Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 22
Í kirkjunni var ég
með hvítt hár
þannig að ég stóð mikið
út úr og svo var ég mjög
tanaður sem mér fannst
mjög kúl þá.
Fjölmargar hug-
myndir má finna að
snittum, spennandi
smáréttum, innbök-
uðum ostum og osta-
bökkum sem henta vel í
fermingarveislur.
Byrjið veisluundirbúninginn á gottimatinn.is en á síðunni er að finna fjölda ljúffengra uppskrifta.
Uppskriftasíðan gottimat - inn.is er góður staður til að byrja á þegar kemur að
fermingarundirbúningi bæði
hvað varðar mat og skreytingar. Á
síðunni eru til að mynda f lokkar
uppskrifta tileinkaðir veislum,
fermingum og ostum, þar sem
finna má margs konar uppskriftir
sem henta fullkomlega fyrir þetta
stóra tilefni og getur síðan þannig
hjálpað til við undirbúninginn og
veitt fólki innblástur. Fjölmargar
hugmyndir má finna að snittum,
spennandi smáréttum, innbök-
uðum ostum og ostabökkum sem
henta vel í fermingarveislur.
Mozzarella-snittur
1 stk. baguette-brauð
1 dós litlar mozzarella-kúlur í
dós
1 box kirsuberjatómatar
Fersk basilíka
Ólífuolía
Hvítlauksduft
Gróft salt
1. Skerið brauðið á ská í sneiðar,
penslið með ólífuolíu, stráið
hvítlauksdufti og grófu salti yfir.
Ristið í um 2 mínútur í ofni við
200°C.
2. Skerið mozzarella-kúlurnar
í tvennt og dreifið yfir hverja
sneið (um það bil þrír helmingar
á hverri sneið) og setjið aftur í
ofninn í um 2 mínútur. Leyfið
ostinum aðeins að bráðna.
3. Skerið kirsuberjatómata til
helminga og saxið góða lúku af
ferskri basilíku, blandið saman í
skál með um ½ msk. af ólífuolíu.
Dreifið yfir snitturnar og njótið.
Fylltar beikondöðlur
Um það bil 25 döðlur
5 msk. rjómaostur frá Gott í
matinn
2 msk. hnetusmjör
1 pakki beikon
1. Skerið smá rauf í döðlurnar.
2. Blandið saman rjómaosti og
hnetusmjöri, setjið í zip-lock
poka og klippið lítið gat á endann.
Sprautið fyllingu í hverja döðlu.
3. Klippið beikonið í tvennt og
vefjið því utan um döðlurnar.
Gott er að miða við að minnsta
kosti 1½ til tvo hringi af beikoni á
hverja döðlu.
4. Hitið í ofni við 200°C þar til
beikonið fer að dökkna.
Camembert-snitta með
sætri peru
1 stk. baguette-brauð
1½ Dala camembert-ostur
1½ pera
Klettasalat (um ½ poki)
Ristaðar furuhnetur (um ½ poki)
Ólífuolía
Hvítlauksduft
Gróft salt
Sykur og smjör til að brúna peru-
sneiðarnar
1. Skerið brauðið á ská í sneiðar,
penslið með ólífuolíu, stráið
hvítlauksdufti og grófu salti yfir.
Ristið í um 3 mínútur í ofni við
200°C.
2. Kælið brauðið aðeins og setjið
klettasalat yfir hverja sneið.
3. Skerið peruna í sneiðar sem
passa brauðstærðinni ykkar (ekki
of þykkar).
4. Stráið sykri á pönnu, hitið þar
til hann bráðnar og bætið þá
smjörklípu saman við og lækkið
hitann.
5. Brúnið perusneiðarnar á
báðum hliðum, þegar þið snúið
er camembert-sneið lögð á hverja
perusneið þar til osturinn fer
aðeins að bráðna.
6. Þá er peru/camembert-sneiðin
færð yfir á snittuna, ofan á kletta-
salatið.
7. Ristuðum furuhnetum er að
lokum stráð yfir.
Einfaldasti partíréttur
aldarinnar
1 askja rjómaostur frá Gott í
matinn
Sweet chili-sósa
Ferskur kóríander
Ritz-kex eða annað kex
1. Hvolfið rjómaostinum á fal-
legan disk.
2. Hellið ríkulega af Sweet chili
sósu yfir og nógu af kóríander.
3. Njótið með góðu kexi.
Ljúffengir fermingarréttir
Gott í matinn lumar á einföldum og góðum smáréttum í fermingarveisluna. Fylltar beikon -
döðlur og snittur með camembert og sætri peru eru bara brot af því sem finna má á síðunni.
Waage að störfum við tónlistargerð
í fermingarjakkafötunum sem hann
passar ennþá í. MYND/EYÞÓR
Kristján Thor Waage með hvíta fermingarhárið og í fínu fermingarfötunum.
Tónlistarmaðurinn Kristján Thor Waage hefur getið sér gott orð fyrir teknótónlist en
fyrsta platan hans, W, sem kom út
árið 2017 fékk af bragðsgóðar við-
tökur og sat á toppi Juno spilunar-
listans í tvo mánuði. Önnur plata
er á leiðinni og kemur hún út í
mars. Færri vita að tónlistarferill
Kristjáns hófst eins og margra
ungra tónlistarsnillinga samtím-
ans, í tölvunni sem hann keypti
fyrir fermingarpeningana sína.
Kristján fermdist árið 2006 í
Ábæjarkirkju. „Ég man nú ekkert
sérstaklega margt frá þessum
degi. Í kirkjunni var ég með hvítt
hár þannig að ég stóð mikið út úr
og svo var ég mjög tanaður sem
mér fannst mjög kúl þá.“ Hann
segir veisluna hafa verið frekar
hefðbundna. „Hún var í sal rétt
hjá Laugardalshöllinni, fólk mætti
og fékk kökur og kaffi og heilsaði
upp á mig. Ég man ekki eftir að
hafa fengið að ráða miklu í þessu
ferli, man bara að það var mikið
af veitingum og að mér fannst
þær góðar enda þekkja foreldrar
mínir mig alveg og vissu hvað
ég fílaði. Þetta er annars ekkert
mjög merkilegur dagur fyrir mér í
minningunni,“ segir Kristján.
Hann segir trúna hafa skipt
máli þegar hann ákvað að
fermast. „Á þessum tíma var ég
kannski ekki beint trúaður en
samt ekki heldur vantrúaður,
meira svona forvitinn um
þetta allt saman. Í dag er ég
alveg vantrúaður og ef ég ætti
tímavél mundi ég fara til baka og
fermast borgaralega. Ég sé samt
ekkert eftir því að hafa fermst í
kirkjunni, það var mjög fallegt.“
Fermingarfötin voru líka fyrstu
jakkafötin. „Ég var í blárri skyrtu
og fínum jakkafötum og það
fáránlega við þetta er að ég kemst
ennþá í þau í dag, þrettán árum
síðar. Ég nota þau þegar ég er að
fara fínt út að borða eða eitthvað.
Þau eru fín og fara mér vel og ég sé
enga ástæðu til að nota þau ekki.“
Fermingargjafirnar eru öllum
fermingarbörnum minnis-
stæðar. „Ég fékk PSP leikjatölvu
frá bróður mínum og svo voru
þetta aðallega bara peningar,“
segir Kristján. „Ég held að f lestir
krakkar kaupi sér eitthvert tækni-
dót fyrir fermingarpeningana
og ég var engin undantekning og
keypti mér borðtölvu.“
Og tölvan sú hefur komið að
góðum notum. „Fyrst var ég bara
í leikjum í henni en bróðir minn
sýndi mér f ljótlega tónlistarforrit
sem ég byrjaði að fikta mig áfram
með og f ljótlega var ég farinn að
semja tónlist.“
Kristján sendir frá sér sína aðra
plötu um þessar mundir. „Platan
heitir W í öðru veldi en ég sem
undir nafninu Waage,“ segir hann.
Tónlistinni hefur verið lýst sem
taktfastri, f læðandi en þó dans-
vænni og þessi plata er eins konar
framhald af fyrstu plötunni, W,
sem kom út 2017. „Ég er auðvitað
mjög spenntur fyrir útgáfunni og
fyrir útgáfupartíinu sem verður
16. mars á Bravó.“
Og framtíðin er björt. „ Planið
er að vera hamingjusamur og líða
vel og partur af því er að gefa út
tónlistina mína, spila meira úti og
gefa út f leiri plötur.“
Með hvítt hár í sígildum jakkafötum
Kristjan Thor Waage fermdist í Árbæjarkirkju árið 2006. Hann keypti sér borðtölvu fyrir
fermingar peningana og lagði þannig grunn að glæstri framtíð í teknótónlistargeiranum.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-9
3
C
0
2
2
6
8
-9
2
8
4
2
2
6
8
-9
1
4
8
2
2
6
8
-9
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K