Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 26.02.2019, Blaðsíða 46
Fermingarmyndin yfirleitt elst vel A-landslið kvenna í fótbolta hefur þátttöku í Algarve Cup 2019 í Portúgal á morgun og leikur við Kanada og Skotland á næstu dögum. Hér rifja nokkrar landsliðskonur upp ferminguna sína. Elín Metta Jensen, leikmaður Vals. Hvenær fermdist þú? Ég fermdist í Háteigskirkju í Reykjavík árið 2009. Hvað er minnisstæðast frá undirbúningnum og deginum? Ég eyddi talsverðum tíma í að finna fín föt fyrir daginn og endaði á að velja mér grámunstraðan kjól úr búð í Kringlunni og klæddist túrkís- bláum sokkabuxum við hann. Síðan fékk ég að fara í hárgreiðslu hjá hárgreiðslukonu sem setti slöngulokka í mig. Ég held þetta hafi verið ágætis „lúkk“ miðað við aðstæður. Reyndar man ég ekkert sérstaklega eftir athöfninni sjálfri, sem er kannski svolítið sorglegt. Hvaða veitingar var boðið upp á? Þær voru frekar dæmigerðar fyrir fermingarveislu, t.d. snittur, kökur og kleinur. Mér fannst klassísku veitingarnar bestar, þ.e. pönnukökurnar og flatkökur með hangikjöti. Fékkstu góðar gjafir? Ég var mjög ánægð með gjafirnar. Ég fékk alls konar fína skartgripi og veglegar bækur, en Nikon myndavélin frá mömmu og pabba sló samt mest í gegn. Hvernig hefur fermingarmyndin elst? Ég fór ekki í fermingarmyndatöku, en mamma tók mynd af mér og Ingunni vinkonu minni fyrir utan Háteigskirkju. Það var ágætis mynd og hún eldist alveg ágætlega. Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður Vals Hvenær fermdist þú? Ég fermdist í Akraneskirkju 16. apríl árið 2000. Hvað er minnisstæðast frá undirbúningnum og deginum? Það var að fá að velja föt og skó fyrir stóra daginn ásamt því að finna út hvernig hárgreiðslan átti að vera. Mér fannst ég aga- lega smart á sínum tíma en það er svo sem alveg hægt að deila um það í dag. Síðan var ákveðin spenna að fá að fara í hvíta kyrtilinn og ganga til altaris í fyrsta (og eina) skiptið. Hvaða veitingar var boðið upp á? Veitingarnar í veislunni voru nokkuð hefðbundnar, kökuhlaðborð og kaffi. Ég valdi reyndar ístertu og Rice Krispies kransaköku í staðinn fyrir rjómatertu og marsipan kransaköku og var alsæl með það. Fékkstu góðar gjafir? Ég var virkilega ánægð með gjafirnar sem ég fékk en skartgripir og reiðufé er svona það helsta sem stóð upp úr, auk þess sem ég fékk „nýtt herbergi“ frá for- eldrum mínum. Hvernig hefur fermingarmyndin elst? Fermingarmyndin mín eldist alveg ágætlega held ég. Ég var seinþroska svo ég var ekki komin almennilega á þetta vandræðalega unglingaskeið, heldur leit frekar út eins og ég væri tíu ára. Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður Vals. Hvenær fermdist þú? Ég fermdist í Landakirkju í Vest- mannaeyjum 3. apríl árið 2004. Hvað er minnisstæðast frá undirbúningnum og deginum? Það voru fermingarfræðslutím arnir sem maður reyndi að komast hjá eftir bestu getu. Mér er t.d. minnisstætt að við áttum að læra texta utanbókar og segja fyrir framan prestinn. Þegar kom að veislunni reyndist mikill hausverkur að finna föt til að klæðast auk þess sem það fór mikill undirbúningur í að brjóta saman servíetturnar sem áttu að vera á borð- unum og þræða á þær perlur. Hvaða veitingar var boðið upp á? Ég man ekki mikið eftir veitingunum sjálfum en borðið var mjög fagmannlega skreytt af móður minni. Sjálf er ég ekki mikil kökumanneskja en ég man að ég bað um að boðið yrði upp á Rice Krispies köku. Fékkstu góðar gjafir? Ég fékk fullt af fallegum gjöfum, t.d. mikið af skart- gripum sem voru úr sömu skartgripaversluninni í Vestmannaeyjum. Eftir veisluna skipti ég öllu skartinu í einn fallegan hring sem ég svo týndi í einni U-17 ára landsliðsferðinni. Hvernig hefur fermingarmyndin elst? Bara ágætlega, það er a.m.k. gaman að skoða gamlar fermingarmyndir. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, leikmaður Utah Royals FC. Hvenær fermdist þú? Ég fermdist í október árið 2002. Þar sem ég flutti heim frá Bandaríkjunum um sumarið þurfti ég að fermast hálfu ári seinna en jafnaldrar mínir. Hvað er minnisstæðast frá undirbúningnum og deginum? Það sem er minnisstæðast er að ég fékk að fermast með bestu vinkonu minni sem var líka að flytja heim frá Bandaríkjunum. Í dag erum við enn bestu vin- konur. Hvaða veitingar var boðið upp á? Það voru þessar veitingar, t.d. kransakaka, heitir réttir og kökur sem ömmur og afar og fjölskylda bjuggu til. En þar sem ég hef mjög einfaldan smekk var uppáhaldsrétturinn minn flatkökurnar með hangikjöti. Fékkstu góðar gjafir? það var mikið verið að gefa pening en uppáhalds- gjöfin mín var fjólublá ferðataska sem ég fékk frá Yrsu frænku minni og fjölskyldu. Hvernig hefur fermingarmyndin elst? Ég veit ekki hvað kom upp á í tengslum við fermingarmyndirnar mínar en ég er búin að fela þær allar. Þannig að þær hafa ekki elst vel. Guðbjörg Gunnarsdóttir, leikmaður Djurgården. Hvenær fermdist þú? Það var í Fríkirkjunni í Hafnarfirði árið 1999 Hvað er minnisstæðast frá undirbúningnum og deginum? Það helsta var að undirbúningurinn hófst við fjögurra ára aldur þegar ég pantaði kransaköku frá frænda mínum í Sandholt bakaríi. Hvaða veitingar var boðið upp á? Það var heitur matur með innbökuðu lambalæri og öðrum heitum réttum ásamt meðlæti. Í forrétt var kaldur rækjuréttur. Eftirrétturinn, kransakakan, var klárlega hápunktur veislunnar. Bakarinn sagðist aldrei hafa fengið pöntun svona snemma. Hann hafði góð tíu ár til að undirbúa hana enda minnti ég hann reglulega á það. Fékkstu góðar gjafir? Við Tinna Bergs, æskuvinkona mín, fengum stóra bláa GSM síma sem okkur fannst geggjaðir. Það var frítt að senda SMS allt sumarið svo við sendum SMS okkar á milli alla daga og nætur sem var í algjöru uppáhaldi. Hvernig hefur fermingarmyndin elst? Ég var hálf blind á þessum aldri með stór kringlótt Harry Potter gleraugu og á því myndir með og án gleraugna. Myndirnar án gleraugna eru töluvert betri. Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi Sími 557 4848 / www.nitro.is Glerárgötu 36 / 600 Akureyri Sími 415-6415 / hesja.is Lyngás 13 / 700 Egilsstaðir Sími 471-2299 / ab.is FERMINGAGJAFIR BENSÍN Svört, rauð eða grá RAFMAGNS Svört, rauð eða hvít KEMUR 1. APRÍL Bensín- og rafmagnsvespur á góðu verði Þarf ekki próf, trygg ja eða skrá! “Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum og ráðgjöf um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,, Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir 30 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR 2 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 8 -C A 1 0 2 2 6 8 -C 8 D 4 2 2 6 8 -C 7 9 8 2 2 6 8 -C 6 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.