Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 34
Menningarsam-
hengið hefur
breyst, einhæfnin er
rofin og fjölbreytnin er
meiri. En inntakið í
fermingarundirbún-
ingnum er jafn áleitið og
fyrrum.
Tæp 53 ár eru síðan Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprest-ur Hallgrímskirkju, fermdist
en í ár fermast yngstu börnin hans,
tvíburarnir Jón Kristján og Ísak.
Starfsins vegna hefur hann séð
fermingar þróast undanfarna ára-
tugi betur en margir og segir þær
snúast í æ meiri mæli um upplifun
og innlifun. „Ferming var siður í
samfélaginu og flestir fermdust
áður fyrr. Kirkjan var eins og
skólinn, stofnun sem var nýtt og
sótt. Áherslan í fermingarundir-
búningnum var því á fræðslu en er
í dag meiri á upplifun og innlifun,
sem getur orðið á kostnað fræðslu.
Það er mjög áberandi hvað
fermingarungmenni eru upptekin
af hamingjunni. Ég hef í fimmtán
ár kannað viðhorf fermingarung-
menna og hamingjuleitin er þeim
aðalmál. Það er æviverkefni að
vinna að lífshamingjunni og
fermingartíminn er mikilvægt
skref á þeim vegi.“
Einhæfnin er rofin
Sjálfur fermdist Sigurður árið
1966 og hefur margt breyst síðan
þá. „Menningarsamhengið hefur
breyst, einhæfnin er rofin og fjöl-
breytnin er meiri. En inntakið í
fermingarundirbúningnum er
jafn áleitið og fyrrum. Mér þótti
allt fermingarferlið merkilegt og
sagði alvöru já við Guði og lífinu.
Fermingarungmenni nútímans
grufla af miklum heilindum,
spyrja gagnrýninna spurninga og
skoða mál trúar með opnum huga.
Þau eru raunverulega að glíma við
mennsku sína og þar með Guð. Og
nú er fram undan ferming tvíbura
minna. Ég dáist að því hvað þeir
eru tengdir sjálfum sér og opnir
fyrir lífsreynslu og hugsa stóru
málin.“
Guð gefur lífið
Í fermingunni hljóma ekki aðeins
já fermingarbarna segir Sigurður,
heldur já, já, já Guðs. „Við erum
oft með hugann við mannheima
en gleymum stundum Guðsvídd-
inni. Mesta undrið í fermingunni
er sama undrið og í skírninni.
Guð gefur lífið og lofar að vera
alltaf nærri. Guð svarar fermingar-
spurningunni ekki aðeins með
fermingaryfirlýsingu: „Vertu trú(r)
allt til dauða, og ég mun gefa þér
kórónu lífsins.“ Guð svarar með
því að gefa allt sem við þurfum til
Hamingjuleitin er aðalmálið
Ýmislegt hefur breyst frá því Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur Hallgrímskirkju, fermdist
fyrir tæpum 53 árum í Neskirkju í vesturbæ Reykjavíkur. Í ár fermast yngstu börnin hans tvö.
Sigurður Árni ásamt systur sinni,
Kristínu Þórðardóttur, en þau
fermdust saman í haustið 1966.
Sigurður Árni Þórðarson ásamt sonum sínum, Jóni Kristjáni (t.v.) og Ísaki, en þeir fermast í ár. MYND/ERNIR
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
að lifa vel og með hamingju. Hvað
er ferming? Já á jörðu og já á himni
hljóma saman. Fermingarung-
menni staðfesta lífið sem Guð
gefur, staðfestir og viðheldur.“
Mættust á miðri leið
Ferming Sigurðar var eftirminni-
leg, ekki síst þar sem hann var
yngri en hinir krakkarnir auk þess
sem þau voru bara tvö fermingar-
börnin í fermingar athöfninni í
Neskirkju. „Ég var ekki fermdur
að vori heldur haustið 1966. Við
systkinin erum tvö og stutt á milli
okkar. Ákveðið var að hafa eina
fermingu og eina veislu. Systir mín
er eldri og hún seinkaði fermingu
sinni og ég fermdist hálfu ári á
undan jafnöldrum mínum, var
bara 12 ára. Við systkinin mætt-
umst því á miðri leið og vorum
fermd 23. október. Ég sótti
fermingarfræðslu með krökkum
á undan mér í aldri sem komu úr
Hagaskóla en ég var úr Melaskóla.
Í fermingarfræðslunni lærði ég 23
sálma, Biblíuvers og fræði Lúthers
og við vorum ágætlega undirbúin.“
Sannkölluð tertuveisla
Fermingarveislan var haldin
heima á Tómasarhaga og segir
Sigurður hana hafa verið eins og
framlag Íslands í heimsmeistara-
keppni í tertugerð. „Stórfjöl-
skyldan og fjölskylduvinir komu
og m.a. biskupshjónin sem bjuggu
hinum megin götunnar, Magnea
og Sigurbjörn. Þau gáfu mér Biblíu
sem Sigurbjörn skrifaði fallega í.
Veislan endaði á eftirminnilegri
myndasýningu um náttúruperlur
Hornstranda en við systkinin
vorum ekki spurð um útfærslu
veislunnar en hún varð þó eftir-
minnilegur menningarviðburður.“
Var sítengdur Guði
Eftir á að hyggja var kannski ekki
skrýtið að Sigurður skyldi hafa
valið sér þennan starfsvettvang.
„Ég var sem barn sítengdur við
Guð. Efni og andi, tími og eilífð,
hafa alla tíð verið mér eining. Ég
sótti að og í sjóinn við Ægisíðu
og var á fjöllum og á kafi í veiði
og náttúrupplifunum í sveitinni.
Náttúra og yfirnáttúra voru systur
og aldrei andstæður í lífi mínu.
Fermingarfræðslan varð eitt af
mörgum skrefum í minni lífsfram-
vindu. Á menntaskólaárunum
hætti ég við að verða læknir og ætl-
aði að læra líffræði en tók u-beygju
varðandi náms- og starfsval um
tvítugt og þá vegna veikinda.“
Gítarinn ehf
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S: 552-2125
gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Rafmagnsgítar Kassagítar Rafmagnsbassi KassabassiKlassískur gítar
Heyrnartól
Þráðlaus míkrafónn
Míkrafónar
í úrvali
Ukulele
Söngkerfi
Hljómborð í úrvali
Kajun tromma
í úrvali
Fermingagjafir
18 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-A
2
9
0
2
2
6
8
-A
1
5
4
2
2
6
8
-A
0
1
8
2
2
6
8
-9
E
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K