Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 20
Ég hlakka mikið
til fermingardags-
ins, get ekki neitað því
að það er alltaf gaman
að fá gjafir.
Rökkvi Guðnason
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Foreldrar Rökkva eru Margrét Benediktsdóttir förðunar-fræðingur og Guðni Finns-
son tónlistarmaður sem f lestir
þekkja úr Pollapönkurum. Mar-
grét segir að Rökkvi hafi ekki gert
miklar kröfur fyrir fermingar-
daginn. „Undirbúningurinn er
þægilegur, maður gerir þetta
smátt og smátt. Frekar létt og
þægilegt. Hann er ekki mikill
jakkafatamaður svo við völdum
einfaldan og sportlegan klæðnað.
Í veislunni sem haldin verður
heima ætlum við að bjóða upp á
smárétti og tertur, jafnvel sushi.
Við eigum von á milli 40-50
gestum,“ segir Margrét þegar við
forvitnuðumst um væntanlega
fermingu.
„Rökkvi valdi sjálfur myndina
á boðskortið og var með í að
skipuleggja veisluna. Annars
fannst honum ferming systur
sinnar mjög fín og ætlar að hafa
þetta svipað,“ segir Margrét og
bætir við að Rökkvi hafi gaman af
því að prófa alls kyns rétti. „Hins
vegar borðar hann ekki sælgæti
svo það verður enginn nammibar
en í staðinn bjóðum við upp á
franskar makkarónur og kon-
fekt.“
Margrét segist hafa límt upp
myndir af systur Rökkva, Álf-
rúnu, á fermingardegi hennar.
Ég geri það líka fyrir Rökkva ef
hann leyfir það,“ segir hún. „Mér
finnst mjög gaman að undirbúa
heimilið fyrir veislu og gaman að
taka á móti gestum. Ég er minna
fyrir að kokka, maðurinn minn
er betri í því. Þar sem hann hefur
lítinn tíma núna þá finnst okkur
ágætt að fá matreiðslumann til
aðstoðar,“ segir hún.
Rökkvi segist fara í fermingar-
fræðslu á hverjum mánudegi sem
passar honum þó misvel vegna
íþróttaæfinga hans. Rökkvi
æfir CrossFit og er að undirbúa
sig fyrir heimsmeistaramótið í
sínum aldursf lokki. Hann hefur
þó ekkert á móti fermingar-
fræðslunni, segir hana áhuga-
verða en hún snúist að mestu um
heimspeki. „Það er alltaf gaman í
þessum tímum,“ segir hann. „Líf
mitt snýst annars um CrossFit
sem ég stunda fimm sinnum í
viku. Hina dagana fer ég í léttara
sport eins og sund,“ segir Rökkvi
sem stefnir á að verða heims-
meistari í sinni grein.
„Það eru mjög margir unglingar
að æfa CrossFit enda er þetta
mjög vinsælt sport. Ég var í fót-
bolta en finnst skemmtilegra
að vera í einstaklingsíþróttum,“
segir Rökkvi og viðurkennir að
vera orðinn nokkuð sterkur þegar
hann er spurður.
„Ég hlakka mikið til ferm-
ingardagsins, get ekki neitað
því að það er alltaf gaman að fá
gjafir. Mér fannst fermingardagur
systur minnar mjög skemmtileg-
ur og hlakka til að upplifa þetta
sjálfur,“ segir fermingardrengur-
inn sem stefnir á Verzlunarskóla
Íslands eftir tíunda bekk. „Ég hef
mjög mikinn áhuga á heilsu, hollu
fæði og góðum lífsstíl. Mig langar
í einhvers konar heilsutengt nám
í framtíðinni.“
Ætlar að ná langt í CrossFit
Mæðginin, Rökkvi og Margrét, eru mjög spennt fyrir fermingardeginum
sem verður í lok mars. Rökkvi fermist borgaralega. MYND/ERNIR
Rökkvi Guðnason
ákvað að fermast
borgaralega eins
og eldri systir
hans gerði. Hann
verður fermdur
31. mars og hlakk-
ar mikið til.
For Porter, body advocate,
makes confidence possible.
#MAKEITPOSSIBLE
4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-8
0
0
0
2
2
6
8
-7
E
C
4
2
2
6
8
-7
D
8
8
2
2
6
8
-7
C
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K