Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 20

Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 20
Ég hlakka mikið til fermingardags- ins, get ekki neitað því að það er alltaf gaman að fá gjafir. Rökkvi Guðnason Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Foreldrar Rökkva eru Margrét Benediktsdóttir förðunar-fræðingur og Guðni Finns- son tónlistarmaður sem f lestir þekkja úr Pollapönkurum. Mar- grét segir að Rökkvi hafi ekki gert miklar kröfur fyrir fermingar- daginn. „Undirbúningurinn er þægilegur, maður gerir þetta smátt og smátt. Frekar létt og þægilegt. Hann er ekki mikill jakkafatamaður svo við völdum einfaldan og sportlegan klæðnað. Í veislunni sem haldin verður heima ætlum við að bjóða upp á smárétti og tertur, jafnvel sushi. Við eigum von á milli 40-50 gestum,“ segir Margrét þegar við forvitnuðumst um væntanlega fermingu. „Rökkvi valdi sjálfur myndina á boðskortið og var með í að skipuleggja veisluna. Annars fannst honum ferming systur sinnar mjög fín og ætlar að hafa þetta svipað,“ segir Margrét og bætir við að Rökkvi hafi gaman af því að prófa alls kyns rétti. „Hins vegar borðar hann ekki sælgæti svo það verður enginn nammibar en í staðinn bjóðum við upp á franskar makkarónur og kon- fekt.“ Margrét segist hafa límt upp myndir af systur Rökkva, Álf- rúnu, á fermingardegi hennar. Ég geri það líka fyrir Rökkva ef hann leyfir það,“ segir hún. „Mér finnst mjög gaman að undirbúa heimilið fyrir veislu og gaman að taka á móti gestum. Ég er minna fyrir að kokka, maðurinn minn er betri í því. Þar sem hann hefur lítinn tíma núna þá finnst okkur ágætt að fá matreiðslumann til aðstoðar,“ segir hún. Rökkvi segist fara í fermingar- fræðslu á hverjum mánudegi sem passar honum þó misvel vegna íþróttaæfinga hans. Rökkvi æfir CrossFit og er að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið í sínum aldursf lokki. Hann hefur þó ekkert á móti fermingar- fræðslunni, segir hana áhuga- verða en hún snúist að mestu um heimspeki. „Það er alltaf gaman í þessum tímum,“ segir hann. „Líf mitt snýst annars um CrossFit sem ég stunda fimm sinnum í viku. Hina dagana fer ég í léttara sport eins og sund,“ segir Rökkvi sem stefnir á að verða heims- meistari í sinni grein. „Það eru mjög margir unglingar að æfa CrossFit enda er þetta mjög vinsælt sport. Ég var í fót- bolta en finnst skemmtilegra að vera í einstaklingsíþróttum,“ segir Rökkvi og viðurkennir að vera orðinn nokkuð sterkur þegar hann er spurður. „Ég hlakka mikið til ferm- ingardagsins, get ekki neitað því að það er alltaf gaman að fá gjafir. Mér fannst fermingardagur systur minnar mjög skemmtileg- ur og hlakka til að upplifa þetta sjálfur,“ segir fermingardrengur- inn sem stefnir á Verzlunarskóla Íslands eftir tíunda bekk. „Ég hef mjög mikinn áhuga á heilsu, hollu fæði og góðum lífsstíl. Mig langar í einhvers konar heilsutengt nám í framtíðinni.“ Ætlar að ná langt í CrossFit Mæðginin, Rökkvi og Margrét, eru mjög spennt fyrir fermingardeginum sem verður í lok mars. Rökkvi fermist borgaralega. MYND/ERNIR Rökkvi Guðnason ákvað að fermast borgaralega eins og eldri systir hans gerði. Hann verður fermdur 31. mars og hlakk- ar mikið til. For Porter, body advocate, makes confidence possible. #MAKEITPOSSIBLE 4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 6 8 -8 0 0 0 2 2 6 8 -7 E C 4 2 2 6 8 -7 D 8 8 2 2 6 8 -7 C 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.