Mosfellingur - 22.08.2017, Blaðsíða 20
- Dreift frítt í Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós20
Kombó
tilboð
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
franskar + coke 0,5 l + Sport lunch súkkulaði
El reno
ÁLFHEIMUM
GULLINBRÚ
NORÐLINGAHOLTI
MOSFELLSBÆ
AKRANESI
BORGARNESI
STYKKISHÓLMI
SKAGASTRÖND
SIGLUFIRÐI
ÓLAFSFIRÐI
DALVÍK
REYÐARFIRÐI
NESKAUPSTAÐ
HELLU
SELFOSSI
HÚSAVÍK
við erum á olís
Grill66.is
999
krónur
tilboðiðgildir24. ágúst–3. september
30 árum síðar. Steinunn Ásta Lárusdóttir, Elva Baldursdóttir, Ingibjörg Ásta
Guðmundsdóttir og Þuríður Yngvadóttir. Á neðri myndinni má sjá mæðurnar
reyna að endurtaka leikinn síðan á fæðingardeildinni og halda á stelpunum.
30 ár liðin síðan síðasta sveitabarnið og fyrsta bæjarbarnið í Mosfellsbæ fæddist
Bærinn stækkar og börnin með
Mosfellsbær fagnar um þessar mundir 30 ára kaupstaðarafmæli
sínu. Fyrir 30 árum var tekin mynd af síðasta sveitabarninu og
fyrsta bæjarbarninu við þessi tímamót. Það voru vinkonurnar
Steinunn Ásta Lárusdóttir og Þuríður Yngvadóttir sem staddar
voru á fæðingardeildinni á meðan sveitin breyttist í bæ á einni
nóttu.
Dætur þeirra eru því í dag orðnar þrítugar en þær eru fæddar
sitt hvoru megin við afmælisdag Mosfellsbæjar sem er 9. ágúst.
Mosfellingur brá á það ráð að hitta mæðgurnar nú 30 árum
síðar og smella nýrri mynd af þeim við þetta tilefni.
Vel hefur tognað úr stelpunum og reyndist ekki léttur leikur að
endurtaka myndatökuna frá því fyrir 30 árum. Þá birtist myndin í
DV en hana tók Gunnar V. Andrésson.
Georg Douglas opnar
myndlistarsýningu
Mosfellingurinn Georg Douglas
hefur opnað myndlistarsýningu í
ARTgallerý Gátt (áður Anarkía) í
Hamraborg 3, Kópavogi. Sýningin
stendur til 10. september. Georg
er fæddur á
Norður-Írlandi
en varð íslenskur
ríkisborgari árið
1975. Georg er
menntaður jarð-
vísindamaður og
starfaði við fag sitt
og kennslu þar til
hann fór á eftirlaun árið 2007. Georg
hefur sótt nám í Myndlistarskóla
Kópavogs og Myndlistaskólanum
í Reykjavík samfellt frá árinu 2005.
Sýningin ber heitið „Meira en augað
nemur“ og vísar titillinn til þess að
myndirnar eigi að sýna meira en
virðist í fyrstu sýn. Myndirnar eru
innblásnar af blómum en margt
tvinnast saman og truflar skynjun
áhorfandans. Málverk Georgs
byggja á vísindalegum bakgrunni
hans og vaxandi myndlistarreynslu.
Þau hafa vakið athygli bæði hér
heima og erlendis.
Georg Douglas: „Meira en augað nemur“
ARTgallery Gátt
Hamraborg 3, Kópavogi
19. ágúst – 10 september
Verið velkomin á opnun laugardaginn
19. ágúst kl. 15
"Meira en augað nemur" er nafn sýningar á olíumálverkum á báðum hæðum
í ARTgallery Gátt (áður Anarkía).
Eins og titillinn ber með sér, eiga myndirnar að sýna meira en virðist við
fyrstu sýn. Myndirnar eru innblásnar af blómum en margt tvinnast saman:
Blómkrónur, stilkar, blöð, frjókorn, prótín, sa eindir, kollagen keðjur og fleira.
Georg hefur gaman af trufla skynjun áhorfandans með því að víxla og breyta
hlutföllum, þannig geta prótín spí alar skyggt á sjálf blómin og það er enginn
raunverulegur forgrunnur eða bakgrunnur en allt myndar eina abstrakt heild.
Myndirnar eru gjarnan formsterkar, stórar (3 x 2 m) og litríkar.
Málverk Georgs byggja á bæði vísindalegum bakgrunni hans og vaxandi
myndlistareynslu. Þau hafa vakið athygli bæði hér heima og erlendis.
Hann hefur m.a. unnið til verðlauna og fengið viðurkenningar fyrir verk sín hjá
International Artist Magazine, Gallery25N, N.Y. og Art Competition Net.
International Artist Magazine hefur nýlega valið myndlist hans til sérstakrar
umfjöllunar og mun greinin birtast í blaðinu á næstunni.
fjölskylduvæn ísbúð
í hjarta mosfellsbæjar
Verið hjartanlega
velkomin
HáHolti 13-15 • s. 564 4500
Opið alla daga kl. 12:00-23:00