Mosfellingur - 22.08.2017, Blaðsíða 14

Mosfellingur - 22.08.2017, Blaðsíða 14
Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhann- esson, og kona hans, Eliza Reid, komu í opinbera heimsókn í Mosfellsbæ á afmæl- isdaginn 9. ágúst. Bæjarstjóri og bæjarstjórn tóku á móti forsetanum og fylgdarliði hans í skógrækt- inni við Hamrahlíð klukkan 9.30. Skóg- ræktarfélagið bauð upp á skógarkaffi og forsetahjónunum var gefið jólatré að eigin vali úr skóginum. Kennarar úr Skólahljóm- sveit Mosfellsbæjar blésu í lúðra og gerðu móttökuna hátíðlega og skemmtilega. Bæjarfulltrúar fylgdu forsetanum upp í Mosfellsdal þar sem bændurnir á Hrísbrú tóku á móti hópnum og þar fór fram kynn- ing á fornleifaverkefni. Afkomendur Hall- dórs Laxness ásamt starfsfólki Gljúfrasteins tóku á móti forsetanum í Húsi skáldsins. Þá var farið í heimsókn í Dalsgarð þar sem Gísli Jóhannsson sagði frá blóma- og jarðarberjarækt sem þar fer fram og forseta- frúnni var færður einstaklega fallegur rósa- vöndur. Snæddur var hádegisverður í nýrri íþróttamiðstöð Golfklúbbs Mosfellsbæjar þar sem öll aðstaða var til fyrirmyndar. Leystur út með gjöfum Eftir hádegi tóku nemendur Krikaskóla á móti forsetahjónunum. Vorboðarnir sungu á Eirhömrum ásamt hópi barna af Reykja- koti. Eldri borgarar sýndu aðstöðu sína og gáfu Guðna og Elizu vettlinga að gjöf. Að Reykjum tók Jón Magnús Jónsson á móti hópnum og greindi frá starfsemi Reykjabúsins og sögu staðarins. Þá var haldið í Álafosskvos þar sem Palli hnífa- smiður var heimsóttur á sitt stórskemmti- lega verkstæði og forsetinn var leystur út með gjöf frá Palla sem var lítill hnífur sem tilvalinn er til að kenna börnum að tálga. Þegar komið var í Kvosina fór sólin að skína. Hafliði í Mosfellsbakaríi bauð upp á kaffi og glæsilegt meðlæti í brekkunni. Þórir listapúki nýtti tækifærið og færði forseta- hjónunum mynd af þessu tilefni. Hópurinn gekk þar næst í gegnum Kvos- ina og heilsaði upp á skátana sem voru að sýsla fyrir utan félagsheimili sitt. Á Stekkj- arflötinni tók hópur barna úr Aftureldingu á móti forsetanum og félagið færði Guðna Th. merkta treyju að gjöf. Hátíðleg dagskrá í Hlégarði Í Hlégarði tók við hátíðardagskrá sem var stýrt af fyrrverandi þingmanni og bæjar- stjóra, Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Bæjarlistamennirnir Greta Salóme, Diddú og Anna Guðný komu fram. Bæj- arfulltrúar greindu frá gjöfum til bæjarins og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri færði forsetanum listaverk úr leir eftir móður sína Steinunni Marteinsdóttur, listakonu og bæjarlistamann. Gripurinn er mótaður eins og bók og skreyttur með skjaldarmerki Mosfellsbæj- ar og hefur tilvísun í Laxness og Mosfells- kirkju. Auk þess var forsetanum gefin Saga Mosfellsbæjar. Þetta var hátíðlegur og einstakur dagur. Bærinn skartaði sínu fegursta og íbúar á öllum aldri fögnuðu og heilsuðu Guðna og fylgdarliði hans hvert sem hann kom. Allir þeir sem tóku á móti forsetanum voru sjálf- um sér og bæjarbúum til mikils sóma. Mosfellsbær hefur upp á mikið að bjóða og skipuleggjendur voru sammála um að eflaust hefði verið hægt að gera margra daga dagskrá þar sem haldið hefði verið áfram að heimsækja áhugavert fólk og staði. Öllum sem tóku þátt í deginum eru færð- ar þakkir fyrir og bæjarbúum, sem nýverið urðu 10 þúsund, er óskað innilega til ham- ingju með afmælið. 30 ára afmælisdagur mosfellsbæjar • opinber heimsókn forseta íslands - 30 ára afmælisdagur Mosfellsbæjar14 Forsetahjónin komu í heimsókn á afmælisdaginn 9. ágúst • Mosfellsbær 30 ára Úr sveit í bæ krakkar á hlaðhömrum standa heiðursvörð listapúkinn málaði mynd af forsetahjónunum greta salóme bæjarlistamaður heilsað upp á hljóðfæraleikarana hlýjar móttökur á eirhömrum guðni færir gljúfrasteini gjöf bæjarstjórnin tók á móti forseta- hjónunum í hamrahlíðinni höfðinglegar móttökur á reykjum haraldur og guðni skiptast á gjöfum krakkar úr aftureldingu fengu fimmu og sjálfu M yn di r/ Ra gg iÓ la o g H ilm ar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.