Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 26
Kæru Mosfellingar!
Um áramót er venja að líta yfir farinn veg, rifja upp og meta hvernig liðið ár hefur gengið
og ekki síður velta fyrir sér hvað bíður okkar á nýju ári.
Í heildina litið má segja að árið 2015 hafi verið gott ár. Hagsæld hefur aukist, kjör batnað og
uppgangur er í þjóðfélaginu um þessar mundir. Í Mosfellsbæ er þetta líka raunin en hér fer
fram mikil uppbygging á íbúðahúsnæði, atvinnuhúsnæði, skólum og umferðarmannvirkjum.
Kannanir síðustu ára hafa sýnt að íbúar í Mosfellsbæ eru ánægðir. Þar fléttast saman sú þjón-
usta sem sveitarfélagið er að veita og það góða samfélag sem íbúar þess skapa.
Miklar kjarabætur starfsmanna
Það má segja að árið 2015 hafi verið ár hinna stóru kjarasamninga. Á árinu tókst sögulegt
samkomulag flestra stéttarfélaga, Samtaka atvinnulífsins, ríkisvaldsins og sveitarfélaga um
ramma launahækkana næstu þrjú árin, sk. SALEK samkomulag. Samkomulagið felur í sér
um 30% launahækkun á þessu tímabili sem er sögulega mjög há hækkun sérstaklega í ljósi
lágrar verðbólgu. Launakostnaður er langstærsti útgjaldaliður sveitarfélaga og er launakostn-
aður Mosfellsbæjar að hækka um 17% milli áranna 2015 og 2016. Því miður eru tekjur ekki
að hækka samsvarandi og því er rekstur sveitarfélagsins erfiður nú um stundir. Þetta sama á
við um önnur sveitarfélög. Það er skoðun sveitarstjórnarmanna að skoða þurfi tekjuskiptingu
ríkis og sveitarfélaga upp á nýtt. Tillögur þess efnis munu vonandi fá jákvæða niðurstöðu á
árinu 2016.
Nýr Helgafellsskóli í undirbúningi
Mikil uppbygging hefur verið í skólamálum á undanförnum árum samfara fjölgun í sveitar-
félaginu. Mosfellsbær er vinsælt sveitarfélag og eftirsótt til búsetu, það sannar eftirspurn eftir
húsnæði hér í bæ. Við Höfðaberg er á lokastigi uppbygging á skólahúsnæði fyrir rúmlega 200
börn en þar verður kennsla fyrir 5, 6 og 7 ára börn við góðan aðbúnað næstu árin. Vel hefur
tekist til með þetta húsnæði sem hefur komið fram í ánægju meðal barna, foreldra og starfs-
fólks þó að auðvitað hafi framkvæmdir og rask þeim tengdum tekið á. Þetta hefur létt mjög á
húsnæðismálum í Lágafellsskóla og má segja að þar sé komið á gott jafnvægi í húsnæðismál-
um. Undirbúningur á byggingu nýs skóla í Helgafellslandi er komin vel á veg. Þarfagreining er
á lokastigi og fyrirhugað er útboð á hönnun á næstu vikum. Ráðgert er að fyrsti áfangi skólans
verði tekinn í notkun haustið 2018 sem mun létta á skólasvæði Varmárskóla.
Uppbygging í Helgafelli, Leirvogstungu og í miðbæ
Nú um áramótin höfðu verið gefin út byggingarleyfi fyrir rúmlega 300 íbúðir í Helgafells-
hverfi en fullbyggt er gert ráð fyrir um 1000 íbúðum þar. Mikill gangur hefur einnig verið í
Leirvogstunguhverfinu sem senn mun verða fullbyggt. Í miðbæ er auk þessa að hefjast mikil
uppbygging. Mosfellingum fjölgar því þó nokkuð hratt um þessar mundir og styttist í tíu þús-
undasta íbúann.
Atvinnuuppbygging í vændum
Eftirspurn eftir atvinnulóðum jókst mikið á síðasta ári. Þannig eru flestar lóðir við Desja-
mýri seldar en þar eru 10 lóðir þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Nokkrar
fyrirspurnir hafa verið um lóðir í Sunnukrika og miðbæ sem vonandi leiðir til atvinnuupp-
byggingar þar. Einnig má nefna að tvö stór þróunarverkefni sem tengjast ferðaþjónustu
hafa verið í undirbúningi á árinu. Þannig er nú í skipulagsferli uppbygging á víkingabæ við
Selholt í Mosfellsdal og svo er í skoðun bygging tíu þúsund fermetra þrívíddar Íslandskorts
á Leirvogstungumelum. Hvorutveggja verkefni sem munu draga að sér hundruð þúsunda
ferðamanna ef þau verða að veruleika.
Mig langar til að benda á nokkur atriði í fjárhagsáætlun næsta árs sem bæði ungir og
aldnir njóta góðs af. Þar er gert ráð fyrir óbreyttum leikskólagjöldum. Auk þess var samþykkt
að koma á systkinatengingu á frístundaávísun sem niðurgreiðir enn
frekar frístundir hjá barnmörgum fjölskyldum. Einnig var samþykkt
að hækka niðurgreiðslur vegna dvalar í sjálfstætt reknum leikskólum
og ákveðið var að auka afslátt af fasteignagjöldum til tekjulágra eldri
borgara. Þetta eru allt kjarabætur til Mosfellinga sem er ánægjulegt.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru hvað varðar það sem gerst
hefur í Mosfellsbæ á s.l. ári, en of langt mál væri að telja það allt upp.
Samstarfið í bæjarstjórninni hefur gengið vel á árinu. Traust og gott
meirihlutasamstarf er milli D- og V- lista í bæjarstjórninni. Framtíðin
er björt í Mosfellsbæ og með gildin okkar góðu VIRÐINGU – JÁ-
KVÆÐNI - FRAMSÆKNI og UMHYGGJU að leiðarljósi eru okkur
allir vegir færir. Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum
fyrir gott samstarf, samskipti, vináttu og stuðning á árinu
2015 og megi nýrunnið ár vera okkur gæfuríkt og gleðilegt.
HaraldurSverrisson
Bæjarstjóri
Um áramót
Nýarskveðja
bæjarstjóra
- Aðsendar greinar26
Nú í byrjun árs liggur fyrir
að auglýst verði staða prests
við Mosfellsprestakall. Sam-
kvæmt starfsreglum um val
og veitingu prestsembætta
velur valnefnd prest nema
óskað sé eftir almennri
kosningu í prestakallinu.
Það vill brenna við að þeir
umsækjendur sem lengst hafa þjón-
að sem prestar fái auglýstar stöð-
ur, burt séð frá því hversu vel þeir
þekkja til sóknarinnar eða hversu
kraftmiklir og vel liðnir þeir eru.
Það ætti að skipta íbúa sóknarinn-
ar máli að næsti prestur verði prest-
ur sem flest sóknarbörn þekkja til og
treysta og ættu því að fá tækifæri til
að velja sér þann prest sjálf. Það er
mögulegt með því að safna undir-
skriftum þriðjungs kosningabærra
sóknarbarna um að fram fari al-
menn prestskosning.
Undirrituð eru þess fullviss að
séra Arndís G. Bernhardsdóttir Linn
sé vel til þess fallin að verða prest-
ur í Mosfellsprestakalli. Hún hefur
starfað við Lágafellsókn á annan
áratug við góðan orðstír.
Hún hefur verið meðhjálp-
ari og kirkjuvörður í átta
ár, stýrt foreldramorgnum,
komið að fermingarfræðslu
og leyst presta sóknarinnar
af eftir að hún sjálf hlaut
vígslu til Kvennakirkjunnar
árið 2013. Arndís er borinn
og barnfæddur Mosfellingur, hún er
vel liðin innan sóknarinnar og hef-
ur mætt sóknarbörnum af alúð, ein-
lægni og virðingu alla tíð.
Við hvetjum íbúa í Mosfells-
prestakalli til að sameinast um val á
presti fyrir okkur sjálf, presti fólks-
ins, óbundin af þeim reglum sem
gilda um val á opinberum embætt-
ismönnum. Því óskum við eftir að
fram fari prestskosningar í presta-
kallinu og teljum séra Arndísi verð-
ugan þjón kirkjunnar.
Bryndís Haraldsdóttir
Elísabet Jónsdóttir
Hilmar Bergmann
Karl Tómasson
Katrín Sigurðardóttir
Magnús Sigsteinsson
Úlfhildur Geirsdóttir
Mosfellingar
velji sér prest
Lausar stöður
við Lágafellsskóla
Umsjónarkennsla á miðstigi
100% starfshlutfall, tímabundin ráðning til loka
skólaárs. Ráðið verður í stöðuna frá 1. mars 2016.
Skólaliði
Meginverkefni eru ræsting, gæsla nemenda og aðstoð
í matsal. Daglegur vinnutími frá kl. 07:50 –15:00.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frístundaleiðbeinendur óskast til starfa
við Frístundasel Lágafellsskóla.
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu
faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik
og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.
Frekari upplýsingar um störfin er að finna
á www.lagafellsskoli.is og www.mos.is
Umsóknarfrestur um störfin er til 13. janúar 2016