Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 32
Mexíkóskar vefjur.
Karmelluostakaka.
Jarðarberjaostakaka.
Vegan góðgæti á
fermingarborðið
Þau Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir og Aron Gauti Sigurðarson
bera grænkeralífsstílnum fagurt vitni. Á vef þeirra, græn-
kerar.is, má finna ýmislegt vegan góðgæti. Meðal annars
það sem gæti átt heima á veisluborði fermingarbarnsins.
Karamelluostakaka
Botn
1 dl pekanhnetur
2 dl möndlur
6 ferskar döðlur, muna að taka
steinana úr
2 tsk. kókosolía, bragð- og
lyktarlaus
Salt
Setjið hneturnar í matvinnsluvél
og blandið þar til þær eru nokkuð
fínmalaðar.
Bætið döðlum, kókosolíu og salti
út í og blandið þar til deigið festist
saman.
Leggið smjörpappír í botninn á
hringlaga smelluformi. Þrýstið
deiginu vel niður í formið svo það
þeki allan botninn.
Geymið botninn í kæli meðan fyll-
ingin er útbúin.
Fylling
3 dl kasjúhnetur
8 ferskar döðlur, muna að taka
steinana úr
½ dl hlynsíróp, má vera minna
ef vill
1 dl kókosolía
1 dl rjómaostur, t.d. Oatly-smu-
rosturinn
2 dl kókosmjólk í dós, þykki
hlutinn
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. sítrónusafi
Salt
3 dl vatn
1 tsk. agar-agar-duft
Kælið kókosmjólkina en þá skilur
hún sig og þykki hlutinn situr efst
en þunnur vökvi neðst.
Setjið vatn og agar-agar-duft í pott
og hitið að suðu.
Setjið hin hráefnin í matvinnsluvél
og blandið þar til silkimjúkt. Þetta
getur tekið nokkrar mínútur.
Hellið næst agar-agar-blöndunni
út í og blandið áfram í smástund.
Hellið fyllingunni yfir botninn og
geymið í kæli meðan karamellu-
kremið er útbúið.
Karamellukrem
½ dl hlynsíróp
½ dl kókossykur eða hrásykur
½ dl kókosolía
1½ dl kókosmjólk í dós, þykki
hlutinn
1 tsk. vanilludropar
salt
Setjið öll hráefnin í pott og sjóðið
í um 10-15 mín. þar til karamellan
hefur dökknað og þykknað. Gott
er að setja örlítið af karamellunni
í glas og inn í frysti til að athuga
hversu stíf hún er orðin.
Smyrjið karamellukreminu yfir
fyllinguna og skreytið að vild, ég
notaði saxaðar pekanhnetur.
Jarðarberjaostakaka
1 dl pekanhnetur
2 dl möndlur
8 medjool-döðlur, steinarnir
teknir úr
1 tsk. kókosolía, bragð- og lyktar-
laus
1 tsk. vanilludropar
Salt
Setjið möndlur og pekanhnetur
í matvinnsluvél og malið í um 20
sek.
Bætið hinum hráefnunum út í og
látið matvinnsluvélina ganga þar
til deigið festist saman.
Leggið smjörpappír í botninn á
hringlaga smelluformi og smyrjið
hliðarnar með olíu.
Þrýstið deiginu vel niður í formið
svo það þeki allan botninn.
Geymið botninn í kæli meðan fyll-
ingin er útbúin.
Fylling
3 dl kasjúhnetur, ásamt u.þ.b.
einum dl vatni
2 dl kókosolía, bragð- og lyktar-
laus, bráðin
4 dl fersk jarðarber
1 dl vegan rjómaostur, t.d. frá
Oatly
¾-1 dl hlynsíróp
1 msk. vanilludropar
¾ dl sítrónusafi
Börkur af hálfri sítrónu
Salt
Setjið kasjúhnetur, vatn og bráðna
kókosolíu í matvinnsluvél og
blandið þar til silkimjúkt.
Bætið afganginum af hráefnunum
út í og blandið vel.
Hellið fyllingunni yfir botninn.
Ég ákvað að skera jarðarber í
helminga og raða þeim með fram
kantinum á forminu áður en ég
hellti fyllingunni yfir.
Geymið kökuna í frysti þar til hún
stífnar eða í kæli yfir nótt.
Eftir að kakan er stífnuð má taka
hana úr forminu og skreyta að
vild, t.d. með ferskum berjum.
Mexíkóskar vefjur
1 dós vegan rjómaostur, t.d. Oatly
1 dós vegan sýrður rjómi, t.d.
Oatly
8 cm púrrulaukur
2-3 litríkar paprikur
2 avókadó
1 dós svartbaunir, skola vel
2 dl gular baunir, skola vel
1 tsk. sítrónusafi
1 lúka ferskt kóríander
Salt og pipar
Mexíkósk kryddblanda, eftir
smekk
6 tortillavefjur
Skerið púrrulauk, paprikur og avó-
kadó smátt niður.
Skolið svartbaunirnar og gulu
baunirnar í sigti.
Blandið öllum hráefnunum saman
í stóra skál og smakkið til með
kryddum.
Smyrjið blöndunni á tortillakök-
urnar og rúllið upp í vefjur.
Setjið vefjurnar í lokað fat og
geymið í ísskáp yfir nótt. Skerið
þær síðan niður í um 2 cm þykkar
sneiðar daginn eftir og raðið á
stóran disk. Sniðugt getur verið
að stilla þeim upp á rönd og stinga
tannstöngli í.
Avókadó hrákaka
1½ dl möndlur
3 dl ristaðar kókosflögur
8-10 medjool-döðlur, steinarnir
teknir úr
1-2 tsk. kókosolía, bragð- og
lyktarlaus
Salt
Setjið möndlur og ristaðar kókos-
flögur í matvinnsluvél og malið í
um 20 sek.
Bætið hinum hráefnunum út í og
látið matvinnsluvélina ganga þar
til deigið festist saman.
Leggið smjörpappír í botninn á
hringlaga smelluformi og smyrjið
hliðarnar með olíu.
Geymið botninn í kæli meðan fyll-
ingin er útbúin.
Fylling
5-6 avókadó, fallega græn og fersk
6 límónur (lime), safinn kreistur
úr þeim
2 dl kókosolía, bragð- og lyktar-
laus
¾-1 dl hlynsíróp
1 tsk. vanilla, eða vanilludropar
Salt
Börkur af einni límónu
Setjið öll hráefnin í blandara eða
matvinnsluvél og blandið þar til
silkimjúkt. Gott er að geyma hluta
af hlynsírópinu og límónusafanum
og hella varlega út í blandarann þar
til sætt og súrt hefur náð jafnvægi.
Hellið fyllingunni yfir botninn.
Geymið kökuna í frysti þar til hún
stífnar eða í kæli yfir nótt.
Eftir að kakan er stífnuð má taka
hana úr forminu og skreyta að vild,
t.d. með límónuberki eða kókos-
flögum.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
16 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-B
6
5
0
2
2
6
8
-B
5
1
4
2
2
6
8
-B
3
D
8
2
2
6
8
-B
2
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K