Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 50
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Aldís í fallega kjólnum á fermingardaginn sinn. Aldís María í dag. Hún stefnir á listnám í framtíðinni. Aldís María hafði ákveðnar hugmyndir um hvernig kjól hún vildi fermast í. Hún leitaði lengi að rétta kjólnum en án árangurs. „Mér leist eiginlega ekkert á það sem ég sá í búðum. Mig lang- aði í frekar gamaldags kjól, svona eins og voru 1940-1950. Mömmu datt þá í hug að fá frænku mína, Önnu Guðnýju Magnúsdóttur, en hún er lærður klæðskeri, til að sauma draumakjólinn minn. Hún var sko alveg til í að gera það svo við fórum að leita að rétta efninu,“ segir Aldís María. „Ég fann það mjög fljótt enda var mikið úrval af efnum hér á landi,“ bætir hún við. „Síðan settumst við niður og teiknuðum kjólinn í sameiningu. Ég sagði hvað ég vildi og úr varð samstarfsverkefni okkar. Ég var virkilega ánægð með kjólinn og naut mín ótrúlega vel á fermingar- deginum,“ segir Aldís. „Sumir gestir höfðu á orði hversu fallegur kjóll- inn væri. Ég hef samt ekki notað hann síðan. Hugsa samt að hann passi enn,“ segir hún. Aldís María er dóttir Halldóru Ingunnar Magnúsdóttur og Einars Ísfeld Ríkharðssonar. Hún ákvað hvernig veislan ætti að vera með foreldrum sínum. „Við ákváðum að hafa smárétti eins og litla ham- borgara og svoleiðis en líka tertur. Þetta var ótrúlega skemmtilegur dagur og ég fékk margt mjög fal- legt. Besta gjöfin var úkúlele sem ég hef spilað mikið á. Mig langaði í svoleiðis hljóðfæri og hef verið að læra á það sjálf. Ég ætlaði eiginlega að kaupa úkúlele fyrir fermingar- peninginn en þurfti þess ekki. Ég fékk líka peninga að gjöf, keypti mér góðan síma og lagði afganginn inn í banka,“ segir Aldís. „Foreldrar mínir gáfu mér síðan húsgögn í her- bergið mitt.“ Aldís María er að klára tíunda bekk í vor. Leiðin liggur í mennta- skóla enda langar hana í fram- haldinu í listaháskóla. „Ég hef mikinn áhuga á listnámi, hef áhuga á tónlist og teikningum. Ég myndi hvetja alla krakka til að fermast. Það breytir kannski ekki miklu í lífi manns en er mjög skemmtileg upp- lifun og gaman að muna þennan dag. Við vorum með bingó og pub quiz og ég held að allir hafi skemmt sér vel þennan dag.“ Frænkan saumaði draumakjólinn Aldís María Einarsdóttir fermdist 8. apríl 2017 í Lindakirkju. Hún á afar góðar minningar frá deginum og segir að hann hafi verið ógleymanlegur. Vodafone býður upp á fjölbreytt úrval af snjöllum og fallegum vörum til fermingargjafa. Kíktu í næstu verslun eða á vodafone.is Verslanir Vodafone eru í Kringlunni, Smáralind, á Suðurlandsbraut 8 og Glerártorgi. Græjaðu ferminguna hjá okkur 34 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -A 2 9 0 2 2 6 8 -A 1 5 4 2 2 6 8 -A 0 1 8 2 2 6 8 -9 E D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.