Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 64
ÉG HEF ALLTAF HAFT GAMAN AF AÐ BREYTA TIL OG PRÓFA NÝJAR AÐFERÐIR. Aðeins 95.920 kr. DENVER 2,5 s.æta sófi & stóll 2,5 sæta sófi og stóll í klassískum stíl. Dökkblátt, ljósbleikt (Dusty Rose), dökkgrænt og koparlitt sléttflauel. Sófi: 184 x 82 x 82 cm Fullt verð: 119.900 kr. Stóll: 84 x 82 x 82 cm Fullt verð: 69.900 kr. Aðeins 55.920 kr. Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN FYRIR ÞÍNAR BESTU STUNDIR Afgreiðslutími Rvk Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum) Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi) Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI 20% AFSLÁTTUR Tumi Magnússon sýnir verk sín á sýningunni Áttir sem nú stendur yfir í Listasafni Akur-eyrar. Verkin eru í þremur sölum. Ekki er langt síðan safnið var endurnýjað og salir þess stækkaðir. „Það hefur verið fallega gert og rýmin eru ólík. Ég fékk þarna þrjá sali sem eru hver með sín hlutföll, lofthæð og karakt- er en öll mjög einföld og henta vel fyrir myndlistarsýningar,“ segir Tumi. Verk tekin á göngu Spurður um verkin á sýningunni segir hann: „Hreyf ing og tími koma við sögu í öllum verkunum. Í tveimur sölum eru vídeóinnsetn- ingar. Önnur vídeóinnsetningin er á fjórum stórum skjávörpum. Vídeó- ið tók ég á göngu og vélin snýr niður og í norður. Þar sem vélin sneri allt- af í sömu átt og snerist ekki með mér þegar ég tók beygjur þá sést á vídeó- inu hvernig jörðin streymir framhjá í mismunandi áttir. Upptökurnar eru fjórar, teknar á mismunandi stöðum. Eftir á skeytti ég upptök- urnar saman þannig að fótatakið verður alls staðar í takt. Úr verður heildarryþmi bæði á hreyfingunni og myndinni.“ Annað vídeóverk í öðrum sal heitir Fótganga. „Í þessum sal eru tólf vídeóskjáir, sex á hvorum vegg. Það vídeó sýnir einnig göngu og er tekið alveg niður við jörð og öðru hvoru sést í fót sem hverfur síðan. Þarna er um að ræða mismunandi upptökur á mismunandi stöðum og skórnir eru mismunandi. Þessum upptökum raðaði ég síðan saman þannig að úr verður ein ganga með mismunandi skóm, undirlagi og hljóðum.“ Nýtir sér númer svindlara Í þriðja sal listasafnsins eru sjálf- stæð verk, tvenns konar. „Þarna eru litlir hljóðskúlptúrar, frá þeim kemur hljóð á mínútu fresti, annars vegar f lugvélarhljóð og hins vegar bílhljóð. Flugvélin f lýgur fram hjá borðinu og bíllinn fram hjá lamp- anum sem hangir á vegg. Annars staðar í salnum eru teikningar af símanúmerum en ég hef gert slík verk öðru hvoru frá árinu 2002. Að þessi sinni eru teikningar af tveim- ur símanúmerum sem eiga það sam- eiginlegt að vera frá svindlurum. Ég bý í Danmörku á veturna og þar kemur fyrir að hringt er í mann frá öðrum heimshornum og þegar maður svarar er lagt á. Svindlar- arnir gera þetta í von um að maður hringi til baka og þá er hægt að svíkja af manni pening sem tekinn er af símareikningi.“ Tumi segist þó aldrei hafa gengið í þessa gildru, en nýtti sér símanúmer tveggja svindl- ara í verkið. Tumi hefur fengist við myndlist í áratugi. Spurður um þróun í mynd- list sinni segir hann: „Ég hef alltaf haft gaman af að breyta til og prófa nýjar aðferðir. Þegar ég var í námi vann ég með 8 millimetra kvik- myndir, ljósmyndir og smáskúlp- túra. Á níunda áratugnum færði ég mig yfir í málverk sem í byrjun voru fígúratíf en þróuðust yfir í hug- myndaleg málverk og málverkainn- setningar. Um 2000 fóru vídeóinn- setningar að verða áberandi. Það sem þessi margvíslegu verk mín eiga sameiginlegt er að aðalvið- fangsefnið er tíminn og rýmið.“ Tíminn og rýmið Tumi Magnússon sýnir verk sín á sýningunni Áttir sem nú stendur yfir í Listasafni Akureyrar. Nýtir þar þrjá sali. „Hreyfing og tími koma við sögu í öllum verkunum,“ segir Tumi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Áttir er videó sem tekið er niður fyrir fætur og myndavélin vísar í norður. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -C 0 3 0 2 2 6 8 -B E F 4 2 2 6 8 -B D B 8 2 2 6 8 -B C 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.