Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 64
ÉG HEF ALLTAF HAFT
GAMAN AF AÐ BREYTA
TIL OG PRÓFA NÝJAR AÐFERÐIR.
Aðeins
95.920 kr.
DENVER
2,5 s.æta
sófi & stóll
2,5 sæta sófi og stóll í
klassískum stíl. Dökkblátt,
ljósbleikt (Dusty Rose), dökkgrænt og koparlitt sléttflauel.
Sófi: 184 x 82 x 82 cm
Fullt verð: 119.900 kr.
Stóll: 84 x 82 x 82 cm
Fullt verð: 69.900 kr.
Aðeins
55.920 kr.
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
FYRIR ÞÍNAR
BESTU STUNDIR
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
20%
AFSLÁTTUR
Tumi Magnússon sýnir verk sín á sýningunni Áttir sem nú stendur yfir í Listasafni Akur-eyrar. Verkin eru í þremur sölum. Ekki er
langt síðan safnið var endurnýjað
og salir þess stækkaðir. „Það hefur
verið fallega gert og rýmin eru ólík.
Ég fékk þarna þrjá sali sem eru hver
með sín hlutföll, lofthæð og karakt-
er en öll mjög einföld og henta vel
fyrir myndlistarsýningar,“ segir
Tumi.
Verk tekin á göngu
Spurður um verkin á sýningunni
segir hann: „Hreyf ing og tími
koma við sögu í öllum verkunum.
Í tveimur sölum eru vídeóinnsetn-
ingar. Önnur vídeóinnsetningin er á
fjórum stórum skjávörpum. Vídeó-
ið tók ég á göngu og vélin snýr niður
og í norður. Þar sem vélin sneri allt-
af í sömu átt og snerist ekki með mér
þegar ég tók beygjur þá sést á vídeó-
inu hvernig jörðin streymir framhjá
í mismunandi áttir. Upptökurnar
eru fjórar, teknar á mismunandi
stöðum. Eftir á skeytti ég upptök-
urnar saman þannig að fótatakið
verður alls staðar í takt. Úr verður
heildarryþmi bæði á hreyfingunni
og myndinni.“
Annað vídeóverk í öðrum sal
heitir Fótganga. „Í þessum sal eru
tólf vídeóskjáir, sex á hvorum vegg.
Það vídeó sýnir einnig göngu og er
tekið alveg niður við jörð og öðru
hvoru sést í fót sem hverfur síðan.
Þarna er um að ræða mismunandi
upptökur á mismunandi stöðum og
skórnir eru mismunandi. Þessum
upptökum raðaði ég síðan saman
þannig að úr verður ein ganga með
mismunandi skóm, undirlagi og
hljóðum.“
Nýtir sér númer svindlara
Í þriðja sal listasafnsins eru sjálf-
stæð verk, tvenns konar. „Þarna
eru litlir hljóðskúlptúrar, frá þeim
kemur hljóð á mínútu fresti, annars
vegar f lugvélarhljóð og hins vegar
bílhljóð. Flugvélin f lýgur fram hjá
borðinu og bíllinn fram hjá lamp-
anum sem hangir á vegg. Annars
staðar í salnum eru teikningar af
símanúmerum en ég hef gert slík
verk öðru hvoru frá árinu 2002. Að
þessi sinni eru teikningar af tveim-
ur símanúmerum sem eiga það sam-
eiginlegt að vera frá svindlurum.
Ég bý í Danmörku á veturna og þar
kemur fyrir að hringt er í mann
frá öðrum heimshornum og þegar
maður svarar er lagt á. Svindlar-
arnir gera þetta í von um að maður
hringi til baka og þá er hægt að
svíkja af manni pening sem tekinn
er af símareikningi.“ Tumi segist þó
aldrei hafa gengið í þessa gildru, en
nýtti sér símanúmer tveggja svindl-
ara í verkið.
Tumi hefur fengist við myndlist í
áratugi. Spurður um þróun í mynd-
list sinni segir hann: „Ég hef alltaf
haft gaman af að breyta til og prófa
nýjar aðferðir. Þegar ég var í námi
vann ég með 8 millimetra kvik-
myndir, ljósmyndir og smáskúlp-
túra. Á níunda áratugnum færði
ég mig yfir í málverk sem í byrjun
voru fígúratíf en þróuðust yfir í hug-
myndaleg málverk og málverkainn-
setningar. Um 2000 fóru vídeóinn-
setningar að verða áberandi. Það
sem þessi margvíslegu verk mín
eiga sameiginlegt er að aðalvið-
fangsefnið er tíminn og rýmið.“
Tíminn og rýmið
Tumi Magnússon sýnir verk sín á sýningunni Áttir sem nú
stendur yfir í Listasafni Akureyrar. Nýtir þar þrjá sali.
„Hreyfing og tími koma við sögu í öllum verkunum,“ segir Tumi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Áttir er videó sem tekið er niður fyrir fætur og myndavélin vísar í norður.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
2 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-C
0
3
0
2
2
6
8
-B
E
F
4
2
2
6
8
-B
D
B
8
2
2
6
8
-B
C
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K