Mosfellingur - 19.10.2017, Síða 6
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
Fram undan
í FélagsstarFinu
JÓlaBasar 2017
Hinn árlegi basar á vegum félagsstarfs
eldri borgara í Mosfellsbæ verður haldinn
laugardaginn
18. nóv. kl. 13:30
á Eirhömrum.
Fallegar handunnar
vörur á afar góðu
verði og úrvalið
fjölbreytt. Hlökkum
til að sjá sem flesta
á basarnum. Allur
ágóði fer til þeirra
sem minna mega
sín í bænum okkar.
Vorboðarnir, kór
eldri borgara, syngur fyrir gesti. Kaffisala
á vegum kirkjukórsins verður í matsal.
STYRKJUM GOTT MÁLEFNI
BÚtasaumsHÓPur
Ertu ein/n heima að gera bútasaum?
Langar þig í félagsskap? Okkur í félags-
starfinu Hlaðhömrum langar að bjóða
þér að mynda bútasaumshóp hjá okkur
sem myndi hittast einu sinni í viku. Við
erum með fína aðstöðu í handverksstof-
unni okkar og langar að hafa hana alla
daga fulla af lífi og fjöri. Endilega hafðu
samband við okkur í félagsstarfinu og við
myndum hóp.
gaman saman
í október og nóvember
19. okt. og 2.,16. og 30. nóv kl. 13:30.
Glaða gengið ásamt Helga undirleikara
mætir og fær góða gesti úr leikskólum/
skólum bæjarins. Endilega komið og
verið með. Kaffi og meðlæti í boði eftir
skemmtun á 500 kr. í matsal.
FélagsVist
í október og nóvember
Verður haldin 27. okt. og 10. og 17. nóv.
2017 kl. 13:00 í borðsal.
Verð 600 kr. Innifalið kaffi, meðlæti og
vinningur ef heppnin er með þér. Allir
velkomnir. Skráning nauðsynleg í síma
586-8014 eða á elvab@mos.is
Basar - HJÁlP!!!
Nú styttist óðum í okkar árlega basar og
okkur vantar fleiri sokka og vettlinga af
öllum stærðum og gerðum til að selja á
basarnum sem verður haldinn laugar-
daginn 18. nóv kl. 13:30. Værum við afar
þakklát ef þið sæjuð ykkur fært að prjóna
eða hekla fyrir okkur.
Allt garn getið þið fengið í handverks-
stofu ókeypis en að sjálfsögðu þiggjum
við alla muni til að selja enda málefnið
brýnt. Allur ágóði rennur óskiptur til
þeirra sem minna mega sín í Mosfellsbæ.
Einnig viljum við minna á Ljósálfahópinn
sem hittist alla þriðjudaga og vinnur fyrir
basarinn. Allir velkomnir að vera með,
frábær hópur sem vinnur gott starf.
KærleikskveðjaBasarnefndin
Kanasta spil
Er spilað alla fimmtudaga í borðsal
kl. 13:30 og eftir Gaman saman,
allir velkomnir að vera með í þessu
skemmtilega spili.
línudans haust 2017
Borðsal Eirhömrum mánudaga kl. 15:30.
Kennari Edda, allir velkomnir.
Bridge
Er spilað á Eirhömrum í borðsal kl. 13:00
á þriðjudögum. ATH breyttur tími.
Ef þú hefur áhuga á að vera með,
endilega kíktu, allir velkomnir.
Nánari upplýsingar í félagsstarfinu
eða dagdvölinni hjá Benna.
leshópur eldri borgara
Hittist 6. nóvember 2017 í aðstöðu
félagsstarfins Eirhömrum kl. 10:30,
alltaf fyrsta mánudag í mánuði.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Félag aldraðra
í mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Unnið að lokakafla
Kjósarskarðsvegar
Tilboð í endurbyggingu á 7,5 kíló-
metra vegakafla frá Vindási og inn
fyrir Fremri-Háls á Kjósarskarðsvegi
voru opnuð í gær, en það var
Vörubifreiðastjórafélagið Mjölnir
ehf. sem átti lægsta boð. Með
framkvæmdinni verður lokið við að
leggja bundið slitlag á leiðinni sem
tengir Þingvallaveg inn í Hvalfjörð.
Verklok eru áætluð 1. október á
næsta ári, en útlögn klæðingar á
þó að vera lokið fyrir 1. september.
Skv. upplýsingum frá Vegagerðinni
er verið að ganga frá samningum.
Framkvæmdir ættu að geta byrjað
fljótlega. Ljóst er að um mikla
samgöngubót verður að ræða þegar
vegurinn verður orðinn ökuhæfur
með bundnu slitlagi. Þær Helga Dögg Reynisdóttir og Nanna
Guðrún Bjarnadóttir hafa stofnað fyrirtækið
Fókal sem sérhæfir sig í viðburða- og fyrir-
tækjaljósmyndun. Þær starfa einnig sem
sjálfstætt starfandi ljósmyndarar og eru
með ljósmyndastúdíó í Kjarnanum.
„Við erum fjórir ljósmyndarar sem höf-
um aðstöðu hér í Kjarnanum. Hér erum við
með fullbúið ljósmyndastúdíó og tökum að
okkur alla vega verkefni.
Auk okkar Helgu eru hér Ása Magnea
Vigfúsdóttir og Kolbrún María Ingadóttir.
Við störfum allar sjálfstætt en svo erum við
Helga saman með Fókal,“ segir Nanna.
gaman að vinna saman
„Leiðir okkar Nönnu hafa legið saman í
langan tíma, við vorum saman í ljósmynda-
náminu og höfum báðar lokið námi í graf-
ískri miðlun. Við höfum mikið myndað
fjölskyldur og börn undanfarin ár og okkur
langaði að gera eitthvað saman. Við sáum
tækifæri í þessari hugmynd, því fáir að gefa
sig út fyrir þessa þjónustu við fyrirtæki.
Við höfum fengið ótrúlega góðar við-
tökur og fjölbreytt verkefni. Við myndum
ráðstefnur, starfsdaga hjá fyrirtækjum,
árshátíðir, ýmsa fundi, vöruframleiðslu og
hefðbundnar starfsmannamyndir,“ segir
Helga.
myndir eru mikilvægar fyrir fyrirtæki
„Við leggjum áherslu á vönduð og fagleg
vinnubrögð og skilum af okkur verkefnum
á því formi sem viðskiptavinurinn óskar.
Á heimasíðunni okkar eru allar upplýs-
ingar um fyrirtækið og sýnishorn af þeim
verkefnum sem við höfum verið að fást
við. Okkur finnst gott að vinna saman og
fá faglegan stuðning hvor af annarri,“ segir
Nanna.
„Það eru okkar sýn að góðar myndir
skipti miklu máli í kynningar- og mark-
aðsefni fyrirtækja. Það vantar öll fyrirtæki
góðan ljósmyndara. Við bíðum sérstaklega
spenntar eftir að þjónusta fyrirtæki í Mos-
fellsbæ,“ segir Helga að lokum.
Stofna fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðburða- og fyrirtækjaljósmyndun • Fókal í Kjarna
Myndir skipta miklu máli
Helga dögg og
nanna guðrún
Gísli á Uppsölum
sýndur í Hlégarði
Hið áhrifamikla leikrit Gísli á
Uppsölum verður sýnt í Hlégarði
sunnudaginn 29. október kl. 16.
Um er að ræða einstakt leikverk
um einstakan mann. Einn stærsti
viðburður íslenskrar sjónvarpssögu
er Stikluþáttur Ómars Ragnars-
sonar um einbúann Gísla Oktavíus
Gíslason. Enn er Gísli landanum
kær og hugleikinn. Höfundar eru
þeir Þröstur Leó Gunnarsson og
Elfar Logi Hannesson. Sá fyrrnefndi
leikstýrir en hinn síðarnefndi er í
hlutverki einbúans.
Fyrsti formlegi starfsdagur Aftureldingar
fór fram 27. september í Lágafellsskóla.
Rétt rúmlega 90 þjálfarar og stjórnarfólk í
Aftureldingu tóku þátt í deginum sem þótti
ákaflega vel heppnaður.
Æfingar hjá félaginu voru felldar niður
og þess í stað settust þjálfarar á skólabekk.
Aftureldingarfólk hlýddi á fjóra frábæra fyr-
irlestra frá dr. Hafrúnu Kristjánsdóttur lekt-
or í íþróttafræði við HR, Björgu Jónsdóttur
frá Erindi sem sérhæfir sig í samskiptum,
Guðjóni Svanssyni frá Kettlebells Iceland
og Pálmari Ragnarssyni körfuboltaþjálfara,
sem fræddi gesti um sína einstöku nálgun á
íþróttaþjálfun barna.
Markmiðið með starfsdegi Aftureldingar
er að bjóða þjálfurum og sjálfboðaliðum
upp á fræðslu sem getur nýst þeim í leik og
starfi. Aukin þekking hjá þjálfurum skilar
sér til iðkenda í formi betri þjálfunar.
Tæplega 100 þjálfarar starfa hjá Aftur-
eldingu en félagið heldur úti starfi fyrir tíu
mismunandi íþróttagreinar.
Þjálfarar á skólabekk • Fræðsla sem nýtist • Iðkendur Aftureldingar um 1.500 talsins
Frábær þátttaka á starfsdegi aftureldingar
þjálfarar aftureldingar