Fréttablaðið - 26.02.2019, Side 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAKÞANKAR
Allir í
bátana!
Þeir ríku verða ríkari og hinir fátæku fátækari. Þetta vita allir og finnst f lestum ferlegt.
En þó ekki svo að það borgi sig að
gera eitthvað í því. Og af hverju
ekki? Jú, fræðingar hafa talið okkur
í trú um að það sé svo óábyrgt,
eigin lega alveg galið.
Hér á Spáni er þróunin við
það að afhjúpa hagsæld þessarar
„ábyrgu“ leiðar. Tökum dæmi:
Áður sáu lítil fyrirtæki venjulegast
um rekstur skólamötuneyta í sinni
heimabyggð, þar til fyrir nokkrum
árum að ný skilyrði voru sett við
útboð á slíkum rekstri en þau
kváðu á um að fyrirtækin yrðu að
hafa himinháa ársreikninga til að
geta tekið þátt. Með þessu átti að
koma í veg fyrir skömm eins og þá
þegar óstöndugt fyrirtæki lagði
upp laupana og skildi skólakrakka
í einum grunnskóla í Granada
eftir með tóma diska. Fleiri lög
hafa einnig hjálpað til þannig að
í dag er þessi rekstur að mestu í
höndum fjögurra stórfyrirtækja.
Þau þéna vel og foreldrarnir borga
minna fyrir matinn. Eru þá ekki
allir bara kátir? Ja, ekki þeir sem
verða að borða þennan mat sem
er nær ingar rýr og ólystugur, ekki
foreldrar vannærðra barnanna,
ekki fólkið sem vinnur í mötu-
neytunum sem nær ekki lengur
endum saman og ekki umhverfið
en hagræðið felst meðal annars í
því að f lytja fæðið útum allt land
úr risastórum verksmiðjum. Það
er að segja, þetta er gott fyrir örfáa
auðkýfinga sem hafa efni á því að
senda krakka sína í einkaskóla þar
sem alvöru matur er borinn á borð.
Ef hagfræðingar telja þetta góða
þróun þá var ég aldeilis plataður
þegar ég lét segja mér að hagfræðin
fengist við það hvernig f lestir gætu
haft það sem best.
Hagfræði
auðkýfinganna
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
8
-7
1
3
0
2
2
6
8
-6
F
F
4
2
2
6
8
-6
E
B
8
2
2
6
8
-6
D
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K