Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Hár er höfuðprýði og það stingur í augu þegar kona missir fjórðung hárs síns. Ég get því ekki lýst því hversu sæl ég er að hafa endurheimt hár mitt að nýju,“ segir Sigurrós Lilja Ragnars- dóttir sem í október 2017 upp- götvaði stóran skallablett í dökku, hrokknu hári sínu. „Ég sat við eldhúsborðið með mömmu þegar hún benti mér á að ég væri komin með skallablett. Ég hreinlega trúði henni ekki en stóð upp og leit í spegil þar sem við mér blasti nokkuð stór skallablettur. Ég hafði ekki orðið hans vör við hárþvott né þegar ég greiddi sítt hárið,“ útskýrir Lilja sem í fram- haldinu bar upp vandamálið við vinkonu sem er hárgreiðslu- meistari. „Á stofunni hennar var sam- starfsfólkið sammála um að ég færi til húðlæknis sem taldist fær í hárvandamálum. Ég fór til hans í fimm skipti en enginn bati varð eftir meðferð með sterakremum sem áttu að stoppa hárlosið og slá á kláða. Ég varð þá úrkula vonar, búin að borga tugi þúsunda í ferða-, lækna- og lyfjakostnað,“ segir Lilja sem búsett er á Selfossi. Þig vantar sink! Góð vinkona Lilju er dýralæknir í Þýskalandi og kom henni í sam- band við þýskan húðlækni sem sérhæfir sig í hárvanda. „Við kærastinn flugum til Þýska- lands á tilsettum tíma en urðum að fara snemma í háttinn fyrsta kvöldið því læknirinn bauð upp á tíma klukkan sex morguninn eftir! Lækninum Rudolf þótti stórmerki- legt að hitta Íslendinga en sagði svo blátt áfram, eftir að hafa horft á mig smástund: „Þig vantar sink!“ Hann skoðaði svo hársvörð skalla- blettsins í smásjá og sá þá að það vantaði hársekkina í skallablettina en sagði jafnframt að hárið mitt svæfi og mig vantaði sink til þess að vekja upp hárvöxtinn,“ upplýsir Lilja sem hjá þýska lækninum fékk einnig smyrsl sem stoppaði hár- losið og kláðann. Þegar þau hittust á ný voru skallablettirnir hættir að stækka. „Það var mikill léttir því þegar ég hitti lækninn fyrst vantaði um fjórðung hársins á mig. Þá var ég alvarlega farin að íhuga að snoða mig enda var orðið erfitt að fela skallablettina, sérstaklega þann stóra hægra megin. Ég náði lengi vel að greiða sítt hárið í hliðar- tagl til hægri en ef vindar blésu blasti bletturinn við,“ segir Lilja sem óttaðist viðbrögð annarra og skammaðist sín fyrir hármissinn en velti fyrir sér hvað hún hefði að fela. „Eftir vandlega umhugsun ákvað ég að birta færslu á Facebook. Þar sagði ég alla söguna og birti myndir af því hvernig skallablettirnir litu út í upphafi ásamt fleiri myndum þar sem sást hvað þeir voru orðnir stórir. Það voru aðallega ættingjar og vinir sem lásu færslurnar og sendu mér baráttukveðjur og bata- óskir en ein frænka mín benti mér á fæðubótarefnið Nourkrin sem þá var nýkomið á markað á Íslandi,“ upplýsir Lilja sem hafði aldrei heyrt um Nourkrin áður en varð sér úti um töflurnar og hefur nú tekið þær síðan í maí á síðasta ári. „Hárið er allt komið aftur! Það er mögnuð upplifun. Eftir einn mánuð á Nourkrin Woman fór strax að móta fyrir nýjum hárum og eftir fáeina mánuði voru komin hár í alla litlu blettina. Lengstan tíma tók að fá hárin til að vaxa í stóra skallablettinum en þau eru nú orðin sex sentimetra löng sem þykir eðlilegur hárvöxtur á nátt- úrulegum hárvaxtartíma. Á myndunum má sjá tvo af stærstu skallablettum Lilju, hægra megin á höfði og í hnakkanum. Myndirnar sýna líka hvernig hárið braust fram og óx á fimm mánuðum og svo hvernig það fyllti út í blettina eftir sjö mánuði. l Nourkrin er bætiefni fyrir hársekkina sem er unnið úr sjávarríkinu og stuðlar að eðlilegum hárvaxtarhring. l Nourkrin® er 100% lyfjalaust og byggir á 56 vísindalegum rann- sóknum og yfir 30 ára reynslu. l Nourkrin® inniheldur hið byltingarkennda Marilex® bætiefni sem er einkaleyfisvarið og eingöngu í vörum frá Pharma Medico. l Marilex® hefur verið prufað um allan heim og er samþykkt af heilsu- yfirvöldum í öllum heimsálfum. l Nourkrin® telst mjög öruggt og má notast af öllum nema þeim sem eru með ofnæmi fyrir fiski eða skelfiski. Nourkrin er fyrir konur og menn Framhald af forsíðu ➛ Sigurrós Lilja nýtur þess að hafa heilbrigt hár. Hún mælir hiklaust með Nourkrin fyrir alla sem þjást af hárlosi. Nourkrin telst mjög öruggt og má notast af öllum nema þeim sem eru með ofnæmi fyrir fiski eða skelfiski. „Nýju hárin eru í fyrstu eins og ljós ungbarnahár en taka svo sinn rétta lit og mín eru svarbrún eins og þau eiga að sér að vera,“ segir Lilja alsæl með árangurinn. Bætiefni hárinu mikilvæg Gildi vítamína og steinefna mælast nú eðlileg í blóðprufum hjá Lilju. „Hjá íslensku húðlæknunum voru aldrei teknar blóðprufur til að athuga hvort mig skorti vítamín eða steinefni þótt það sé mikil- vægt með tilliti til hárloss. Verst þótti mér að engin lausn var til í íslenska heilbrigðiskerfinu önnur en sterakrem sem eru engin lausn og aðeins húðþynnandi. Það er svo hægt að láta sprauta efni undir húð ef hárlos hættir, en það hætti ekki hjá mér. Ég fékk því svar við mínum vanda í Þýskalandi og það kostaði mig minna en einn tími hjá húðlækni í Reykjavík,“ segir Lilja. Við leit að lausn við hármiss- inum hitti Lilja hárheilara ytra sem lét henni í té sérstakan hárbursta sem gert hefur hár hennar líflegra. „Burstinn er gerður úr þýskum kirsuberjatrjám og hárum úr villisvínum. Með honum greiði ég mér ekki lengur frá toppi og niður heldur hvolfi ég höfðinu og bursta að aftan og niður. Þar með losnar salt úr hárinu sem annars getur stöðvað hárvöxt og lokað hár- sekkjum,“ útskýrir Lilja. Hún segir hárheilarann hafa verið eins og alfræðiorðabók um allt sem viðkemur hári. „Samkvæmt hárheilaranum má rekja hárlos og hármissi til andlegs áfalls allt að ár aftur í tímann. Ég gat rakið það nákvæmlega ári áður en ég fékk skallablettinn að hafa orðið fyrir stóru andlegu áfalli. Orsökin fyrir mínum hármissi er því sennilega bland af sinkleysi og áfalli, en hárheilarinn sagði hárlos líka geta orsakast af tannrótar- bólgu og fótasvepp,“ segir Lilja sem varð margs vísari hjá hárheila- ranum. Elskar óvenjulegt starfið Lilja starfar sem gripabílstjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands og sækir hross, nautgripi og svín til slátrunar allt frá Höfn í Hornafirði í austri að Gilsfirði í vestri. „Ég er í óvenjulegu starfi fyrir konu og sennilega eina konan í öllum heiminum í slíku starfi. Ég er ein í bílnum og það hefur gengið áfallalaust en það tók tíma að fá suma bændur til að treysta mér því ég er kvenmaður. Fyrsta kastið var ég var iðulega spurð hvort það kæmi enginn maður með mér,“ segir Lilja sem fær lista frá SS að morgni og fer svo á gripaflutningabíln- um að sækja gripi um sveitir Suður- og Vesturlands. „Eftir að fólk vissi af skalla- blettunum fór það að tína til ástæður eins og streitu, hreyfingarleysi, vitlaust mataræði, vöðvabólgu og álag í vinnunni en það er ekkert í vinnunni sem stressar mig og ég elska vinnuna mína.“ Nourkrin breytti öllu Lilja mælir heilshugar með Nourkrin fyrir þá sem glíma við hárlos og hármissi. „Nourkrin olli straumhvörfum í lífi mínu því ég sýndi svo rosa- lega góð viðbrögð. Hefðbundin meðferð með Nourkrin eru sex mánuðir en ég þori ekki að hætta því það er greinilegt að í því er eitt- hvað sem líkama minn vantaði og mér líður undurvel,“ segir Lilja sem tekur eina töflu kvölds og morgna og hreinlega horfir á hár sitt vaxa og dafna. „Ég sé orðið litlu lokkana og krullurnar sem áður voru. Þegar ég var búin að missa um 25 pró- sent af hárinu var ég nálægt því að bugast og fór til sálfræðings til að takast á við áfallið sem það er að fá skallabletti. Maður óttast viðbrögð samfélagsins og hvernig manni verður tekið; hvort maður verði fyrir áreitni eða jafnvel einelti. Það var ástæðan fyrir því að ég ákvað að gera vandamálið opinbert sem reyndist bæði mín besta útrás fyrir sorg og tilfinningar en líka lausn vandamálsins því þannig komst ég á snoðir um Nourkrin. Það er dásamlegt að til hafi verið lausn eftir allt sem ég hafði reynt og prófað og á meðan ég fæ að halda hárinu mínu er ég himinsæl.“ Nourkrin Women og Nourkrin Men er fáanlegt í nær öllum apó- tekum landsins. Nánari upplýsing- ar má finna á isam.is/nourkrin eða senda póst á isam@isam.is. MYND/EYÞÓR 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 6 8 -A C 7 0 2 2 6 8 -A B 3 4 2 2 6 8 -A 9 F 8 2 2 6 8 -A 8 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.