Fréttablaðið - 26.02.2019, Page 49
Cullest pores minim voluptur? Acipisquia volup spel iatque sumquam ut odis es as spel
iatque sumquam ut odis es as tio.
Ut re perro enis am,
que voloribus, quid quam ut
quas ea poribusaepel ius aliquid
quo sedit delestisi destibus.
Aquo consequo blabor ma
voles etusant.
Offictam que verit a di asinul-
lauda qui aut aut pedis voluptia dit
eritiani omnis debit, ute conse-
quam unt poresendam, sum sunt.
Allar nánari upplýsingar má finna
á www.xxxxxxxxxxxxxxxxxx.is.
Selected og Jack &
Jones bjóða fjöl-
breytt úrval fyrir stráka
og flestir finna eitthvað
við sitt hæfi auk þess
sem verðin eru sérstak-
lega góð.
Það er mikið af fallegum og vönduðum fermingarfötum fyrir stráka í
Selected í Smáralind. Bæði jakkaföt sem stakir jakkar og buxur. MYNDIR/ERNIR
Ingimunda
Maren Guð-
mundsdóttir,
verslunarstjóri
í Selected í
Smáralind.
Jack & Jones er stútfull af fallegum og þægilegum sparifötum á strákana fyrir fermingardaginn MYND/ERNIR
Hilmar Eyþór Ásgeirsson og Izabele Grigoriana, verslunarstjóri Jack &
Jones í Smáralind, veita góða þjónustu í kaupum á fermingarfötum.
Verslanir Jack & Jones og Selected eru reknar af Best-seller á Íslandi en fyrirtækið
er með tíu vinsælar fataverslanir
í Kringlunni og Smáralind. Auk
þeirra fyrrnefndu eru það Vero
Moda, VILA og Name It. Hjá Best-
seller er gríðarlega mikið úrval af
fallegum fötum sem henta vel fyrir
fermingar, bæði fyrir fermingar-
börnin en ekki síður fyrir aðra fjöl-
skyldumeðlimi. Selected og Jack &
Jones bjóða fjölbreytt úrval fyrir
stráka og flestir finna eitthvað við
sitt hæfi í þessum verslunum auk
þess sem verðin eru sérstaklega
góð.
Selected – elegant og flott
„Í Selected má finna hágæða
danska hönnun, falleg jakkaföt
og góðar skyrtur úr vönduðum
efnum. Það er mjög vinsælt hjá
strákum í dag að velja sér jakkaföt
fyrir ferminguna og við erum með
nokkur snið sem henta vel fyrir
stráka. Svo er líka mjög algengt að
pabbarnir komi með og velji sér
föt fyrir stóra daginn,“ segir Ingi-
munda Maren Guðmundsdóttir,
verslunarstjóri í Selected í Smára-
lind. „Þeir drengir sem kjósa að
vera ekki í jakkafötum geta fundið
sér stakan jakka við buxur eða
jafnvel gallabuxur. Í Selected má
einnig finna fallegar peysur og svo
má ekki gleyma bindinu eða þver-
slaufunni,“ segir Ingimunda.
Þegar hún er spurð hvaða litir
séu vinsælastir hjá fermingar-
strákum sem koma í búðina núna,
svarar hún: „Blá jakkaföt eru mjög
vinsæl í ár. Margir strákar taka
hvíta skyrtu við en svo eru alls
konar litir í bindum og slaufum.
Strákarnir hafa mjög sterkar
skoðanir á hvað þeir vilja og eru
alls ekki feimnir að tjá sig um það,“
segir Ingimunda og bætir við að
afgreiðslufólkið í Selected aðstoði
þá og leiðbeini ef þeir eru í ein-
hverjum vafa. „Það er okkar hlut-
verk að hjálpa fermingarstrákum
og öllum öðrum viðskiptavinum
enda leggjum við mikla áherslu á
góða þjónustu,“ segir hún.
Jack & Jones – sportlegt og
töff
Jack & Jones hefur verið á Íslandi í
fjöldamörg ár og þar geta strákar
alltaf fundið falleg föt sem henta.
„Í Jack & Jones er jafnan mikið
úrval af gallabuxum en undan-
farin ár hafa margir strákar kosið
að fá sér nýjar gallabuxur fyrir
fermingardaginn. Vinsælustu
buxurnar eru svartar þröngar
gallabuxur sem heita „LIAM“. Við
gallabuxur er síðan hægt að fá fal-
lega skyrtu og stakan jakka. Í Jack
& Jones er sömuleiðis mikið úrval
af fallegum jökkum, bæði stökum,
fínum jökkum en auk þeirra hafa
hinir svokölluðu „bomber“ jakkar
verið vinsælir hjá fermingarstrák-
um undanfarin ár. Þannig verður
það örugglega aftur núna,“ segir
Izabele Grigoriana, verslunarstjóri
Jack & Jones í Smáralind.
Hún segir að góðir strigaskór
hafi verið vinsælir undanfarin ár
en verslunin býður fjölbreytt úrval
af þeim núna fyrir fermingarnar.
„Sumir strákar kjósa að fara hefð-
bundnu leiðina og þeir geta auð-
veldlega fundið þægileg jakkaföt á
góðu verði í Jack & Jones og fallega
spariskó,“ segir hún.
Izabele segir að kóngablár
litur sé afar vinsæll um þessar
mundir en einnig dökkgrár, bæði
í skyrtum og jökkum. „Svartar
gallabuxur eru alltaf vinsælastar
en margir strákar velja sér vín-
rauða slaufu eða bindi við og hvíta
strigaskó. Íslenskir unglingar hafa
gott auga fyrir tískustraumum,
þeir kjósa notalegan fatnað eins
og stretch-gallabuxur og þægilega
strigaskó. Mér finnst þeir yfirleitt
hafa sterka skoðun á litum, fatnaði
og skóm. Þótt stelpurnar séu
kannski meira að spá í hárgreiðsl-
unni og skreytingum í veislunni þá
eru bæði kynin með sterkar skoð-
anir á fatnaðinum,“ segir Izabele.
„Ef einhver er í erfiðleikum með
að velja réttu fermingarfötin erum
við alltaf til staðar og aðstoðum
við valið. Við finnum það sem fer
best og fermingardrengnum líður
vel í.“
Blái liturinn er vinsæll hjá
fermingardrengjum
Fermingar-
strákar hafa
sterkar skoðanir
á því hvernig þeir
vilja klæðast á
fermingardag-
inn. Starfsfólk
Selected og Jack
& Jones finnur
vel fyrir því en
strákarnir sækja
mikið í þessar
tvær verslanir.
KYNNINGARBLAÐ 33 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 FERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-A
7
8
0
2
2
6
8
-A
6
4
4
2
2
6
8
-A
5
0
8
2
2
6
8
-A
3
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K