harpa er núna
að klára tíunda bekk í Varmár
skóla og svo tekur alvaran við
næsta vetur í framhaldsskóla,“
segir Berglind sem segist trúa því
að næst þegar hún þarf að ferma
verði tískan líklega orðin svolítið
breytt.
Fermingarterta með
gulláferð
(uppskriftin dugar fyrir 3 form,
6, 8 og 12́ ́)
Hér þarf að notast við smelluform
og kökuplast (fæst í Allt í köku en
einnig oft hægt að fá að kaupa í
bakaríum). Eftir að kökubotnar
hafa verið bakaðir þarf að klæða
smelluformið að innan með köku
plasti og raða lögunum saman inni
í því. Mikilvægt er að vera einnig
með pappaspjöld fyrir tvo minni
botnana og „burðarsúlur“.
Brownie botnar
450 g smjör
285 g sykur
210 g púðursykur
6 egg
600 g suðusúkkulaði
1 tsk. salt
5 msk. bökunarkakó
225 g hveiti
7 msk. volgt vatn
4 tsk. vanilludropar
Þeytið saman sykur (báðar
tegundir) og smjör þar til létt og
ljóst. Bætið eggjunum saman
við einu í einu og skafið á milli.
Bræðið súkkulaðið og hrærið í
blönduna. Setjið þurrefnin út í og
loks vatnið og vanilludropana.
Klæðið smelluform með bökunar
pappír í botninn og spreyið PAM
á hliðarnar. Skiptið deiginu á
milli formanna svo allir botnarnir
verði svipaðir á þykkt. Bakið í 175°
heitum ofni í um 3035 mínútur
eða þar til prjónn kemur út með
smá kökumylsnu á endanum (ekki
blautu deigi). Kælið og geymið þar
til allt annað er tilbúið.
Svampbotnar
6 egg
570 g sykur
375 g hveiti
3 tsk. lyftiduft
300 ml vatn
150 g smjör
Þeytið saman sykur og egg þar til
létt og ljóst. Hitið saman vatn og
smjör og leggið til hliðar. Blandið
hveiti og lyftidufti saman við
eggjablönduna og loks vatni og
smjöri þegar bráðið. Skiptið niður
í formin þrjú. Bakið við 200°C í
um 15 mínútur eða þar til botn
arnir verða gullinbrúnir. Kælið
og skiptið síðan hverjum botni í
tvennt með kökuskera, geymið þar
til síðar.
Jarðarberjamús
15 gelatínblöð
230 g sykur
1 kg jarðarber (maukuð í bland-
ara)
5 msk. sítrónusafi
1 l rjómi (þeyttur)
Leggið gelatínblöðin í bleyti í
um 1 lítra af köldu vatni. Hitið
saman maukuð berin, sítrónu
safann og sykurinn þar til heitt
(alls ekki sjóða). Bætið gelatíni
saman við berjablönduna, hafið
hana á vægum hita og hrærið vel
á milli hvers blaðs. Hitið þar til vel
blandað (um 5 mín.) og færið þá
yfir í skál og leyfið að ná stofuhita.
Því næst má kæla blönduna í um
klukkustund en hræra vel í henni
á milli. Um leið og blandan fer
að verða hlaupkennd má blanda
henni saman við þeytta rjómann
með sleif og smyrja ofan á brownie
botnana. Kælið og leyfið músinni
að taka sig áður en haldið er áfram
(a.m.k. 1 klst.).
Þeyttur rjómi og samsetning
1 l þeyttur rjómi á milli svamp-
botnanna
Stífþeytið rjómann og haldið því
næst áfram með samsetninguna.
Fyrri svampbotinn settur ofan
á jarðarberjamúsina, því næst
þeyttur rjóminn og loks seinni
svampbotninn. Nú þarf að plasta
kökurnar og kæla í að minnsta
kosti 4 klukkustundir eða yfir
nótt. Smelluforminu er þá smeygt
af og plastið fjarlægt. Kakan ætti
að vera stíf og fín. Hér þarf að
hjúpa hverja köku með þunnu lagi
af hvítu smjörkremi, stafla henni
með stoðum og skreyta að vild.
Að þessu sinni notaði ég orkídeur,
rósir, brúðarslör og litlar makka
rónur (litaði ljósar makkarónur
með gulldufti).
Fermingarterta skreytt með gulli
Berglind Hreiðarsdóttir hefur haldið úti glæsilegri bloggsíðu þar sem sjá má gullfallegar tertur.
Berglind bauð upp á gulltertu í fermingu dóttur sinnar og gefur hér uppskriftina að henni.
22 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-9
3
C
0
2
2
6
8
-9
2
8
4
2
2
6
8
-9
1
4
8
2
2
6
8
-9
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K