Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 40
Athöfnin fór þannig fram að
Eldi var skipað í sæti í brekkunni
ásamt goðum félagsins. Farið var
í ýmis mál tengd þinginu áður en
vikið var að siðfestunni. Eldur fór
með erindi úr Hávamálum sem
hann hafði valið sér og lært og
síðan fór Hilmar allsherjargoði
með erindi númer 68 úr Háva-
málum, Eldi til heiðurs.
Eldur er bestur
með ýta sonum
og sólar sýn,
heilyndi sitt,
ef maður hafa náir,
án við löst að lifa.,
Hávamál, gestaþáttur, kvæði 68.
Að þessu loknu voru Eldi
drukkin heill úr horni goða. „Eldur
hefur drukkið heill við ýmis tilefni
en alltaf hefur verið vatn eða malt
í horninu. Hann hrökk því svolítið
í kút þegar hann var búinn að taka
gúlsopa af pilsner,“ segir Jóhanna
og kímir.
Hornið var látið ganga til allra
nærstaddra til þess að fólk mætti
drekka drengnum heill. „Fólk
ýmist saup af horninu eða lyfti
því. Sumir sögðu nokkur hlý eða
hvetjandi orð sem fylgdu á meðan
aðrir létu nægja að lyfta horninu
hátt yfir höfuð og segja „heill“.
Saumaði fötin á fjölskylduna
Öll fjölskyldan klæddist fögrum
víkingaklæðum á siðfestu-
daginn og í veislunni daginn eftir.
Jóhanna sjálf saumaði öll fötin og
vann allan útsaum í höndum. „Ég
ætla að sauma fermingarfötin á öll
börnin í framtíðinni. Mér finnst
það falleg hefð og svolítið eins og
ég sé að senda þau vel búin úr pils-
faldinum hjá mér inn í fullorðins-
árin,“ segir hún.
„Mamma var mestmegnis við
stjórnina með fötin en ég gat
komið með tillögur,“ segir Eldur.
Veislan var ekki í sérstökum
víkingastíl utan þess að fjöl-
skyldan klæddist sömu fötum og í
athöfninni daginn áður. „Eldur
fékk að vera með í ráðum þegar
kom að veisluundirbúningi.
Honum þótti snilld að bjóða upp
á hamborgara og í desert hafði ég
dulbúið Rice Crispies köku sem
marsipantertu. Það var frekar
fyndið að sjá upplitið á sumum
frænkunum.“
Þegar kom að því að bjóða til
borðs fór Eldur nokkuð óvenjulega
leið. „Í stað þess að bjóða í borða-
röð byrjaði hann á því að bjóða
öllum gestum yngri en 10 ára auk
aðstoðarfólks. Því næst bauð hann
fólki eldra en sextíu ára og loks
þeim sem teljast nokkur fráir á
fæti og með getu til þess að bíða.“
Öll fjölskylda Elds er í Ása-trúarfélaginu. „Krakkarnir fá vitanlega að velja hvort
það sé sú stefna sem þau vilja taka
inn í lífið eða hvort þau kjósi að
fara aðra leið. Eldur valdi ása trúna,
“ segir Jóhanna en bendir á að
honum hafi allir aðrir möguleikar
verið opnir. Boðskapur ásatrúar-
innar var Eldi hugleikinn þegar
hann valdi að taka siðfestu. „Ég er
sjálfur ekkert mikið í ásatrúnni
sjálfri heldur er ég meira hrifinn af
því sem ásatrúin og heiðinn siður
hefur í för með sér, eins og að vera
heiðarlegur og bera virðingu fyrir
öðrum,“ segir Eldur en hann sótti
fræðslu hjá Ásatrúarfélaginu og
lærði um Hávamál og ýmislegt
fleira.
Athöfnin fór fram fimmtudags-
kvöldið 22. júní 2017 á Þingvöllum
á allsherjarþingi Ásatrúarfélagsins,
en veislan var haldin daginn eftir.
Tveir goðar framkvæmdu athöfn-
ina, þau Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði og Jóhanna Harðar-
dóttir Kjal nesingagoði.
„Athöfnin var vægast sagt geggj-
uð. Eldur valdi að taka siðfestu á
allsherjarþingi í Almannagjá. Veðr-
ið var æðislegt og örugglega um
þrjú hundruð manns á staðnum,
bæði fólk úr Ásatrúarfélaginu og
ferðamenn sem dreif að,“ lýsir
Jóhanna en aðeins nánasta fjöl-
skylda Elds mætti á athöfnina
ásamt þremur bestu vinum Elds og
foreldrum þeirra.
Eldur með foreldrum sínum, Jó-
hönnu Björgu og Eiríki Unnari Krist-
björnssyni, og systkinum sínum,
þeim Önnu Sól, Stormi Sæ og Frosta
Hrafni. MYNDIR/RÖGNVALDUR HELGASON
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Jóhanna Björg með Frosta Hrafn.
Tók siðfestu á Þingvöllum
Eldur Árni Eiríksson tók siðfestu að heiðnum sið á allsherjarþingi Ásatrúarfélagsins á Þingvöllum í
júní 2017. Móðir Elds, Jóhanna Björg, saumaði föt í víkingastíl á alla fjölskylduna fyrir athöfnina.
Eiríkur Unnar með Önnu Sól.
24 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-A
7
8
0
2
2
6
8
-A
6
4
4
2
2
6
8
-A
5
0
8
2
2
6
8
-A
3
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K