Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 52
Útskornu ávextirnir hennar Arndísar eru sannkölluð listaverk eins og sjá má.
Það eru margir að
spá í hollustu og
finnst þá líka fínt að
bjóða upp á ávexti í
staðinn fyrir eða með
kökunum.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Ég lærði að skera út ávexti fyrir nokkrum árum af annarri filippseyskri konu. Síðan hef
ég verið að æfa mig og læra meira
bæði með því að prófa mig áfram
en líka með því að skoða mynd-
bönd á YouTube,“ segir Arndís.
Hún byrjaði á því að bjóða upp
á fallega útskorna ávexti í veislum
sem hún hélt sjálf. Skreytingarnar
vöktu mikla athygli og spurðust
f ljótlega út. Nú hefur hún útbúið
æði margar skreytingar fyrir
veislur af öllum toga, bæði
fermingar, brúðkaup, afmæli og
aðrar uppákomur.
Arndís hefur búið í Kef lavík í
átján ár, eða frá því hún f lutti til
Íslands frá Filippseyjum. „Fjöl-
skylda fyrrverandi mannsins
míns var hér á Íslandi og við
f luttum hingað með dóttur okkar
árið 2001. Á þeim tíma var ekki
Listaverk úr ávöxtum
Listilega útskornir ávextir eru einkennismerki Arndísar Lífar Birgisson. Ávaxtalistaverkin hennar
sóma sér prýðilega á veisluborðum í fermingum enda vekja þau sérstaka athygli veislugesta.
Sjá úrvalið á facebook síðu PartýbúðarinnarFaxafeni 11, RVK | s 534 0534 | partybudin
Glæsilegt
fermingarskraut
mjög erfitt að koma hingað frá
Asíu en það er allt annað og erfið-
ara í dag,“ segir Arndís en hún og
maður hennar skildu árið 2009 og
hann hélt aftur heim en Arndís
vildi búa áfram á Íslandi. Hún er í
dag gift Brynjari Rafni Birgissyni
og starfar sem vaktstjóri á Mat-
húsinu á Kef lavíkurf lugvelli.
Arndís hefur haft áhuga
á matargerð frá unga aldri
og útskrifaðist úr námi í
matartækni. „Kennarinn minn í
matartækninni hvatti mig áfram
í útskurðinum og pantaði meira
að segja sjálfur hjá mér útskorna
ávexti í fermingarveislu,“ segir
Arndís sem einnig hefur séð um
matreiðslu í stórum og smáum
veislum.
„Ég elda íslenskan mat eða
filippseyskan og stundum bæði.
Fólk hefur gaman af að prófa eitt-
hvað nýtt. Ég elda líka vegan rétti
en þeir eru mjög vinsælir núna.
Það eru margir að spá í hollustu
og finnst þá líka fínt að bjóða upp
á ávexti í staðinn fyrir eða með
kökunum.“
Ávaxtaskreytingar Arndísar
vekja alltaf óskipta athygli í öllum
veislum. Hróður hennar hefur
spurst út og hún segir að nóg verði
að gera hjá henni á næstunni í
útskurðinum.
Á Facebook-síðu Arndísar Lífar er
hægt að skoða myndaalbúm með
myndum af skreytingum sem hún
hefur útbúið.
36 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-8
E
D
0
2
2
6
8
-8
D
9
4
2
2
6
8
-8
C
5
8
2
2
6
8
-8
B
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K