Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 4

Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 4
Sr. Skírnir Garðarsson hefur látið af störfum í Lágafellssókn en hann hefur starfað við hlið Ragnheiðar Jónsdóttur sóknarprests síðastliðin tæp sjö ár. Staða prests í Mos- fellsprestakalli er því laus til umsóknar og ljóst þykir að brauðið verði eftirsóknar- vert. Talsvert hefur verið fjallað um málefni sóknarinnar á síðustu vikum en bæði Skírnir og Ragnheiður hafa verið í leyfi frá störfum síðustu vikur vegna óánægju innan sóknarinnar. Tveir afleysingaprestar hafa þjónað Mosfellingum yfir hátíðarnar. Kosningar færast í vöxt Samkvæmt starfsreglum um val á presti fer almenn prestskosning fram, riti þriðj- ungur atkvæðisbærra sóknarbarna undir viljayfirlýsingu þess efnis. Það þýðir að safna þarf um 2.000 undirskriftum. Stuðningshópur Arndísar G. Bern- hardsdóttur Linn er farinn af stað með undirskriftasöfnun en færst hefur í vöxt að sóknarbörn leiti þessarar leiðar og fari fram á prestskosningu í stað þess að valnefnd velji sóknarprest. Mosfellingar hafi val „Við vonumst til þess að Mosfellingar taki þessari áskorun vel og vilji hafa um það að segja hver muni gegna stöðu prests í sókninni,“ segir Helga Kristín Magnúsdóttir talsmaður stuðningshóps Arndísar Linn. „Við erum ekki í neinum vafa um það hver er best til þess fallin að verða prestur í Lágafellssókn. Það er hún Arndís Linn sem starfað hefur við sóknina í fjölda ára. Hún er rótgróinn Mosfellingur og vel liðin meðal sóknarbarna. Okkur finnst vega þyngra að viðkomandi sé í sterkum tengslum við sína heimabyggð heldur en starfsreynsla í árum talið innan þjóðkirkjunnar. Við erum vongóð um að við náum til- teknum fjölda undirskrifta og kosningar fari fram. Með undirskrift um prestskosningu er þó ekki verið að lýsa yfir stuðningi við einn frambjóðanda frekar en annan. Heldur er verið að fara fram á að Mosfellingar hafi val og láti sig málefni sóknarinnar hér í bæ varða,“ segir Helga Kristín. Á næstu dögum verður gengið í hús og safnað undirskriftum en listi mun einnig liggja frammi í Fiskbúðinni Mos. www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64 HelgiHald næstu viKna sunnudagur 10. janúar Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00 Sr. Birgir Ásgeirsson Sunnudagaskólinn hefst aftur eftir jólafrí kl. 13:00 Batamessa kl. 17:00 Sr. Arndís Linn sunnudagur 17. janúar Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00 Sr. Kristín Pálsdóttir sunnudagur 24. janúar Gospelmessa að kvöldi Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 20:00 Sr. Birgir Ásgeirsson sunnudagaskólinn er á sunnudögum kl. 13:00 í Lágafellskirkju TTT - starf fyrir krakka á aldrinum tíu til tólf ára í safnaðarheimilinu 2. hæð kl. 16:00 á mánudögum. Hefst 11. janúar. Allar upplýsingar um safnaðarstarf Lágafellssóknar er að finna á heimasíðu kirkjunnar www.lagafellskirkja.is Forvitnilegar kynlífslýsingar Lestrarfélagið Krummi veitir árlega verðlaun fyrir forvitnilegustu kynlífslýsinguna í nýútkomnum bókum. Félagið hefur tilnefnt sex bækur í þennan kynlega flokk og þar á meðal eru tvær skáldsögur eftir Mosfellinga, Spiritus fossis eftir Bjarka Bjarnason og Eitthvað á stærð við alheiminn eftir Jón Kalman Stefánsson. Verðlaunin verða veitt í febrúar. Auglýst eftir presti við hlið sr. Ragnheiðar • Safna undirskriftum þriðjungs sóknarbarna farið fram á prestskosningu í stað ákvörðunar valnefndar Stuðningshópur Arndísar Linn hefur stigið fram og vill prestskosningu. Arndís hefur starfað við Lágafellssókn á annan áratug. Hún útskrifaðist sem guðfræðingur 2008 og var vígð til prestsþjónustu í Kvennakirkjunni 2013. StuðningShópur DíSu linn LágafeLLskirkja í MosfeLLsbæ Óski minnst þriðjungur atkvæðis- bærra sóknarbarna í prestakalli þess, að almenn prestskosning fari fram er skylt að verða við því. Skrifleg ósk um kosningu skal hafa borist biskupi eigi síðar en að hálfum mánuði liðnum frá þeim degi er kallið var auglýst laust til umsóknar. (Starfsreglur um val og veitingu prestsembætta nr. 1109/2011, 15. gr.) þriðjung þarf til Undirbúningur árlegs þorrablóts Aftureld- ingar stendur nú sem hæst, en það fer fram í íþróttahúsinu að Varmá laugardaginn 23. janúar. Miðasala er þegar hafin á Hvíta Riddaranum, en borðapantanir fara fram fimmtudaginn 14. janúar kl. 19:30 – 20:30, einnig á Hvíta Riddaranum. „Undanfarin tvö ár hefur verið uppselt hjá okkur og í ár ætlum við að stækka salinn aðeins og vera bæði með hring- og lang- borð. Við ætlum að bjóða upp á 10 manna hringborð sem eru seld í heilu lagi ásamt fljótandi veigum og hægt er að velja þessi borð strax þegar þau eru keypt,“ segir Ásgeir Sveinsson varaforseti þorrablótsnefndar. lambalæri fyrir þá sem ekki vilja þorra „Ég er mjög spenntur fyrir því að skemmta í Mosó,“ segir Sóli Hólm sem verð- ur veislustjóri kvöldsins. „Þetta er þorrablót sem ég hef heyrt talað um sem eitt af þeim allra skemmtilegustu. Hef heyrt að þangað mæti bara fólk með góðan húmor og söng í hjarta. Umhverfi sem ég og gítarinn minn pössum vel inn í,“ segir Sóli en Ingó Veður- guð ásamt Sverri Bergmann munu svo sjá um fjörið á dansgólfinu. Tríóið Kókos mun taka vel á móti veislugestum og Geiri í Kjöt- búðinni sér um veitingarnar og býður upp á hefðbundinn þorramat ásamt lambalæri og Bearnaise fyrir þá sem ekki treysta sér í þorrann. „Sú hefð hefur skapast að hópar komi og skreyti borðin sín. Mikill metnaður er í skreytingum og góð stemning í salnum þegar þetta fer fram. Skreytingarnar fara fram kl. 12-13:30 á blótsdegi,“ segir Ásgeir og hvetur alla til að fylgjast með framgangi mála á Facebook-síðu þorrablótsins. Þorrablót Aftureldingar verður nú haldið í 9. skipti í þeirri mynd sem það er nú. Þorrablót Aftureldingar fer fram laugardaginn 23. janúar • Borðaskreytingar í hádeginu Með góðan húmor og söng í hjarta Rafræn kosning um íþróttakarl og konu Búið er að tilnefna 17 einstaklinga til íþróttakarls og -konu Mosfells- bæjar 2015. Átta karlar eru tilnefnd- ir og níu konur. Íþróttafólkið er kynnt betur til sögunnar annars- staðar í blaðinu. Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönn- um í íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa um tilnefningarnar. Kosningin fer fram á vef Mosfells- bæjar www.mos.is dagana 7.-15. janúar. Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3. sæti. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 21. janúar kl. 19 í íþróttamiðstöðinni að Varmá. Þangað eru allir velkomnir. Á myndinni hér að ofan má sjá íþróttamenn Mosfellsbæjar 2014, þau Kristján Þór Einarsson og Brynju Hlíf Hjaltadóttur. gLeði á þorrabLóti Hirðing jólatrjáa 10. og 11. janúar Félagar í handknattleiksdeild Aftur- eldingar munu aðstoða bæjarbúa við að fjarlægja jólatré sín og koma þeim í viðeigandi endurvinnslu og kurlun. Þeir verða á ferðinni sunnudaginn 10. og mánudaginn 11. janúar. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk fyrir þann tíma og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið og valdið tjóni. Einnig geta íbúar losað sig við jólatré í Sorpu án endurgjalds. w w w. l a g a fe l l s k i r k j a . i s

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.