Mosfellingur - 30.11.2017, Síða 37
Mörk
kVENNA
Undanfarnar vikur hefur komið fram
holskefla af reynslusögum kvenna
um allan heim af kynferðisáreitni og
-ofbeldi. Uppruna þessarar bylgju
má rekja til myllumerkisins #metoo
sem fór á flug eftir að konur innan
Hollywood afhjúpuðu sjúka hegðun
kvikmyndaframleiðandans Harveys
Weinstein. Síðan þá hafa heilu samfé-
lagshóparnir um allan heim, nú síðast
konur í stjórnmálum á Íslandi, tekið
sig saman og lýst þeirri hegðun og því
ofbeldi sem þær hafa mátt þola af hálfu
karla.
Margir karlmenn virðast taka þessu
sem ógn, fara í vörn. Áframhald á þeim
veruleika sem konur búa við alla daga
.
Þar sem einhver annar en þær sjálfar
skilgreinir þeirra mörk og upplifanir.
Að sýn karla á heiminn sé einhvers
konar fasti sem rétt sé að ganga út frá.
Mega konur ekki, líkt og karlar, greina
frá sinni upplifun án þess að einhver
þurfi að taka til varna? Taka afstöðu,
með eða á móti?
Stundum er talað um að samskipti
kynjanna séu flókin og óskýr. En eru
þau það í raun og veru? Eru þessi mörk
svona óskýr? Eða hentar það bara
okkur körlunum að svo sé? Af þeim
rúmlega 130 sögum sem konur úr
íslenskum stjórnmálum hafa sagt get
ég ekki séð sögur af óskýrum mörkum
,
heldur sögur ýmist af vanvirðingu
marka eða af körlum að yfirfæra sín
mörk á konur. Aðrar sögur eru hrein-
lega af ofbeldi.
Samspil kynjanna er okkur eðlislægt,
forsenda lífs og afkomu okkar. Það er
fallegt og einstakt en einnig hræði-
legt og þvingað. En hvar mörk þessa
samspils liggja er ekki okkar karla að
ákveða. Það er samtal kynjanna sem
hingað til hefur verið eintal karla við
konur. Nú þegjum við og hlustum.
Þjónusta við mosfellinga verslum í heimabyggð
Skýja
luktirnar
fáSt í
BymoS
smá
auglýsingar
Þú getur
auglýst
frítt
(...allt að 50 orð)
sendu okkur þína
smáauglýsingu í
gegnum tölvupóst:
mosfellingur@mosfellingur.is
týndur hundur
Svartur labrador slapp frá
heimili okkar í Klappar-
hlíðinni á þriðjudag. Hann
er með bláa ól á sér sem
stendur á Mummi. Ef
þið rekist á hann megið
þið gjarnan bjalla í síma
8979823.
smáauglýsingarnar
eru fríar fyrir
einstaklinga
mosfellingur@mosfellingur.is
Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200
www.artpro.is
Vespu-, bifhjóla-, og bílpróf
Annast akstursmat og sé um hæfnispróf fyrir þá sem hafa gleymt að endurnýja.
www.malbika.is - sími 864-1220
www.bmarkan.is
Opnunartími
sundlauga
lágafellslaug
Virkir dagar: 06:30 - 21:30
Helgar: 08:00 - 19:00
Varmárlaug
Virkir dagar: 06:30-08:00 og 15:00-21:00
Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00
MOSFELLINGUR
kemur
næst út
21. des.
SkilafreStur fyrir efni
og auglýSingar er til
hádegiS 18. deS.
Tek að mér
alla krana- og
krabbavinnu
Útvega allt
jarðefni
Vörubíll Þ.b.
Klapparhlíð 10
Þorsteinn 822-7142
a
Háholti 14 • 270 Mosfellsbæ • arioddsson@arioddsson.is
Símar: 895-0383 / 867-7704 / 564-4070
www.arioddsson.is
FAGMENNSKA Í FYRIRRÚMI
MÚRVERK - FLÍSALAGNIR - ALMENN VIÐHALDSVINNA
Snyrti-, nudd- & fótaaðgerðastofan
Líkami og sál
Þverholti 11 - s. 566 6307
www.likamiogsal.is
Verið hjartanlega velkomin!
Þjónusta við Mosfellinga - 37