Mosfellingur - 30.11.2017, Síða 22
Jón Sverrir hefur alla tíð verið hrifinn af vélknúnum farartækjum. Hann byrj-
aði ungur að árum að snúast
í kringum búvinnutækin á heimilinu, 18
ára starfaði hann á vélskóflum í Kollafirði
en um 22 ára aldurinn hóf hann störf sem
vörubílstjóri á Vörubílastöðinni Þrótti og
hefur starfað við það síðan og er nú með
lengstan starfsaldur á stöðinni.
Jón Sverrir, eða Sverrir eins og hann
er ávallt kallaður, fæddist í Varmadal 1.
desember 1942. Foreldrar hans eru Unnur
Sóley Lilja Valdemarsdóttir og Jón Jónsson
bændur í Varmadal en þau eru bæði látin.
Systkini Sverris eru þau Hjördís,
Valdemar og Haraldur.
Fyrsta manneskjan er ég augum leit
„Ég er alinn upp í Varmadal. Mér er sagt
að það hafi verið kalt skammdegi daginn
sem ég fæddist árið 1942. Faðir minn hafi
verið tilbúinn með tvo eldishesta skafla-
járnaða til ferðar að Laxnesi í Mosfellsdal
ef aðstoðar ljósmóður þyrfti fyrirvaralaust
sem og varð tilfellið.
Brýrnar voru að vísu komnar á Leirvogs-
ána og Köldukvísl en vegalengdin löng,
svartamyrkur og frost. Helga ljósmóðir var
vakin með því að guða á glugga, hún útbjó
sig í skyndi í hnakkinn á aukahestinum til
að aðstoða móður mína við komu mína í
þennan heim. Helga var eiginkona Einars á
Litla-Landi við Brúarland og var því fyrsta
manneskjan sem ég augum leit.“
Þetta var eins og gott heimili
„Bernskan í Varmadal var áhyggjulaus,
allt í föstum skorðum. Húsakostur allur
góður og frumuppeldið hvíldi á móður
minni, Elísabetu ömmu og Hjördísi systur
minni fyrstu árin. Fljótlega hændist ég þó
að karlpeningi bóndabýlisins og ekki hár
í loftinu var ég farinn að snúast í kringum
búpening og búvinnutæki.
Skólaganga mín hófst um átta ára aldur
að Klébergi á Kjalarnesi, heimavist undir
styrkri stjórn Ólafs skólastjóra og Bjargar
konu hans. Mér dettur oft í hug nú hve
góðir þjóðfélagsþegnar þessi hjón voru því
þetta var auðvitað bara eins og gott heimili.
Ólafur kenndi allar námsgreinar og Björg
handavinnu stúlknanna.
Það eina sem ég sé nú
vera svolítið gamaldags var
að þær stelpur sem komu úr
nágrenni skólans, sem voru
sem sagt ekki á heimavist-
inni, klæddust síðbuxum í
vetrarkuldanum á ferð sinni
gangandi í skólann en urðu
að afklæðast þeim og fara í
kjól í veru sinni í skólanum.“
Beið eftir bjarma ljósanna
„Mér eru minnistæð-
ir þeir mánudagsmorgnar
þegar áætlunarbíllinn kom
úr Reykjavík á leið sinni upp
í Kjós. Ég beið bílsins uppi í
stofu í Varmadal þar til ég sá
bjarma ljósanna þar sem nú eru
Hulduhólar. Nokkru seinna tvö
ljós hans þar sem nú er dekkja-
verkstæðið við Langatanga og
þá setti ég skólatöskuna á bakið og hljóp
niður á veg við gömlu brúna. Rútan kom
svo yfir Leirvogstunguhæðina og ég fór upp
í hana þar.”
Mosfellssveitin fóstraði vel þennan hóp
„Eftir veruna á Klébergi tók Brúarlands-
skóli við þaðan sem ég á góðar minningar.
Skólanum stýrði Lárus Halldórsson og man
ég vel eftir leikfimikennslu hans, hann þá
kominn á efri ár en afar léttur og fimur, góð
kennsla á allan hátt. Gagnfræðaskóli verk-
náms var næst á lífsleiðinni og tók tvö ár.
Ég gekk til spurninga til fermingar eins
og það var nefnt í þá daga hjá séra Hálfdáni
Helgasyni prófasti á Mosfelli en hann féll
frá rétt fyrir fermingardaginn. Það varð því
með fyrstu verkum séra Bjarna að ferma
okkur hópinn seinna um haustið. Gaman
er nú að sjá hvað Mosfellssveitin fóstraði
þennan hóp vel því flest öll erum við nú
enn í Lágafellssókn um 75 ára gömul.“
Lengstur starfsaldur á stöðinni
„Nú tók skóli lífsins við, vinnan við bú-
störf í Varmadal og umsjón með landbún-
aðartækjum hvíldi á herðum okkar bræðra.
Oft hugsa ég til þess hve mikið
gagn við gerðum, litlir strákar
mættir með tvo fulla heyvagna
af nýslegnu grasi fyrir framan
súrheysturninn og þegar foreldr-
ar okkar höfðu lokið mjöltun á
morgnana gat pabbi byrjað að
moka í blásarann sem blés hey-
inu upp í turninn.
18 ára hóf ég vinnu hjá Vinnu-
vélum í Kollafirði á vélskóflum í
sandnámunni þar en var alltaf heima yfir
sumartímann við landbúnaðarstörf.
Ég gerðist vörubílstjóri á Vörubílastöð-
inni Þrótti þegar ég var 22 ára og hef starfað
við það síðan og er nú með lengstan starfs-
aldur á stöðinni.“
Ævarandi hlýja til Skálatúns
Jón Sverrir og Hanna Sigurjónsdóttir
gengu í hjónaband 1964 og eignuðust fjög-
ur börn, Jón, Andrés, Elísabetu og Björg-
vin. „Andrés misstum við 30 ára gamlan
en hann gekk ekki heill til skógar. Hann
var heima til fimm ára aldurs en bjó síðan
í 25 ár á Skálatúni og kann ég því heimili
ævarandi hlýju fyrir þá virðingu sem heim-
ilið, starfsfólk og ríkið sýndi honum. Jón og
Elísabet búa bæði í Varmadal en Björgvin í
Leirvogstungu.“
Húsnæðið varð eldi að bráð
Árið 1971 stofnuðu félagarnir Jón Sverr-
ir, Bernhard Linn og Níels Hauksson fyrir-
tækið Hengil sf. um rekstur vinnuvéla og
keyptu fljótlega verkstæðis- og verslunar-
húsið Þverholt hér í bæ og hófu rekstur.
„Húsnæðið varð eldi að bráð en við byggð-
um það upp aftur en í breyttri mynd. Í dag
eigum við hjónin ásamt syni
okkar og tengdadóttur Hengil.
Rekstur fyrirtækisins hvílir nú
mest á Björgvini og dagleg
umsjón þrifa og reikningshald
á eiginkonunni.“
Legg mitt af mörkum
„Lífið hefur farið vel með
okkur hjónin, barnalán, níu
barnabörn og eitt langafabarn.
Ég hef haft allgóða heilsu, unn-
ið nokkuð mikið en líka leikið
mér. Fyrst í íþróttum, hesta-
mennsku, flugi og kórsöng
ásamt því að fara reglulega í
sund. Ég fer stundum einn en
oftar með barnabörnunum
og oftast með barnabarninu
Emmu Íren minni en við höfum farið sam-
an í sund í 15 ár og gerum enn.
Ég syng nú með Karlakór Kjalnesinga og
Kirkjukór Brautarholts- og Reynivallasókn-
ar og þykist því leggja eitthvað af mörkum
fyrir samfélagið á efri árum.“
Ég spyr Sverri að lokum hvað hann ætli
að gera á afmælisdaginn en hann verður 75
ára daginn eftir að viðtalið kemur út? „Ég
ætla að vera í faðmi fjölskyldu og barna,
þannig líður mér best.“
- Mosfellingurinn Jón Sverrir Jónsson22
Jón Sverrir og Hanna með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum.
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
HIN HLIÐIN
Hvað heillar þig í fari fólks? Sönghæfi-
leikar, eins og að heyra félaga mína, ein-
söngvarana í Karlakór Kjalnesinga flytja
fallega tónlist við hátíðleg tækifæri.
Hefur þú hent einhverju sem þú sérð
rosalega eftir? Kannski tækifærinu að
hafa aldrei farið til sjós. Móðurafi minn
var togaraskipstjóri.
Uppáhaldsverslun? Gjafavöruverslunin
Evíta í Háholtinu fyrir að hafa staðsett sig
í Mosfellsbæ og eins allar verslanir sem
selja vörur Mjólkursamsölunnar.
Draumabíllinn? G 710, Buick 1955.
Hver er þín óvenjulegasta lífsreynsla?
Árið 1982 áður en ég lærði að fljúga var
ég farþegi í TF-SPA ofar skýjum við Ak-
ureyri og flugumferðarstjórinn gaf okkur
leiðbeiningar um hvernig við ættum að
komast niður. Ég varð skelfingu lostinn
og ætlaði að biðja Aðalstein Björnsson,
flugstjóra að snúa frekar við en rödd mín
var algerlega horfin af skelfingu, ég kom
ekki upp orði. Allt fór þó vel.
Áttu eitthvert gælunafn? Guðmundur
vinur minn Hjálmtýsson í Arkarholtinu
kallar stundum í mig „hvernig hefur þú
það Nonni minn“ og mér þykir vænt um
þetta ávarp.
Hver kom þér síðast á óvart og hvern-
ig? Ruth Örnólfsdóttir, fyrir að bjóða
mér að koma í þetta viðtal.
Gaman er nú að sjá hvað
Mosfellssveitin fóstraði
þennan hóp vel því flest öll
erum við nú enn í Lágafellssókn
um 75 ára gömul.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
á brúðkaupsdaginn 1964
Gott að geta lagt
til samfélagsins
á efri árum
Jón Sverrir Jónsson í Varmadal er einn af elstu starfandi bifreiðastjórum á landinu
jón sverrir og úlfurinn
óðal feðrannaungur að árum
Nýjar og
bækur eftir
endurútgefnar
Hugin Þór Grétarsson
Ó ó Líó er gamansöm
bók fyrir yngstu
vandræðagemsana.
Líó litli er að læra á heiminn
enda er svo margt að
varast, svo margt sem
ekki má. En þá er líka gott
að eiga yndislega fjölskyldu.
Spjaldabók með mjúkri kápu.
Í léttlestrarbókunum er unnið
með forvitni barna. Getur
Kata klára allt? Af hverju
heldur kisi að hann sé fugl?
Eru draugar til? Bækurnar
eru stuttar og börn fyllast
sjálfstrausti og ánægju með
eigin árangur þegar þeim
tekst að klára heila bók.
Loksins, loksins! Hér er
fundin fullkomin lausn
til að koma börnum í
háttinn! Teljum kindur.
Þá geta foreldrar
farið að gera eitthvað
skemmtilegra en
að sinna börnunum
sínum, t.d. glápa á
sjónvarpsseríu..
Við kynnum til leiks Brandara
og gátur 2. Með þessa í
jólapakkanum ábyrgjumst við
hlátur og gleði yfir jólin.
Ormur gutti fær að heyra
af lífi litla indjánans og að
þrátt fyrir að margt sé
ólíkt með þeim, er engu
að síður svo margt sem
þeir eiga sameiginlegt.
Gagnleg bók til að ræða
fjölmenningu.
Verum við sjálf! Samfélagið reynir
að segja öllum hvernig þeir eigi að
vera, en þá er mikilvægt að hafa
trú á sjálfum sér og þor til að
vera maður sjálfur.
Blómlegt fjölskyldulíf er
stuðningsrit fyrir skilnaðarbörn.
Bókin er verkfæri til að vinna
með tilfinningar og þær
breytingar sem verða í lífi
barns þegar foreldrar þess
skilja.
Bækur með boðskap
Jólaþrautir
Skemmtileg þrauta- og litabók um
jólasveinana. Sveinarnir skemmta
börnum yfir hátíðirnar og dansa með
þeim í kringum jólatré. Þessi bók er
frábær gjöf í skóinn.
Léttlestrarbækur